Dómsmálaráðherra sakar starfsmann RÚV um að lýsa pólitískri afstöðu

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir segir að greið­endur útvarps­gjalds­ins eigi rétt á því að greint sé rétt frá. Hún gagn­rýnir umfjöllun RÚV um úttekt GRECO á aðgerðum Íslands gegn spill­ingu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að pistla­höf­undur „útvarps allra lands­manna“ hafi kosið „að afflytja málið og lýsa póli­tískri afstöðu án tengsla við stað­reyndir“ þegar við­kom­andi fjall­aði um úttekt GRECO á aðgerðum Íslands gegn spill­ingu. Þetta kemur fram í grein eftir Áslaugu Örnu í Morg­un­blað­inu í dag. Pistla­höf­und­ur­inn, sem ráð­herr­ann kallar líka frétta­mann í grein­inni, er Sigrún Dav­íðs­dóttir.

[links]Ástæðan er pist­ill sem birt­ist á vef RÚV í byrjun viku undir fyr­ir­sögn­inni: „GRECO, tvö ráðu­neyti, tvær sögur“. Þar fjall­aði Sigrún um hvernig tvö ráðu­neyti, for­sæt­is­ráðu­neytið og dóms­mála­ráðu­neytið, hefðu greint með mis­mun­andi hætti frá nið­ur­stöðu úttektar GRECO, en líkt og Kjarninn greindi frá á mánu­dag fólst í henni að GRECO telji að Ísland hafi komið til móts við fjórar til­lögur af 18 sem settar voru fram í skýrslu um Ísland með full­nægj­andi hætti. Sjö til­lögur til við­bótar eru sagðar hafa verið inn­leiddar að hluta, en ekki er búið að inn­leiða breyt­ingar til þess að mæta sjö til­lögum sem lúta flestar að lög­gæslu­málum.

Í umfjöllun Sigrúnar á veg RÚV er bent á að í tillkynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segi: „Samkvæmt eft­ir­fylgni­skýrslu GRECO hefur Ísland nú inn­leitt fjórar til­lögur sem varða æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds. Fjórar til við­bótar eru inn­leiddar að hluta að mati sam­tak­anna en ein til­laga telst ekki inn­leidd.“ Í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu sagði hins vegar: „Af 18 til­mælum GRECO hafa níu verið upp­fyllt, þrjú að hluta og sex á eftir að upp­fylla,“ og bent á að þar sé því sleppt að nefna að dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn ekki upp­fyllt nein til­mæli sem sett voru fram í skýrsl­unni 2018. Sigrún skrif­aði svo að báðar til­kynn­ing­arnar væru kór­réttar, en að „gagn­sæi getur sann­ar­lega tekið á sig margar myndir.“

[adspot]Áslaug Arna segir í grein sinni í dag að Sigrún hafi kosið að gera lítið úr því sem gert hefur verið á vegum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og látið í veðri vaka að þar væri hvorki áhugi né vilji á aðgerðum gegn spill­ingu. Það væri ósatt og að margt væri í far­vegi sem tals­maður GRECO hefði farið lof­sam­legum orðum um. „Greið­endur útvarps­gjalds­ins eiga rétt á því að greint sé rétt frá. Ýmislegt hefur verið aðhafst í mál­efnum lög­regl­unnar und­an­farið og frek­ari breyt­ingar til hins betra eru framundan,“ skrifar ráð­herr­ann.

„Ísland verður að takmarka pólitískt afskipti“

Í frétta­til­kynn­ingu frá GRECO sem send var út í byrjun viku sagði að þrátt fyrir að sam­tökin kynnu að meta heild­ræna nálgun sem íslensk stjórn­völd hafi tekið gagn­vart því að byggja upp varnir gegn hags­muna­á­rekstrum á æðstu stöðum í stjórn­sýsl­unni, vanti enn upp á nokkra hluti.

Hvað lög­gæslu varðar sagði ein­fald­lega: „Ísland verður að tak­marka póli­tísk afskipti,“ í frétta­til­kynn­ingu GRECO. Því var bætt við að kynna þyrfti til sög­unnar gagn­sæjar og sann­gjarnar ráðn­ing­ar­að­ferðir, aug­lýsa lausar stöður, setja upp kerfi um fram­gang í starfi og einnig við­mið um hvenær samn­ingar skyldu ekki end­ur­nýj­aðir.

GRECO sagð­ist kunna að meta aðgerðir sem gripið hafi verið til innan lög­reglu varð­andi reglu­lega þjálfun og fræðslu lög­reglu­liðs­ins varð­andi mál tengd heil­indum, en harm­aði að ekki væri búið að upp­færa siða- og starfs­reglur lög­reglu og Land­helg­is­gæsl­unnar.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um úttekt GRECO hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

greco

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár