Hvalveiðar heimilaðar næstu fimm árin

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, studd­ist við ráð­gjöf Hafró.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, und­ir­rit­aði í dag reglu­gerð sem heim­ilar áfram­hald­andi veiðar á lang­reyði og hrefnu næstu fimm árin. Nær ákvörð­unin til veiða jafn lengi og fyrri reglu­gerð gerði.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að horft hafi verið til ráð­gjafar Haf­rann­sókna­stofn­unar.

„Ákvörðun þessi bygg­ist á ráð­gjöf Haf­rann­sókna­stofn­unar, en jafn­framt hafði ráð­herra hlið­sjón af nýlegri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um þjóð­hags­leg áhrif hval­veiða. Við ákvörðun sína studd­ist ráð­herra einnig við minn­is­blað frá Haf­rann­sókna­stofnun, sem hann óskaði eftir í kjöl­far skýrslu Hag­fræði­stofn­unar. Þetta minn­is­blað frá Haf­rann­sókna­stofnun hefur verið birt á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins.

Haf­rann­sókna­stofnun ráð­leggur að árlegar veiðar á tíma­bil­inu 2018–2025 verði að hámarki 161 lang­reyður á veiði­svæð­inu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og að hámarki 48 dýr á svæð­inu Austur-Ísland/Færeyjar og 217 hrefnur á íslenska land­grunns­svæð­inu.

Ráðgjöf sína byggir stofn­unin á veiði­stjórn­un­ar­lík­ani vís­inda­nefndar Alþjóða­haf­rann­sókna­ráðs­ins (IWC), sem er eitt það var­færn­asta sem þróað hefur verið fyrir nýt­ingu á nokkrum dýra­stofni í heim­inum.

Síðan hvala­taln­ingar hófust 1987 hefur lang­reyði fjölgað jafnt og þétt við Ísland. Við síð­ustu taln­ingu 2015 var fjöld­inn á skil­greindu stofn­svæði (Mið-Norður-Atl­ants­haf) met­inn um 37 þús­und dýr sem jafn­gildir um þre­földun frá 1987.

Hrefnu hefur fækkað mikið á grunn­sævi við Ísland frá síð­ustu alda­mótum. Ekki er þó talið að stofn­inn hafi minnkað heldur fremur að útbreiðslan hafi færst norður vegna minna fæðu­fram­boðs hér á sumrin (síli og loðna). Ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­unar tekur til­lit til þess­arar þró­unar í útbreiðslu hrefnu­stofns­ins.

Í fyrr­greindu minn­is­blaði Haf­rann­sókna­stofn­unar er vísað til þess að Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands hefur nú í fyrsta sinn gefið út svæð­is­bund­inn válista fyrir íslensk spen­dýr, þar sem beitt er sömu við­miðum og á heims­lista Alþjóð­a­n­átt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins (IUCN). Þar flokk­ast lang­reyður sem „ekki í hættu“ sem stað­festir enn frekar gott ástand stofns­ins hér við land, og það á einnig við um hrefnu, sand­reyði og hnúfu­bak, auk smærri tann­hvala.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár