Eru góð efnahagsskilyrði í Bandaríkjunum Trump að þakka?

Svo virð­ist sem efna­hags­horfur í Banda­ríkj­unum hafi batnað tölu­vert á þessu ári. Gæti nýkjör­inn Banda­ríkja­for­seti átt heið­ur­inn af því?

Donald Trump, Bandaríkjaforseti
Donald Trump, Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Störfum í Banda­ríkj­unum hefur fjölgað um 440.000 á síð­ustu tveimur mán­uðum, ásamt því að hluta­bréfa­mark­aðir vest­an­hafs eru í hæstu hæðum. Samkvæmt Donald Trump, Banda­ríkja­for­seta, eru góðar efna­hags­horfur honum að þakka, en er það virki­lega svo?

The Guardian greindi frá því í gær að banda­rískum störfum hefði fjölgað um 209.000 í júlí síð­ast­liðnum og 231.000 í júní, en báðar tölur voru nokkuð yfir spár sér­fræð­inga. Eftir fjölgun starfa síð­ust sex mán­uð­ina hefur atvinnu­leysi farið niður í 4,3%, en það hefur ekki verið lægra í 16 ár. 

Trump fagn­aði töl­unum með Twitter færslu, en í henni segir „frá­bærar atvinnu­tölur eru komnar út – og ég er ein­ungis rétt að byrja.“

The Trump Bump

Samhliða góðum horfum á vinnu­mark­aði virð­ist hluta­bréfa­mark­aðir Banda­ríkj­anna einnig vera í ágætum málum, en Dow Jones-vísi­talan náði met­hæðum við opnun mark­aða í gær. Vísi­talan, sem byggð er á hluta­bréfa­verði 30 stórra banda­rískra fyr­ir­tækja, hefur vaxið stöðugt í allt sumar, en margir stuðn­ings­menn Trump vilja eigna for­set­anum vel­gengni mark­aða og kalla hana „the Trump Bump.“ For­set­inn sjálfur virð­ist trúa því líka, ef marka má Twitter-færslu hans síð­asta fimmtu­dag:

Á hann heiðurinn?

En hversu mikil er efna­hags­leg vel­gengni Banda­ríkj­anna og er hún for­set­anum að þakka? Í frétt The Guardian kemur fram að megnið af nýsköp­uðum störfum hafi verið lág­fram­leiðni­störf, sam­hliða fjölgun starfa hafi launa­vísi­talan ein­ungis vaxið um 2,6% á síð­ustu tólf mán­uðum. Einnig er bætt við að fram­leiðslu­störfum, sem Trump hafði lagt áherslu á að fjölga í kosn­inga­bar­átt­unni sinni, hafi í raun fækkað um 4.000 í mán­uð­inum sem leið.

Á vef The Economist er vel­gengni á banda­ríska verð­bréfa­mark­aðnum einnig tekin fyrir, en sam­kvæmt tíma­rit­inu er staðan ekki jafn­góð ef tekið er til­lit til sveiflna á gjald­eyr­is­mark­aðnum. Þótt mörgum banda­rískum fyr­ir­tækjum hafi gengið vel upp á síðkastið hefur gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart evru veikst tölu­vert frá emb­ætt­is­töku Trump í jan­úar, ann­ars vegar vegna þverr­andi trausts á doll­ar­anum og hins vegar vegna auk­ins trausts á evr­ópska hag­kerf­inu.

Raunar hefur geng­is­veik­ingin verið svo mikil að fjár­festar með eignir sínar bundnar í dölum hafa grætt meira á evr­ópskum hluta­bréfum heldur en banda­rískum það sem af er árs.

[adspot]

Einnig bendir tíma­ritið á að þau banda­rísku fyr­ir­tæki sem hækkað hafa mest í verði síð­ustu mán­uði hafi verið úr tækni­geir­anum og með starf­semi sína í mörgum löndum, en for­set­inn hefur jafnan haft horn í síðu þeirra vegna útvist­unar á vinnu­afli.

Erfitt er við fyrstu sýn að greina hversu mik­inn heiður Trump á á fjölgun nýrra starfa og góðu gengi fyr­ir­tækja vest­an­hafs. Vel­gengnin virð­ist ekki vera jafn­mikil og for­set­inn lætur í ljós og hún hefur ekki skilað sér jafn­mikið til þeirra geira sem hann hefur beitt sér mest fyrir. Á hinn bóg­inn er ekki hægt að úti­loka að nýj­ustu tölur séu vegna raun­veru­legs „Trump Bump.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár