Grænir fingur Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir á ein­stakt sam­band við plöntur. Hoya er í upp­á­haldi og Áslaug á ynd­is­lega blóma­vin­konu sem á yfir 40 teg­undir af hoyu. „Hún er búin að gauka að mér nokkrum hún Rúna mín.“ Mynd: Golli

Þrjár kynslóðir bananaplantna í Mosfellsbænum

„Mold er gull,“ segir Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir, sem fær ótrúlegustu plöntur til að blómstra. Fyrir níu árum fékk hún lófastóra banana­plöntu að gjöf frá Tenerife. Í vetur bar hún ávöxt – tíu gómsæta banana. Áslaug er með græna fingur og stóran hluta ársins ræktar hún allt sitt grænmeti og ávexti sjálf.

Hún blasir við í eldhús­glugganum, tignarleg banana­plantan, alveg frá gólfi og upp í loft, þegar komið er fyrir hornið í Furubyggð í Mosfellsbæ. Þar býr Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir, plöntu­áhugakona og kennari, sem er að æfa sig í að hætta að vinna. 

Áslaug er með græna fingur, á því leikur enginn vafi. Hoya er uppáhalds­plantan hennar, hún á ellefu slíkar, friðar­liljan hennar hefur skartað níu blómum samtímis, aloe vera kaktusinn blómstraði fjórum sinnum í fyrra og hún ræktar brómber, hindber og alls konar annað góðgæti í gróður­húsinu. Og nú hefur banana­plantan hennar borið ávöxt. Banana­plantan er einmitt kveikjan að heimsókn blaðakonu í Mosfells­bæinn. 

„Vinkona mín kom með hana, pínulitla, lófastóra, innsiglaða og moldar­lausa, frá Tenerife, ætli það séu ekki svona átta eða níu ár síðan,“ segir Áslaug sem leiðir blaðakonu beint að „dótturinni“ eins og hún kallar banana­plöntuna. Það var nefnilega móðirin sem Áslaug eignaðist fyrst. „Hún varð alveg …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár