„Græt reglulega yfir fegurð dóttur minnar“

Net­verjar nota myllu­merkið #all­irgráta til að benda á skað­lega karl­mennsku.

Nemendur á kynja­fræði­þingi fram­hald­s­kól­anna bjuggu í dag til myllu­merkið ‪#‎all­irgráta‬ til þess að hefja hreyf­ingu sem bendir á skað­lega karl­mennsku í dag­lega líf­inu. Nú þegar hafa fjöl­margir tekið þátt, meðal ann­ars Halldór Hall­dórs­son grínisti, Máni Pét­urs­son útvarps­maður á X-inu og tón­list­ar­mað­ur­inn Gauti Þeyr Másson. „Ég hef átt VW Golf, Chrysler, Dodge, Subaru, Kia og ég hef grátið í þeim öllum,“ skrifar Halldór. „Ég er að gráta þarna. Hágráta meira að segja,“ segir Máni og deilir mynd af sér í faðm­lögum við annan karl­mann á fót­bolta­vell­inum. „Tveir þættir sem fá mig til að væta kinn­arnar. Ég græt í næstum öllum flugum og græt reglu­lega yfir feg­urð dóttur minnar,“ segir Gauti. 

Skaðlegar karlmennskuhugmyndir

Breski grínist­inn Josh Thomas er á meðal þeirra sem hefur vakið athygli á mál­inu. Hann velti því fyrir sér hvers vegna þrefalt fleiri karlar fremja sjálfs­víg en konur, því í raun­inni hafa karlar það betur en konur. „Þú færð hærri laun. Þú færð karl­kyns for­rétt­indi. Feðra­veldið er á þinni hlið og þú ferð ekki á túr,“ sagði hann meðal ann­ars. Hann telur ástæð­una liggja við­teknum karl­mennsku­hug­myndum. 

„Fram til átta eða níu ára ald­urs gráta strákar jafn mikið og stelpur. Síðan er þeim kennt að hætta.“

„Fram til átta eða níu ára ald­urs gráta strákar jafn mikið og stelpur. Síðan er þeim kennt að hætta. Þeir mega það ekki lengur,“ segir Thomans. „Óttinn við að virð­ast veik­burða, kven­legur eða homma­legur kemur í veg fyrir að karl­menn tala um til­finn­ingar sínar. Og síðan drepa þeir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár