Breska þingið samþykkir að óska eftir frestun

Breska þingið sam­þykkti í gær að óska eftir frestun útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Breska þingið hefur í tvígang fellt Brexit-samn­ing Theresu May for­sæt­is­ráð­herra en May hyggst leggja þriðja samn­ing­inn fyrir þingið á næstu dögum.

Theresa May
Theresa May Mynd: EPA

Neðri deild breska þings­ins sam­þykkti í gær til­lögu um að óska eftir að útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu yrði frestað. Útgöngu­dagur Breta er settur 29. mars næst­kom­andi. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands mun því í þriðja sinna leggja útgöngu­samn­ing fyrir breska þingið á næstu dögum og í kjöl­farið óska eftir frestun. Frá þessu er greint á vef BBC.

Samþykktu að hafna samningslausri útgöngu

[links]Á þriðju­dag­inn hafn­aði breska þingið í annað sinn Brexit-samn­ing Theresu May um hvernig útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu ætti að vera háttað. Á mið­viku­dag­inn lagði May síðan fram til­lögu um að þingið hafn­aði útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings þann 29. mars næst­kom­andi en héldi opnum þeim mögu­leika að Bretland gengi úr sam­band­inu án samn­ings síðar.

Áður en kosið var um til­lögu May sam­þykkti þingið breyt­ing­ar­til­lögu um að hafna því að Bretland gengi nokkurn tíma úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings. Sú breyt­ing­ar­til­lagan var síðan sam­þykkt af þing­inu með 43 atkvæðum en sam­kvæmt umfjöllun BBC er það er þó ekki laga­lega bind­andi kosn­ing. For­sæt­is­ráð­herr­ann lagði áherslu á það eftir atkvæða­greiðsl­una og sagði að sam­kvæmt gild­andi lögum Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins gengi landið úr ESB án samn­ings „nema eitt­hvað annað yrði ákveðið“.

Í gær sam­þykkti síðan neðri deild þings­ins til­lögu um að leita á náðir Evr­ópu­sam­bands­ins um frestun útgöngu. Tillagan var sam­þykkt með 412 atkvæðum gegn 202.

Þriðja atkvæðagreiðslan um samning í næstu viku

Þó að þingið hafi nú tvisvar kol­fellt Brexit-samn­ing for­sæt­is­ráð­herr­ans þá boðar May þriðju atkvæða­greiðsl­una um nýjan samn­ing í næstu viku. Samkvæmt BBC vill hún leggja nýjan samn­ing fyrir þingið sem fyrst til að að freista þess að þurfa ekki að fresta útgöngu enn frekar. May segir að ef þing­deildin sam­þykki samn­ing­inn eigi síðar en á mið­viku­dag­inn kemur ætli hún að óska eftir því að útgöng­unni verði frestað til 30. júní næst­kom­andi. Ef þingið fellur hins vegar samn­ing­inn þarf rík­is­stjórnin að fara fram á að fresta útgöng­unni til lengri tíma. May var­aði því þing­heim­inn við í gær að ef samn­ing­ur­inn er ekki sam­þykktur í næstu viku, þá gætu Bretar þurft að taka þátt í kosn­ingum til Evr­ópu­þings­ins sem eiga að fara fram í maí.

Öll hin aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bans­ins þurfa það sam­þykkja beiðni Bret­lands um að fresta útgöng­unni úr Evr­ópu­sam­band­inu. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í gær að sam­bandið myndi sam­þykkja að Brexit yrði frestað í langan tíma ef Bretar teldu það nauð­syn­legt til að ná sam­stöðu um útgöngu. Aðrir leið­togar sam­band­ins hafa þó varað við að að þeir geti ekki fall­ist á beiðni um að fresta Brexit nema breska þingið kom­ast að sam­komu­lagi um hvað þeir vilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár