Telja sig ekki bundin af jafnréttislögum við skipan í dómnefnd um hæfi dómara

Hæsti­réttur, dóm­stóla­ráð og Lög­manna­fé­lag Íslands telja sig ekki bundin af jafn­rétt­islögum þegar kemur að því að skipa full­trúa í nefnd sem fjallar um hæfi umsækj­enda um emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara og hér­aðs­dóm­ara. Þau telja að ákvæði um nefnd­ina í lögum um dóm­stóla gangi framar jafn­rétt­islög­unum og eftir bréfa­skriftir ákvað dóms­mála­ráðu­neytið árið 2010 að láta undan og skipa þá karla í nefnd­ina sem höfðu verið til­nefndir til að byrja með.

Þetta kemur fram í bréfi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins frá árinu 2010 sem Kjarninn hefur undir höndum, og lesa má neðst í frétt­inni. Í fimmt­ándu grein jafn­rétt­islag­anna er kveðið á um að hlut­fall hvors kyns fyrir sig skuli ekki vera minna en 40 pró­sent í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opin­bera, þegar full­trú­arnir eru fleiri en þrír.

Eins og Kastljós hefur fjallað um í gær og á vef RÚV í dag sitja aðeins karlar í þess­ari nefnd, sem ákvað á dög­unum að Karl Axelsson hæsta­rétt­ar­lög­maður væri hæf­astur þriggja umsækj­enda til að gegna emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Ing­veldur Ein­ars­dóttir og Davíð Þór Björg­vins­son sóttu einnig um emb­ættið. 

Hvernig kom það til að eingöngu karlar eru í nefndinni?


Breyt­ingar voru gerðar á lögum um dóm­stóla árið 2010 og kveðið á um skipan nefndar sem fjallar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara og hér­aðs­dóm­ara. Fimm ein­stak­lingar skulu vera í nefnd­inni og skipar Hæsti­réttur Íslands tvo þeirra og Lög­manna­fé­lagið og dóm­stóla­ráð einn full­trúa hvort. Fimmti ein­stak­ling­ur­inn er kos­inn af Alþingi. Samkvæmt breyttum lögum er ráð­herra bund­inn af áliti nefnd­ar­innar þegar kemur að skipan dóm­ara á Íslandi, og ef ráð­herra vill skipa ein­hvern sem nefndin telur ekki hæf­astan þá verður að fá sam­þykki Alþingis. Þessar breyt­ingar voru gerðar til þess að efla sjálf­stæði dóm­stóla gagn­vart öðrum hand­höfum rík­is­valds­ins.

Þegar breyt­ing­arnar voru gerðar óskaði dóms­mála­ráðu­neytið eftir til­nefn­ingum frá Hæsta­rétti, Lög­manna­fé­lag­inu og dóm­stóla­ráði. Þegar ljóst var að nefndin myndi ekki upp­fylla ákvæði jafn­rétt­islaga óskaði ráðu­neytið eftir því að til­nefnt yrði á nýjan leik, og þá bæði karl og konu. Eftir tals­verðar bréfa­skriftir, að minnsta kosti í ein­hverjum til­vikum, óskaði ráðu­neytið eftir því að „til­nefn­ing­ar­að­ilar létu í ljós afstöðu sína til þess hvernig til­nefn­ingar þeirra sam­rýmd­ust ákvæðum laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.“ Skýr­ing­arnar bár­ust frá öllum þremur „og var meg­in­af­staða þeirra að þeir væru óbundnir af ákvæðum 15. gr. jafn­rétt­islaga.“

Hæsti­réttur taldi að vegna þess að ráð­herra væri bund­inn af áliti dóm­nefnd­ar­innar væri ekki rétt að „til­nefna fleiri til setu í nefnd­inni en skipa á sam­kvæmt til­nefn­ingu rétt­ar­ins.“ Þar sem ráð­herra sé bund­inn af dóm­nefnd­inni víki laga­á­kvæði um nefnd­ina laga­á­kvæðum um jafna stöðu karla og kvenna til hliðar.

Dóm­stóla­ráð sagð­ist ekki telja heim­ilt af ráðu­neyt­inu „að tak­marka rétt þess á til­nefn­ingu í nefnd“ og því verði „hin almennu lög“ um jafn­rétti að víkja gagn­vart því. Ef jafn­rétt­islögin hefðu for­gang „kynnu til­nefn­ing­ar­að­ilum að vera settar enn þrengri skorður við end­ur­til­nefn­ingar í nefnd­ina en miðað er við ef sam­setn­ing nefnd­ar­innar væri á þeim tíma þannig að kynja­hlut­falli laga nr. 10/2008 væri hætta búin.“

Lög­manna­fé­lagið taldi einnig að ráð­herra væri bund­inn af „vali þeirra aðila sem til­nefna eiga full­trúa í nefnd­ina.“ Ákvæðið kveði skýrt á um að skyldur Lög­manna­fé­lags­ins stæðu ein­göngu til þess að til­nefna einn aðal- og einn vara­mann, en ekki hóp ein­stak­linga. Laga­á­kvæðið um nefnd­ina séu sér­lög og sam­kvæmt gild­andi lög­skýr­ing­ar­sjón­ar­miðum gangi þau framar almennum lögum, þar með talið jafn­rétt­islögum. Það að fara eftir óskum ráðu­neyt­is­ins um að skipa konu myndi ganga gegn inn­taki lag­anna og rýri valdið sem til­nefn­ing­ar­að­ilum sé fengið.

Ráðuneytið lét undan


Dóms­mála­ráðu­neytið lét undan og skip­aði þá full­trúa sem Hæsti­réttur, Lög­manna­fé­lagið og dóm­stóla­ráð vildu skipa til að byrja með. „Er það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að skipa nú þegar þá full­trúa sem til­nefndir hafa verið í nefnd til að fjalla um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti,“ segir í nið­ur­lagi bréfs­ins frá dóms­mála­ráðu­neytinsu.

„Þar sem fyrir liggja ein­dregin sjón­ar­mið Hæsta­réttar, Dóm­stóla­ráðs og Lög­manna­fé­lags Íslands svo sem að ofan greinir hefur ráðu­neytið ákveðið að skoða hvort rétt sé að breyta ákværðum dóm­stóla­laga sem kveða á um hvernig til­nefnt er í nefnd­ina með hlið­sjón af ákvæðum og mark­miðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna.“

Í upp­hafi voru skip­aðir í nefnd­ina þeir Gunn­laugur Claessen fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari og Stefán Már Stef­áns­son fyrr­ver­andi pró­fessor af Hæsta­rétti, Allan Vagn Magn­ús­son hér­aðs­dóm­ari af dóm­stóla­ráði og Óskar Sig­urðs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður af Lög­manna­fé­lag­inu. Alþingi kaus svo Pál Þór­halls­son, og valdi því líka karl til setu í nefnd­inni. Nú hefur Símon Sig­valda­son hér­aðs­dóm­ari tekið við af Allani Vagni.

Hins vegar völdu allir fimm aðilar konur sem vara­menn í dóm­nefnd­inni. Það voru þær Ingi­björg Bene­dikts­dóttir hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Kristín Bene­dikts­dóttir lektor, Ingi­björg Pálma­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir hér­aðs­dóm­ari og Guðrún Björk Bjarna­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár