Skipun Eiríks gæti sparað ríkinu umtalsverða fjármuni

Eiríkur Jónsson var á meðal þeirra sem var tal­inn hæf­astur til að sitja í Lands­rétti í aðdrag­anda þess að rétt­ur­inn tók til starfa. Hann var ekki skip­aður, höfð­aði mál til að fá bóta­skyldu við­ur­kennda og vann það í hér­aði.

Skipun Eiríks Jóns­sonar í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt getur sparað íslenska rík­inu umtals­verða fjár­muni, vinni Eiríkur mál gegn rík­inu sem hann höfð­aði vegna skip­unar á upp­haf­legum dóm­urum við rétt­inn.

Eiríkur vann málið í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í októ­ber í fyrra en íslenska ríkið áfrýj­aði því til Lands­réttar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­lög­manni bíður málið nú flutn­ings í Lands­rétti og er ekki enn komið á dag­skrá hans.

Eiríkur mun taka við emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi og mun því vera tek­inn til starfa þegar mál hans kemur fyrir Lands­rétt að öllu óbreyttu.

Var metinn á meðal þeirra hæfustu en ekki skipaður

Eiríkur var á meðal þeirra sem sóttu um stöðu lands­rétt­ar­dóm­ara þegar 15 slíkar voru aug­lýstar til umsóknar í aðdrag­anda þess að milli­dóm­stigið tók til starfa. Hæf­is­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um. Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­þykkti svo lista Sig­ríð­ar. Á meðal þeirra sem fjar­lægðir voru af list­anum var Eiríkur.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirri nið­ur­stöðu í mál­inu í mars að dóm­ar­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dóms­mála­ráð­herra eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins var opin­ber­aður.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók við ráðu­neyt­inu tíma­bundið sam­hliða öðrum ráð­herra­störfum og gegnir starf­inu enn. Nýr dóms­mála­ráð­herra verður hins vegar skip­aður á næstu vikum. Sá mun koma úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks og á meðal þeirra sem koma til greina í emb­ættið er Sigríður Á. Andersen.

Eiríkur Jónsson, sem verður dómari við Landsrétt frá og með næstu mánaðarmótum. Mynd: Skjáskot/Althingi
Eiríkur Jónsson, sem verður dóm­ari við Lands­rétt frá og með næstu mán­að­ar­mótum. Mynd: Skjáskot/Althingi

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði á opnum fundi þing­flokks flokks­ins í Val­höll 10. ágúst síð­ast­lið­inn að Sigríður gæti „að sjálf­sögðu“ átt end­­ur­komu í rík­­is­­stjórn­. Hann end­ur­tók þetta í við­tali við Kastljós 21. ágúst.

Forsendur skaðabótakröfu Eiríks breytast

Ei­ríkur höfð­aði mál gegn íslenska rík­inu vegna ólög­mætrar skip­unar á Lands­rétt­ar­dóm­urum. Í októ­ber í fyrra féllst hér­aðs­dómur á bóta­­skyldu rík­­is­ins gagn­vart Eiríki. Hann þurfti hins vegar að höfða skaða­bóta­mál til að inn­­heimta þá bóta­­skyldu. Eiríkur er fæddur árið 1977 og á því langa starfsævi framundan. Ljóst var að fjár­hags­legt tjón hans, þar sem laun lands­rétt­ar­dóm­ara eru mun hærri en núver­andi laun hans, gæti hafa orðið umtals­vert.

Í vor gerð­ist það að einn þeirra ell­efu sem voru lög­lega skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, sagði starfi sínu lausu og greindi frá því að hann hygð­ist setj­ast í helgan stein. Því yrði laus staða við rétt­inn frá og með kom­andi haust­i. Eiríkur var einn þeirra sem sótti um og í júlí greindi Kjarninn frá því að hæf­is­nefnd hefði metið hann hæf­astan allra umsækj­enda til að gegna stöð­unni.

Um miðjan ágúst féllst for­seti Íslands á til­lögu Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra um að Eiríkur yrði skip­aður dóm­ari frá og með 1. sept­em­ber. Við þá skipun breyt­ast for­sendur skaða­bóta­kröfu Eiríks umtals­vert, enda tjón hans vegna mis­munar á launum Lands­rétt­ar­dóm­ara og núver­andi launa hans nú ein­skorðað við tíma­bilið frá því að Lands­réttur hóf störf, í byrjun árs 2018, og fram til 1. sept­em­ber næst­kom­andi, en ekki afgang­inn af starfsævi Eiríks.

Umtalsverður kostnaður nú þegar

Í nýlegu svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, kom fram að íslenska ríkið sé þegar búið að greiða 23,3 millj­ónir króna vegna mála sem höfðuð voru vegna skip­unar dóm­ara í Lands­rétt. Eiríkur var nefni­lega ekki sá eini sem fór í mál, hinir þrír sem teknir voru af lista hæf­is­nefndar yfir þá 15 hæf­ustu gerðu það líka.

Inni í þeirri tölu er sá kostn­aður sem þegar hefur verið greiddur vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt, meðal ann­ars aðkeypt lög­manns­þjón­ustu og máls­kostn­aður vegna bóta­mála, en til við­bótar er ógreiddur dæmdur máls­kostn­aður og bætur fyrir íslenskum dóm­stólum upp á 7,5 millj­ónir króna vegna mála sem sæta áfrýjun.

Því blasir við að kostn­aður hins opin­bera á enn eftir að aukast. Helga Vala sagði við frétta­stofu Stöðvar 2 í kjöl­far þess að svarið barst að þetta væri þó ekki heild­ar­kostn­að­ur­inn vegna Lands­rétt­ar­máls­ins. Það vanti inn kostnað rík­is­lög­manns vegna mála á Íslandi og fyrir erlendum dóm­stólum. Þá vanti kostnað Lands­réttar vegna þeirra fjög­urra dóm­ara sem að ekki geta sinnt dóm­ara­störfum eftir að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu lá fyrir. „Þetta er brot af kostn­aði og bara það sem er í hendi núna,“ sagði Helga Vala. Hún ætlar að fara fram á ítar­legri svör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár