Forsetaframbjóðendur mæta á kjörstað glaðir í bragði

Flestir for­seta­fram­bjóð­endur hafa nú kosið á sínum kjör­stöðum. Guðni Th. Jóhann­es­son mætti fyrstur fram­bjóð­enda klukkan 10 í morgun.

Guðni, Halla, Andri Snær og Davíð mættu öll glöð með fjölskyldum sínum á kjörstað.
Guðni, Halla, Andri Snær og Davíð mættu öll glöð með fjöl­skyldum sínum á kjör­stað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Flestir for­seta­fram­bjóð­endur hafa nú mætt á kjör­stað til að kjósa næsta for­seta Íslands. Guðni Th. Jóhann­es­son mætti fyrstur klukkan 10 í morgun í Val­húsa­skóla á Sel­tjarn­ar­nesi. Hálftíma síðar kom Andri Snær Magnason í Mennta­skól­ann við Sund og næstur var Davíð Oddsson í Haga­skóla. Halla Tóm­as­dóttir mætti klukkan 13 í Smárann í Kópavogi. Kjarninn fylgd­ist með þeim fram­bjóð­endum sem mæl­ast með mest fylgi í könn­unum.

Kjörsókn í dag hefur verið svipuð, og mögu­lega aðeins meiri, og í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012 en um hádegi höfðu í kring um 10 pró­sent lands­manna kosið. Kjör­staðir opn­uðu flestir klukkan 9 í morgun og loka klukkan 22 í kvöld.

For­seta­fram­bjóð­endur mæta á Kosn­inga­vöku RÚV klukkan 22 í kvöld og von er á fyrstu tölum um klukkan 23.

[adspot]

„Þetta er léttir, enda búin að vera löng törn. Það verður gott að þurfa ekki að vera alltaf til­bú­inn með eitt­hvað snið­ugt að segja. Eins og til dæmis núna,“ sagði Guðni í Val­húsa­skóla í morgun.

„Þetta er stór dagur. Það verður skrýtið að vakna í fyrra­málið, þetta var farið að venj­ast svo vel. En okkur tókst að gera þetta af heil­indum,“ sagði Andri Snær þegar hann var að ganga í kjör­klef­ann í Mennta­skól­anum við Sund.

„Ég er með rosa­lega góða til­finn­ingu fyrir deg­inum öllum. Ég fékk mér nýjan hafra­graut í morgun, með nýjum rús­ínum og nýjum kanel,“ sagði Davíð þegar hann skil­aði atkvæði sínu í Haga­skóla í morgun. Þegar Ástríður, eig­in­kona hans, gekk til kjör­klef­ans sagði hann: „Kjóstu rétt, kona.“

„Til­finn­ingin er mjög góð. Ég er mjög þakk­lát öllum og þetta er búið að vera frá­bært ferða­lag. Við lítum á þetta sem sigur hvernig sem fer og það er gott að enda í sókn,“ sagði Halla þegar hún kaus í Smáranum í Kópavogi í hádeg­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár