Páll: Bjarni gerði mistök og hlýtur að leiðrétta þau

Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, seg­ist líta svo á að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi gert mis­tök í ráð­herra­vali sínu. Hann hljóti sem skyn­samur maður að leið­rétta þau.

Þetta kom fram í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun. Þar sagði Páll að hann hefði ekki getað greitt atkvæði með til­lögu Bjarna um ráð­herra­skipan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en flokk­ur­inn fékk sex ráð­herra­emb­ætti. Páll sagði í fyrsta lagi að til­lagan hafi gegnið á skjön við það lýð­ræð­is­lega umboð sem þing­menn hefðu áunnið sér, fyrst í próf­kjöri og svo kosn­ingum. Í öðru lagi sagði hann að í til­lög­unni hefði falist lít­ils­virð­ing á kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sem ég annað höf­uð­vígi flokks­ins þar sem stærsti sig­ur­inn hafi unn­ist í kosn­ing­unum í haust.

Páll fékk ekki ráð­herra­stól, og eng­inn þing­maður úr Suð­ur­kjör­dæmi er ráð­herra. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, sem var í fjórða sæti flokks­ins, verður for­seti Alþingis.

„Ég lít á þetta sem mis­tök. Formaður flokks­ins er skyn­samur maður og leið­réttir þau ábyggi­lega við fyrsta tæki­færi. Þetta snýst ekki um mig sem per­sónu. En til að fólk fari ekki að gera sér óþarfa grillur að þá styð ég for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ég styð rík­is­stjórn­ina sem hann veitir for­ystu og ég styð ráð­herra flokks­ins í störfum þeirra.“

Páll var spurður hvernig Bjarni gæti leið­rétt þessi mis­tök, og sagði það vera hægt með því að for­ystu­maður í sterkasta vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eigi að sitja við rík­is­stjórn­ar­borð þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í rík­is­stjórn. „Þetta er ein­falt mál.“

Hann á samt ekki frekar von á því að þessu verði breytt, segir hann, en þetta sé afstaða hans í þessu til­tekna máli. Hann á von á því að honum verði boðin for­mennska í ein­hverri fasta­nefnd, en það hefur ekki verið rætt við hann enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár