Sterk króna setur þrýsting á útflutningsgreinar

Útlit er fyrir að gengi krón­unnar geti orðið áfram nokkuð sterkt gagn­vart helstu við­skipta­myntum, sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Íslands­banka. Það mun reyna á sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­búss­ins.

Líklegt er að gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum verðir áfram sterkt, horft til næstu ára. Þetta getur sett þrýst­ing á útflutn­ings­greinar og dregið úr sam­keppn­is­hæfni þeirra.

Þetta er meðal þess sem gert er að umtals­efni í nýrri þjóð­hags­spá Íslands­banka.

Í skýrsl­unni kemur fram að flest bendi til þess að vaxta­stig verði lágt horft til næstu miss­era, enda hefur efna­hags­reikn­ingur þjóð­ar­búss­ins sjaldan eða aldrei litið betur út.

Evran kostar um þessar mundir 135 krónur en Banda­ríkja­dalur 124,3 krónur.

„Raun­gengi krónu er nú mun nær jafn­vægi en það var árin 2017–2018. Raun­gengið er þó fremur hátt í sam­an­burði við síð­ustu ára­tugi, sér í lagi á mæli­kvarða hlut­falls­legs launa­kostn­aðar. Við teljum að raun­gengið verði áfram hátt í sögu­legu sam­hengi. Hrein eigna­staða hag­kerf­is­ins er betri en hún hefur verið í sögu lýð­veld­is­ins. Um mitt árið 2019 námu erlendar eignir umfram skuldir ríf­lega 1/5 af VLF. Seðla­bank­inn hefur einnig úr mynd­ar­legum gjald­eyr­is­forða að spila til að afstýra geng­is­hruni vegna tíma­bund­ins fjár­magns­flótta,“ segir í skýrsl­unni.

Gert er ráð fyrir að það dragi nokkuð úr þrótti hag­kerf­is­ins á þessu ári miðað árið á undan, og að sam­dráttur verði í lands­fram­leiðslu upp á 0,1 pró­sent. Flestar hag­spár sem birst hafa að und­an­förnu gera ráð fyrir svip­uðum veru­leika.

Það er að það verði stöðnun í hag­kerfi þegar kemur að lands­fram­leiðslu og að slíkt verði einnig uppi á ten­ingnum á fast­eigna­mark­aði, en þjóð­hag­spá Íslands­banka gerir ekki ráð fyrir að fast­eigna­verð hækki neitt á þessu ári, en að síðan þok­ist það hægt upp á við sam­hliða batn­andi efna­hag þjóð­ar­innar. Hag­vöxtur verður 1,3 pró­sent á næsta ári og 2,8 pró­sent 2021, gangi spáin eftir.

„Stoðir hag­kerf­is­ins eru í flestum skiln­ingi traustar og horfur eru um ágætan vöxt til lengri tíma. Því ætti áhugi erlendra fjár­festa á Íslandi að vera nægur til að vega upp það útflæði sem verður vegna vilja líf­eyr­is­sjóð­anna til að fjár­festa út fyrir land­stein­ana og ekki verður fjár­magnað með við­skipta­af­gangi. Veru­legar verð­lags- og launa­hækk­anir hér á landi umfram nágranna­lönd myndu hins vegar auka þrýst­ing á nafn­gengið til lækk­unar þar sem þær leiða til sam­svar­andi hækk­unar á raun­gengi að öðru óbreyttu,“ segir í skýrsl­unni.

Gert er ráð fyrir að sam­dráttur verði í útflutn­ingi á þessu ári sem nemur um 6 pró­sentum miðað við í fyrra, og þar spilar nokkuð sterkt raun­gengi stóra rullu. Spáin gerir hins vegar ráð fyrir aukn­ingu um lítið eitt á næsta ári, eða 1,1 pró­sent.

Spáin gerir ráð fyrir að raun­vaxta­stig verði áfram lágt, eða í kringum 1 pró­sent á næstu árum. Eins og greint var frá í morgun ákvað pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands að lækka meg­in­vexti í 3,25 pró­sent en verð­bólga mælist nú 3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár