Stefnt að opnun á bókhaldi ríkisins í mars

Stefnt er að því að opna bók­hald ráðu­neyta og stofn­anna rík­is­ins í mars. Umfang bók­halds­ins er um 50 millj­arðar króna af reikn­ingum sem birtir verða á árs­grunni og það verður birt á net­inu. Þetta kom fram í ávarpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og við­skipta­ráð­herra, á Skatta­degi Deloitte sem fram fór í dag. Mbl.is greinir frá.

Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að unnið væri að því innan fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að opna bók­hald rík­is­ins upp á gátt. Þegar það hefur verið gert verður m.a. hægt að fletta upp ein­stökum kostn­að­ar­reikn­ingum ráðu­neyta. Þetta kom fram í fram­sögu Bene­dikts á opnum fundi sem þing­flokkur Við­reisnar hélt með flokks­mönnum sínum á þriðju­dag. Þar nefndi Benedikt dæmi að ef keyptur er þjón­usta leigu­bíls eða ný ljós­rit­un­ar­vél þá sé hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvað hafi verið nákvæm­lega verið keypt, hver keypti, til hvers og hvar ljós­rit­un­ar­vélin sé not­uð.

Bene­dikt sagði einnig á fund­inum með flokks­mönnum sínum að hann ætl­aði að opna á allar upp­lýs­ingar um hvernig skipað yrði í hin ýmsu ráð og nefnd­ir. Þá yrði eig­enda­stefna rík­is­ins skýr og opin­ber. Til dæmis yrði sölu­ferlið á bönk­unum sem ríkið á opið frá upp­hafi, gerð í góðri sátt flokka á þingi og í góðri sátt við þjóð­ina. Bene­dikt sagði það ekki skipta höf­uð­máli þótt það myndi taka tíu ár að selja þá þannig að það yrði gert almenni­lega, en að hann væri þeirrar skoð­unar að það væri betra fyrir þjóð­ina að skulda minna og eiga færri banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár