Borgin standi í vegi fyrir „stórfjölskylduhúsi“ sem þjóni þörfum samfélagsins

Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík­ur­borg fékk nýlega inn á sitt borð hug­mynd að húsi á óbyggðri lóð í Blesu­gróf, sem var með átta svefn­her­bergjum. Hvert og eitt her­bergi var með sal­ern­is­að­stöðu, sturtu og eld­hús­krók. Eigandi lóð­ar­innar og arki­tekt hafna því að hug­myndin hafi verið að byggja margar litlar útleigu­ein­ingar og telja emb­ætt­is­menn borg­ar­innar standa í vegi fyrir arki­tektúr sem þjóni þörfum sam­fé­lags­ins.

Stórfjölskylduhús
Stór­fjöl­skyldu­hús Eins og þessi teikn­ing af hús­inu sýnir er innra skipu­lagið ansi óhefð­bundið. Hvert átta svefn­her­bergja húss­ins hefur sína eigin sal­ernis- og sturtu­að­stöðu og eld­hús­krók að auki.

Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík­ur­borg hafn­aði í byrjun júlí­mán­aðar umsókn félags­ins Sýrfells ehf. um bygg­ingu ein­býl­is­húss með bíl­skúr á lóð við Blesu­gróf 30. Á meðal þess sem kemur fram í umsögn skipu­lags­full­trúa um málið er að erfitt sé að sjá að um ein­býl­is­hús sé að ræða.

Ef til vill þarf ekki að undr­ast það mat, enda gerir teikn­ing af innra skipu­lagi húss­ins ráð fyrir því að það sé hólfað niður í átta svefn­her­bergi, sem hvert um sig hafi sal­erni með sturtu og eld­hús­krók. 

Þá er gert ráð fyrir að hægt sé að fara beint út úr hús­inu úr öllum her­bergj­unum, auk þess sem eld­hús og þvotta­hús yrði að finna í hús­inu. Dag­bjartur H. Guð­munds­son bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur er eig­andi Sýrfells og hefur átt umrædda lóð frá því að hann keypti hana, og tvær aðrar sam­liggj­andi lóðir, af Reykja­vík­ur­borg árið 2014. Honum hefur gengið erf­ið­lega að fá leyfi frá borg­inni til að koma hug­myndum sínum um upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis til fram­kvæmda.

Einbýlishús og íbúðarhús

Í sam­tali við Heim­ild­ina hafnar hann því að rétt sé að tala um að þetta sé ein­býl­is­hús. „Ég sótti bara um að byggja íbúð­ar­hús,“ segir Dag­bjartur og bætir því við að þegar sótt sé um leyfi til að byggja hús, í þar til gerðri vef­gátt, sé spurt „hverju húsið lík­ist helst“. Þar hafi hann hakað við ein­býl­is­hús.

„En þetta er bara íbúð­ar­hús, það má kalla það íbúð­ar­hús,“ segir Dag­bjartur, en í inn­sendum gögnum frá honum vegna lóð­ar­innar hefur orðið „stór­fjöl­skyldu­hús“ einnig verið notað um hið áform­aða hús.

Þrjár lóðirDag­bjartur keypti lóð­irnar þrjár af borg­inni árið 2014, fyrir þrettán millj­ónir króna, hverja um sig. Enn gengur honum lítið að koma fram­kvæmdum af stað.

Blaða­maður nefnir að teikn­ingin líti út eins og þarna séu átta litlar stúd­íó­í­búðir í sama húsi, með sam­eig­in­legum rýmum að auki. Dag­bjartur hafnar því hins vegar alfarið að her­bergi húss­ins gætu talist vera íbúðir. Þær lúti allt öðrum lög­málum. „Ertu kunn­ugur skipu­lags­lögum?“ spyr hann blaða­mann og seg­ist alveg vera til í að fara yfir það hvernig íbúð­ar­hús og ein­býl­is­hús séu skil­greind í lög­unum.

Við fórum þó ekki nánar út í þá sálma. Dag­bjartur leynir því ekki að hann er ósáttur með afgreiðslu skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar og nefnir að emb­ætt­inu virð­ist hafa þótt skrítið að það væri sal­erni inni á hverju svefn­her­bergi.

„Mér finnst það nú bara það sem koma skal. Einu sinni voru kamrar úti og það þótti fram­úr­stefnu­legt að setja kló­sett inn í húsin, ég veit ekki hvað skipu­lags­full­trú­inn hefði sagt þá,“ segir Dag­bjartur, sem hafnar því að hug­myndin með til­lög­unni hafi verið sú að búa til átta litlar útleigu­ein­ingar á einni ein­býl­is­húsa­lóð.

Allir með sér afdrep

Hann segir að skipu­lag húss­ins sé kannski ekki hefð­bundið, en að „það mætti hugsa sér að það væri stór­fjöl­skylda í þessu húsi, þar sem hver hefði sér afdrep og góða aðstöðu fyrir sig. Þetta gætu verið hjón og tengda­for­eldrar, eða afi og amma skil­urðu, og eitt­hvað svo­leiðis. Það er dýrt hús­næðið í dag þannig að það getur verið hag­kvæmt fyrir fólk að krunka sig saman en samt hafa svona prí­vat. Það er pæl­ingin,“ segir Dag­bjartur.

Annars segir Dag­bjartur að arki­tekt­inn og skipu­lags­fræð­ing­ur­inn Gestur Ólafsson, sem teikn­aði húsið, gæti gert hug­mynd­inni betri skil. Heim­ildin heyrði í Gesti og fékk að heyra meira um pæl­ing­arnar. 

„Ég er nú gam­all kenn­ari við Háskóla Íslands í skipu­lags­fræðum og gott skipu­lag og góð hönnun bregst við þörfum í þjóð­fé­lag­inu. Þetta gengur út á að bregð­ast við þessum þörfum. Alkunna er að það er erfitt fyrir ungt fólk að eign­ast íbúðir og líka dálítið leið­in­legt fyrir fólk á efri árum að hafa ekki aðra kosti en að fara á elli­heim­ili. Það eru margir sem að okkar mati vildu eiga þann kost að geta dvalið áfram með börn­unum sínum,“ segir Gestur og bætir því við að það væri gott, þegar „börnin manns og barna­börnin eru að prófa að búa með ein­hverjum öðrum, af hinu kyn­inu, að geta bara prófað það heima hjá sér. En samt svona prí­vat.“

„Það er svo kostur að geta tekið for­eldra sína eða tengda­for­eldra inn til sín og lofa þeim að búa svo­lítið sjálf­stætt. Út á það ganga þessar hug­myndir,“ segir Gestur og nefnir einnig breyttar mat­ar­venjur og aukið hrein­læti lands­manna sem rök fyrir því fyr­ir­komu­lagi íbúð­ar­hús­næðis sem birt­ist í hug­mynd hans og Dag­bjarts.

„Það eru margir sem eru að verða vegan, eða „veget­arian“, og vilja helst ekki borða þennan venju­lega íslenska mat, kjöt og fisk og svo­leiðis,“ segir Gestur. Fólk vilji þá frekar elda bara út af fyrir sig og hafi kost á því, í húsi eins og því sem hann hefur teiknað.

„Fólk er líka farið að baða sig miklu oftar en það gerði áður. Ég hef ekki farið í liggj­andi bað í marga ára­tugi, en ég fer alltaf í sturtu á morgn­ana þegar ég er búinn að hlaupa úti með hund­inn. Þetta er hluti af nútíma­lífstíl. Við vildum prófa þetta og við teljum að skipu­lags- og bygg­ing­ar­yf­ir­völd eigi ekki að koma í veg fyrir svona þróun sem er að eiga sér stað, heldur frekar auð­velda hana frekar en hitt,“ bætir Gestur við.

„Við teljum þetta geta komið til móts við þarf­irnar í þjóð­fé­lag­inu,“ segir Gestur enn­fremur og fer svo út í aðra sálma. „Það er lítið gaman fyrir for­eldra manns að fara inn á elli­heim­ili þar sem er að veru­legu leyti töluð pólska og eng­inn til að tala við. Fyrir utan það að krakkar geta lært heil­mikið af for­eldrum sínum og öfum og ömmum, sem kunna oft betri íslensku en kenn­ar­arnir sem eru að kenna þeim í skól­anum. Sér­stak­lega þegar skól­arnir fyll­ast allir af inn­flytj­endum, hvernig koma menn svona venju­legri menn­ingu áfram?,“ spyr Gestur.

„Alveg hreint,“ segir hann þegar blaða­maður spyr hvort hann væri sjálfur til í að búa í húsi eins og því sem hann teikn­aði að Blesu­gróf 30, með fjöl­skyldu sinni. Hann segir, rétt eins og Dag­bjartur, að hug­myndin hafi aldrei verið að útbúa þarna átta litlar útleigu­ein­ingar.

„Neinei,“ svarar Gestur og bætir við að ef menn vilji rang­færa það eitt­hvað sé það hægt.

„Það var aldrei mein­ingin með þessu. En það segir eng­inn að ein­býl­is­hús sé bara hús fyrir einn. Okkur fannst sjálf­sagt að bjóða upp á svona „flex“-hús sem tekur til­lit til þarf­anna í þjóð­fé­lag­inu. Og mér finnst sem gam­all kenn­ari í skipu­lags­fræði að skipu­lag sveit­ar­fé­laga eigi ekki að standa í vegi fyrir svona þróun,“ segir arki­tekt­inn og skipu­lags­fræð­ing­ur­inn.

Komin kergja í samskipti við borgina

Dag­bjartur hefur sem áður segir átt þrjár lóðir í Blesu­gróf­inni frá árinu 2014. Í til­kynn­ingu frá borg­inni frá þeim tíma kom fram að hann hefði fengið að kaupa hverja og eina lóð á 13 millj­ónir króna.

Hann lýsir því að það hafi verið „svo­lítið basl“ að reyna að fá sam­þykki frá borg­inni fyrir þeim hug­myndum sem hann hefur sett fram. Upp­haf­lega vildi hann fá að byggja þrjár íbúðir á hverri lóð en segir að borgin hafi vísað þeim hug­myndum alfarið frá. 

Afgreiðslan á þess­ari til­teknu hug­mynd, um stór­fjöl­skyldu­húsið, finnst honum fremur „líkj­ast ein­hverri per­sónu­legri skoðun en fag­legri afgreiðslu“. „Þeim finnst húsið kannski ljótt og ekki vel inn­réttað, en það er ekki skipu­lags­full­trúa að ákveða það hvernig hús eiga að vera inn­réttuð, er það?“ spyr Dag­bjartur.

Hann segir að það sé komin kergja í sam­skipti hans við emb­ætt­is­menn borg­ar­innar og vill meina að það liti afgreiðslu borg­ar­innar á beiðnum hans og til­lögum.

Hefur þú sest niður með ein­hverjum frá borg­inni og fengið þeirra sýn á hvað væri ásætt­an­legt?

„Já, það byrj­aði þannig. En svo varð þetta allt miklu flókn­ara. Ég náði ágætis lausn fyrir lóð­ina númer 34 en ég er enn að basla með hinar tvær, því þær eru svo nið­ur­grafnar. Það er eng­inn áhugi á að ræða málin. Ég var svo leið­in­legur að ég stefndi borg­inni og eftir það fæ ég enga samúð.“

Hvernig end­uðu þau mála­ferli?

„Ekki vel fyrir mig, því miður. En það breytir því ekki að ég er enn með þessar tvær lóðir og það þarf að gera eitt­hvað við þær og ég hefði haldið að ég ætti að fá eðli­lega afgreiðslu og mál­efna­lega afgreiðslu, þó ég hafi verið leið­in­legur. En sitt sýn­ist hverjum auð­vitað. En eins og ég segi, það er búið að ganga á ýmsu.“

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár