Bannon vikið úr þjóðaröryggisráðinu

Steve Bannon á ekki lengur sæti í þjóðar­ör­ygg­is­ráði Banda­ríkj­anna.

Steve Bannon, ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Steve Bannon, ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur vikið Steve Bannon úr sæti sínu í þjóðar­ör­ygg­is­ráði Banda­ríkj­anna. Bannon hefur verið í hlut­verki helsta ráð­gjafa Trumps síðan for­set­inn tók við emb­ætti í jan­úar. The New York Times greinir frá þessu.

Í yfir­lýs­ingu frá Hvíta hús­inu segir að ekki sé verið að lækka Bannon í tign, heldur sé verið að end­ur­raða í þau fjöl­mörgu sæti sem ráð­gjafar for­set­ans skipa.

Breyt­ing­arnar voru að frum­kvæði þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa Donalds Trump, Herbert McMaster. McMaster tók við af Michael Flynn, sem sagði af sér í febr­úar eftir að hafa orðið upp­vís að því að afvega­leiða emb­ætt­is­menn um sam­skipti við rúss­neska sendi­herr­ann.

Sagan af Flynn er enn öll ósögð.

[adspot]

Þegar Bannon var skip­aður í þjóðar­ör­ygg­is­ráðið í jan­úar vökn­uðu spurn­ingar um að Trump-stjórnin væri að blanda stjórn­málum um of í þjóðar­ör­ygg­is­málin, sem hafa hingað til verið sam­kunda yfir­manna í leyni­þjón­ustu og lög­reglu Banda­ríkj­anna. Ráðið er helsta upp­lýs­inga­veita for­set­ans í utan­rík­is­málum og örygg­is­málum.

Bannon er umdeildur maður. Hann stýrði um tíma öfga hægri­m­iðl­inum Breibart News í Banda­ríkj­unum og hefur lýst skoð­unum sínum á útlend­ingum. Hann hefur fyrir vikið verið sak­aður um útlend­inga­hatur og þjóð­ern­is­hyggju sem upp­hefur hvíta á kostnað ann­arra kyn­þátta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár