Enn og aftur niðurlægjandi tap fyrir May vegna Brexit

Samningi um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu var hafnað í breska þing­inu.

Brexit samn­ingi rík­is­stjórnar Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu var hafnað í kvöld, og mun­aði 149 atkvæðum að samn­ing­ur­inn yrði sam­þykktur. Neitunin var því afger­andi í neðri deild breska þings­ins.

Samtals voru 391 á móti samn­ingnum en 242 studdu hann.

Samkvæmt lögum mun Bretland yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið 29. mars næst­kom­andi. Fari svo að eng­inn samn­ingur verði sam­þykktur í breska þing­inu, er sá mögu­leiki opinn að Bretland fari úr sam­band­inu án samn­ings, með til­heyr­andi óvissu. May hefur talað fyrir því ítrekað upp á síðkastið að það væri óæski­legt.

Það var May sjálf sem lagði fram frum­varp í þing­inu í byrjun samn­inga­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið um að Bretland myndi fara úr sam­band­inu 29. mars, og voru rökin þau að hún vildi marka við­ræðum við sam­bandið ákveð­inn tímara­mma. Nú liggur fyrir að til­lögur May hafa ekki notið hljóm­grunns, ítrekað, í þing­inu, og óvissa er uppi um fram­haldið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár