Þriðjungsfjölgun í Siðmennt á rúmu einu og hálfu ári

Af trú­fé­lögum bætti Stofnun múslima á Íslandi við sig hlut­falls­lega flestum með­limum á síð­ustu mán­uðum. Meðlimum þjóð­kirkj­unnar heldur áfram að fækka en hlut­falls­lega var mesta fækk­unin hjá Zúistum.

Meðlimum Sið­menntar hefur fjölgað um þriðj­ung síðan 1. des­em­ber 2018. Þetta kemur fram í tölum um skrán­ingar í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem Þjóðskrá birti í vik­unni. Þann 1. júlí voru með­limir Sið­menntar alls 3.746 sam­an­borið við 3.470 þann 1. des­em­ber 2019 og 2.815 þann 1. des­em­ber 2018.

Hlut­falls­lega var mest fjölgun með­lima í Stofnun múslima á Íslandi. Meðlimum fjölg­aði um meira en þriðj­ung frá því í des­em­ber síð­ast­liðnum, úr 251 í 341. Frá því í des­em­ber 2018 hefur með­limum fjölgað um hátt í 80 pró­sent en þá var fjöldi með­lima 191.

Enn fækkar í þjóðkirkjunni

Þjóð­kirkjan er eftir sem áður stærsta trú­fé­lag lands­ins. Meðlimum hefur hins vegar fækkað á und­an­förnum árum. Þeir voru rúm­lega 230 þús­und þann 1. júlí eða 62,9 pró­sent lands­manna. Þann fyrsta des­em­ber í fyrra voru með­lim­irnir rúm­lega 231 þús­und og þann 1. des­em­ber 2018 voru þeir tæp­lega 233 þús­und.

En þar með er ekki öll sagan sögð, því lands­mönnum fer einnig fjölg­andi. Ef horft er á hlut­fall lands­manna í þjóð­kirkj­unni sést að það hefur farið úr 65,2 pró­sentum í des­em­ber 2018 niður í 62,9 pró­sent í júlí 2020.

[links]

Fjölgun hefur orðið í þeim trú­fé­lögum sem á eftir Þjóð­kirkj­unni koma í stærð. Næst­flestir eru skráðir í Kaþólsku kirkj­una, alls tæp­lega 15 þús­und ein­stak­lingar. Söfn­uð­ur­inn hefur stækkað ár frá ári og er helsta ástæðan fyrir því fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem setj­ast hér að.

Mikil fækkun hjá Zúistum

Mesta fækk­unin á meðal þeirra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga sem hafa 10 með­limi eða fleiri var hjá trú­fé­lag­inu Zuism. Síðan 1. des­em­ber í fyrra hefur með­limum fækkað um 13,3 pró­sent, fóru úr 1.255 niður í 1.088. Þann 1. Desember 2018 voru 1.630 ein­stak­lingar skráðir í trú­fé­lagið.

Mikið hefur verið fjallað um mál­efni félags­ins á und­an­förnum miss­erum. Í upp­hafi var trú­fé­lagið stofnað með það að mark­miði að berj­ast fyrir því að hið opin­bera felldi úr gildi lög sem veita trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi og fjár­styrki. Þá end­ur­greiddi félagið hluta sókn­ar­gjalda til með­lima félags­ins og það lof­orð skil­aði trú­fé­lag­inu á fjórða þús­und sókn­ar­barna.

Fjöldi þeirra sem standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga er tæp­lega 27 þús­und og rétt um 54 þús­und ein­stak­lingar eru skráðir með ótil­greint trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár