Sjónvarpsþáttur Kjarnans: Fjárframlög til skattaeftirlits verða aukin

For­sæt­is­ráð­herra segir að skatta­eft­ir­lit skili sér marg­falt til baka. Samstaða er um það innan rík­is­stjórn­ar­innar að auka fram­lög til skatta­eft­ir­lits. Hér er hægt að horfa á við­tal Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar við Katrínu Jak­obs­dóttur í síð­asta sjón­varps­þætti


„Hver króna sem við setjum í þessi mál, hún mun skila sér marg­falt til baka. Ég held að það sé alveg sam­staða um það í rík­is­stjórn­inni.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra um skatta­eft­ir­lit í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son í síð­asta þætti Kjarnans á Hring­braut. Þáttinn er hægt að sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

[links]Katrín sagði að það sé átaks­þörf í skatta­eft­ir­liti þótt að margt hafi verið gert á und­an­förnum árum til að efla það. Því til stuðn­ings nefndi hún að emb­ætti rík­is­skatt­stjóra væri sjálf­bært. Þ.e. pen­ingar sem það sækir frá þeim sem svíkja undan skatti dugi til að reka emb­ættið.

For­sæt­is­ráð­herra sagði skattaund­anskotin væru tví­þætt. Annars vegar séu hin alþjóð­legu skatt­svik, þar sem fjár­muni séu til að mynda faldir í aflands­fé­lögum, og hins vegar sú svarta atvinnu­starf­semi sem þrí­fist hér á Íslandi.

[adspot]Á báðu þyrfti að taka og það þýddi að fjár­fram­lög til þeirra emb­ætta sem fara með eft­ir­lit og rann­sóknir á skattaund­anskotum, sem eru rík­is­skatt­stjóri og skatt­rann­sókn­ar­stjóri, myndu verða aukin.

Sú aukn­ing myndi þó ekki koma fram í fjár­lögum næsta árs heldur á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar sem lögð verður fram í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár