Efling slítur samningaviðræðum við Reykjavíkurborg

Samn­inga­nefnd Eflingar tók þá ákvörðun að slíta samn­inga­við­ræðum við Reykja­vík­ur­borg eftir fund með samn­inga­nefnd borg­ar­innar í gær.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Efling hefur slitið samn­inga­við­ræðum við Reykja­vík­ur­borg. Bréf þess efnis var sent rík­is­sátta­semj­ara og Reykja­vík­ur­borg eftir hádegi í dag. Þetta kemur fram á vef­síðu stétt­ar­fé­lags­ins í dag.

Í til­kynn­ingu Eflingar kemur fram að samn­inga­nefnd félags­ins, sem er skipuð full­trúum starfs­fólks borg­ar­innar, hafi tekið þessa ákvörðun eftir fund með samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar í gær, fimmtu­dag­inn 19. des­em­ber. Á þeim fundi hafi samn­inga­nefnd Eflingar þótt verða end­an­lega ljóst hversu lít­inn skiln­ing borgin hefði sýnt þeim mál­efnum sem nefndin hafi reynt að fá rædd.

Við­ræðu­slitin þýða að rík­is­sátta­semj­ari boðar fundi á tveggja vikna fresti, lögum sam­kvæmt, og færa stétt­ar­fé­lagið nær boðun verk­falla.

Næstum enginn árangur hefur náðst

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að þau hafi frá fyrsta degi tekið þátt í þessum við­ræðum af fullri alvöru, í þeim til­gangi að fá loks­ins lang­þráða leið­rétt­ingu á launum og vinnu­að­stæðum fólks­ins hjá borg­inni. „Við höfum setið við samn­inga­borðið frá því í vor og það er þyngra en tárum taki að segja frá því að því sem næst eng­inn árangur hefur náðst þar. Fund­ur­inn í gær tók af öll tví­mæli um það.“

Hún segir enn fremur að þau hafi í nærri níu mán­uði reynt að brjót­ast gegnum raun­veru­leik­arofið sem ríki meðal hæst settu ráða­manna borg­ar­innar. „Við höfum reynt að benda á hversu kald­rana­leg stefna þeirra er gagn­vart lægst laun­aða starfs­fólk­inu. Það hefur ein­fald­lega ekki tek­ist. Það er ótrú­legt að horfa uppá það hversu mikið virð­ing­ar­leysi for­maður samn­inga­nefndar Reykja­vík­ur­borgar og borg­ar­stjór­inn sjálfur eru fær um að sýna eigin starfs­fólki,“ segir hún.

Starfsfólki í mötuneytum bannað að borða matinn sem það eldar

Þá bendir Efling á að síð­ustu vikur hafi stétt­ar­fé­lagið birt við­töl við félags­menn sem starfa hjá borg­inni. Þau lýsi óhóf­legu álagi, sult­ar­launum og ófag­legri fram­komu stjórn­enda hjá borg­inni. Meðal ann­ars sé starfs­fólki í mötu­neytum, sem til­heyra lægst laun­aða hópnum á íslenskum vinnu­mark­aði, bannað að borða mat­inn sem það eldar og því gert að henda afgangs­mat í ruslið.

Sólveig Anna segir að borgin leyfi sér þessa fárán­legu fram­komu gagn­vart eigin starfs­fólki, þennan yfir­gengi­lega hroka, meðan borg­ar­stjórnin fái sér anda­bringur á kostnað borg­ar­búa og setji sér sjálf reglur um eigin laun. „Það er svo langt milli þessa fólks og raun­veru­leik­ans að þau virð­ast ein­fald­lega ekki skilja hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár