Stjórnvöld ættu að vera á bremsunni

Fjár­mála­ráð segir að fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda fyrir árin 2018 til 2022 feli í sér hag­stjórn þar sem frekar sé stigið létt á bens­ín­gjöf­ina, frekar en að bremsa. Mikill efna­hags­legur upp­gangur hefur verið und­an­farið, og mæld­ist hag­vöxtur 7,2 pró­sent.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­mála­ráð, óháð ráð sér­fræð­inga sem hefur metið fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda fyrir árin 2018 til 2022, segir að stjórn­völd séu frekar að stíga létt á bens­ín­gjöf­ina, með áætl­un­inni, meðan þau ættu í reynd að vera að bremsa. Mikill efna­hags­legur upp­gangur hefur verið á und­an­förnum árum en hag­vöxtur í fyrra mæld­ist 7,2 pró­sent og vöntun er á vinnu­afli í land­inu, sé horft til næstu ára.

Í fjár­mála­ráði sitja Gunnar Har­alds­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, sem er for­maður, Arna Olafsson, lektor í fjár­mála­hag­fræði við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn, Axel Hall, lektor við við­skipta­deild Háskól­ans í Reykja­vík, Ásgeir Brynjar Torfason, lektor í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, Hjördís Dröfn Vil­hjálms­dóttir hag­fræð­ingur og Þóra Helga­dóttir Frost, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi hag­fræð­ingur hjá breska fjár­mála­ráð­inu.

Gagnrýnt og hrósað

Álit fjár­mála­ráðs er það fyrsta sem það sendir frá sér um fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda. Meg­in­skatta­breyt­ingin í fjár­mála­á­ætl­un­inni felst í því að færa virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu 1. Júlí á næsta ári úr neðra þrepi, sem er 11%, í það efra, sem er 24%. Í fram­hald­inu á svo að lækka skatt­pró­sent­una í efra þrep­inu niður í 22,5% .

Samtök ferða­þjónstunnar hafa gagn­rýnt þetta harð­lega og sagt að breyt­ingin geti grafið undan ferða­þjón­ust­unni. Í umsögn fjár­mála­ráðs­ins segir hins vegar að erfitt sé að sá hald­bær rök fyrir því að ferða­þjón­ustan búi við annan veru­leika þegar kemur að virð­is­auka­skatti en aðrar atvinnu­greinar.

Almenn lækkun á skatt­þrep virðis­auka­skatts, sem á að koma til fram­kvæmda í janú­ar 2019, er hins vegar gagn­rýnd en sú aðgerð er rétt­lætt með því aukna svig­rúmi sem hækk­un virðis­auka­skatts á ferða­þjón­ustu skapi. „Sú sér­tæka aðgerð er lík­leg til að ganga gegn grunn­gild­inu um stöðug­leika við þær efna­hags­að­stæður sem nú ríkja,“ seg­ir í álits­gerð­inni.

Ánægður með álitið

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir á Facebook síðu sinni að mörg þau atriði sem nefnd eru í álti fjár­mála­ráðs eigi rétt á sér. Að mörgu sé að hyggja þegar kemur að hag­stjórn­inni og meðal ann­ars þurfi sveit­ar­fé­lög og ríki að huga að því hvernig þau geti stillt saman strengi. Það sem miklu skipti sé að halda áfram á þeirri veg­ferð að greiða niður skuldir hins opin­bera og sam­ræma hag­stjórn eins og kostur er.

„Meg­in­at­riði í gagn­rýni snýr að aðhaldi í rík­is­rekstri og ég er sam­mála því aðhaldið má ekki minna vera miðað við þær vænt­ingar sem við höfum til hag­kerf­is­ins næstu árin. Á móti verður auð­vitað að taka til­lit til þess að á árunum eftir hrun hefur við­hald og upp­bygg­ing verið í lág­marki og því nauð­syn­legt að fara í fram­kvæmdir á mörgum sviðum. Rík­is­fjár­mál verða alltaf að feta ein­stigið á milli þess­ara sjón­ar­miða. Gagnrýnt er að byggt er á tak­mörk­uðu þjóð­hags­lík­ani sem ekki tekur mið af áætl­un­inni sjálfri. Þetta er rétt og nú er að fara í gang vinna við að gera nýtt sjálf­stætt þjóð­hags­líkan sem fjár­mála­ráðu­neytið getur notað við áætl­anir sínar. Þá verður auð­veld­ara að gera flókn­ari grein­ingar og leggja fram sviðs­myndir, sem gjarnan mætti gera.

Stefnt er að því að þetta líkan verði komið rek­spöl þegar næsta áætlun verður lögð fram. Um sumt er líka hægt að vera ósam­mála; til dæmis eru hag­fræð­ingar mjög ósam­mála um hvort hag­sveiflu­leið­rétt­ing væri til bóta eða ekki, en fjár­mála­ráð telur að það væri til bóta. Fjár­mála­ráð telur að aðhald í rík­is­rekstri mætti gjarnan vera meiri. Þetta á sér sam­hljóm í gagn­rýni SA og fleiri en ASÍ og aðrir vilja meiri útgjöld og/eða minni skatta­hækk­anir. Hér er það hlut­verk áætl­unar að finna bil beggja án þess að ógna stöð­ug­leika,“ segir Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár