Skráningar erlendra ríkisborgara drógust saman um 30 prósent

Skrán­ingar erlendra rík­is­borg­ara hafa dreg­ist tölu­vert saman á milli ára. Þó voru rúm­lega 6000 skráðir til lands­ins á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum þessa árs en alls eru 48.996 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi.

Sam­dráttur var í skrán­ingu erlendra rík­is­borg­ara á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Það sem af er ári hafa 6.279 erlendri rík­is­borg­arar verið skráðir til lands­ins en á sama tíma í fyrra voru þeir 8.895. Það er sam­dráttur upp á 29,5 pró­sent. Þetta kemur fram á vef Þjóð­skrár.

Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­sent.

Ástæðan er talin vera sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­upp­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­gangi, sér­stak­lega í þjón­ustu­störfum tengdum ferða­þjón­ustu og í bygg­inga­iðn­aði. Nú þegar hag­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá hefur hægst á fjölgun erlendra rík­is­borg­ara en þeim heldur samt sem áður áfram að fjölga. [adspot]

Ríkisborgurum frá Venesúela fjölgað um 277 prósent

[links]Alls voru 48.996 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi þann í byrjun nóv­em­ber. Flestir erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.537 og 4.587 ein­stak­lingar eru með lit­háískt rík­is­fang.

Mesta hlut­falls­lega fjölg­unin á þessu ári var þá hjá rík­is­borg­urum frá Venes­ú­ela eða um 277 pró­sent frá 1. des­em­ber 2018. Í nóv­em­ber voru þeir 147 tals­ins en voru 39 í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Þá hefur íbúum með frá öðrum Norð­ur­löndum hefur fækkað hér á landi. Meðal ann­ars hefur dönskum rík­is­borg­urum fækkað um 3,5 pró­sent, norskum rík­is­borg­urum um 6 pró­sent og sænskum rík­is­borg­urum um 5,3 pró­sent. Hins vegar fjölg­aði finnskum rík­is­borg­urum um 2,1 pró­sent.

Aðfluttir fleiri en brottfluttir á hverju ári

Hag­stofan áætlar að íbúar lands­ins verði 434 þús­und tals­ins árið 2068 gangi mið­spá hennar eftir um þróun mann­fjöld­ans. Til sam­an­burðar var mann­fjöld­inn 357 þús­und hinn 1. jan­úar 2019. Í háspá Hag­stof­unnar er reiknað með að íbúar verði 506 þús­und í lok spá­tíma­bils­ins en 366 þús­und sam­kvæmt lág­spánni.

Hag­stofan spáir jafn­framt að fjöldi aðfluttra verði hærri en fjöldi brott­fluttra ár hvert til árs­ins 2068. Það er fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda. Þá verða íslenskir rík­is­borg­arar sem flytja frá land­inu áfram fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár