Forseti Alþingis á hlut í Marel en skráði hann ekki í hagsmunaskrá vegna „athugunarleysis“

Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur um margra ára skeið átt hlut í Marel og eign hans í félag­inu er nú metin á sjö millj­ónir króna. Hann skráði þá eign ekki í hags­muna­skrá þings­ins fyrr en nýverið. Alls eiga fimm þing­menn hluta­bréf í Icelandair Group.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, er sá þing­maður sem á verð­mætastan hlut í skráðu félagi á Íslandi. Alls á Stein­grímur 7.900 hluti í Marel sem eru um sjö milljón króna virði.

Þingmenn þurfa að gera grein fyrir ákveðnum eignum sínum í hags­muna­skrán­ingu þeirra. Á meðal þeirra eigna er hluta­fjár­eign þar sem verð­mæti hlutar nemur að mark­aðsvirði meira en einni milljón króna miðað við 31. des­em­ber ár hvert.

Rannsókn Kjarnans sýnir að Stein­grímur hafði ekki gert grein fyrir hluta­fjár­eign sinni í hags­muna­skránni um miðjan síð­asta mánuð – nánar til­tekið 18. maí 2021 – þrátt fyrir að virði hlutar hans í Marel sé vel umfram það við­mið um mark­aðsvirði sem reglur um hags­muna­skrán­ingu segja til um.

Síðan þá hefur hags­muna­skrá Stein­gríms verið upp­færð – það var gert 23. maí 2021 – og þar kemur nú fram að hlutur hans í Marel sé 7,1 milljón króna virði. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Stein­grím og spurði hvort hann hefði keypt hlut­ina í Marel í vor.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir Stein­grímur að hann hafi átt lít­ils háttar hlut í Marel í áraraðir, allt frá því að það var upp­renn­andi sprota­fyr­ir­tæki sem hann hafði mikið álit á og vildi styðja. „Sú eign mín var opin­ber og aðgengi­leg á heima­síðu VG um ára­bil, en þar gerðum við þing­menn og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar flokks­ins grein fyrir okkar hags­muna­tengslum löngu áður en slíkt var skylt sam­kvæmt lögum.“

Síðan hafi það gerst hvort tveggja að eign­ar­hlutur hans í Marel jókst tals­vert og að gengið á félag­inu hafi tekið sprett. „Þar kom að mér bar að færa það inn í hags­muna­skrán­ingu mín sem þing­manns. Á því varð reyndar nokkur dráttur sökum athug­an­ar­leysis af minni hálfu, en sem nú hefur verið úr bætt fyrir nokkru.“

Stein­grímur seg­ist telja að hann geti full­yrt að mál­efni Marel hafi aldrei borið upp sér­tækt á þingi, né á neinn hátt annan þannig að hann hafi þar haft aðkomu að.

Vildi taka það til alvarlegrar skoðunar ef skráningu yrði ekki sinnt

For­sætis­nefnd Alþingis sam­þykkti reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna í mars 2009. Á meðal þeirra reglna sem sam­þykktar voru þá, og gilda áttu frá 1. maí sama ár, var að þing­mönnum var gert að skrá hluta­bréfa­eign þar sem verð­mæti hlutar væri að mark­aðsvirði yfir einni milljón króna.

Stein­grímur átti alls 4.100 hluti í Marel að nafn­virði árið 2006 sam­kvæmt hags­muna­skrán­ingu á heima­síðu Vinstri grænna á þeim tíma. Í des­em­ber 2008 átti hann hins vegar 7.900 hluti, eða sama magn og hann á nú. Það liggur því fyrir að nafn­virði hluta Stein­gríms í Marel hefur verið hið sama frá því að reglur um hags­muna­skrán­ing­una voru inn­leiddar fyrir tólf árum síðan.

Virði hluta í Marel hefur stór­auk­ist á und­an­förnum árum og þeir sem eiga hluta­bréf í félag­inu hafa ávaxtað pund sitt vel. Mark­aðsvirði þess hlutar sem Stein­grímur á fór yfir eina milljón króna á árinu 2014 og hefur hald­ist yfir því virði alla tíð síðan. Virðið fór því yfir það við­mið sem kallar á hags­muna­skrán­ingu sjö árum áður en að Stein­grímur skráði hlut­inn. Virði hlut­ar­ins var, líkt og áður sagði, 7,1 milljón króna í lok síð­asta árs og er nú um 6,7 millj­ónir króna.

Stein­grímur hættir á þingi í haust eftir að hafa setið þar sleitu­laust frá árinu 1983. Hann hefur oft tekið þátt í umræðum um hags­muni þing­manna úr pontu. Eitt slíkt skipti átti sér stað 13. apríl 2016, í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að Panama-skjölin höfðu opin­berað að hann hefði átt aflands­fé­lagið Wintris.

Þann dag tók Svandís Svav­ars­dóttir, sam­flokks­maður Stein­gríms og nú heil­brigð­is­ráð­herra, til máls undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta og óskaði eftir svörum við til­teknum spurn­ingum sem lúta að túlkun þing­manna á reglum um hvernig skrá skuli hags­muni þing­manna.

Síðar í umræð­unni tók Stein­grímur til máls og sagði meðal ann­ars að ef upp kæmu „rök­studdar grun­semdir um brot á réttri skrán­ingu þá verður að taka það til alvar­legrar skoð­unar, rann­saka það, því að ann­ars væru regl­urnar merk­ing­ar­lausar — ef það gerð­ist ekk­ert — ef fyrir lægi að þing­menn, ég tala nú ekki um ráð­herrar, hefðu ekki sinnt réttri skrán­ingu. Þessar reglur eru í eðli sínu lág­marks­reglur. Það liggur í hlut­ar­ins eðli. Það er ekk­ert sem bannar þing­mönnum að veita ítar­legri upp­lýs­ingar eins og við þing­menn VG höfum gert frá byrjun, frá stofnun þess flokks. Á heima­síðu flokks­ins höfum við birt miklu ítar­legri upp­lýs­ingar um tekjur okkar, eignir og hags­muna­tengsl.“

Þegar Stein­grímur flutti þessa ræðu hafði virði bréfa hans í Marel verið yfir einni milljón króna í tvö ár og var tæp­lega tvær millj­ónir þennan dag í apríl 2016.

Hægt er að sjá ræðu Stein­gríms hér að neðan.

Fimm eiga í Icelandair Group

Jón Gunn­ars­son, þing­maður og rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á hluta­bréf í fjórum skráðum félögum í eigin nafni, sem voru í upp­hafi þessa mán­aðar verð­metin á hátt í fjórar millj­ónir króna. Tveir hlutir í eigu Jóns eru meira en milljón króna virði, ann­ars vegar í Icelandair og hins vegar í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Brimi.

Einnig er Jón skráður hlut­hafi í Arion banka og Reitum, sam­kvæmt síð­ustu sam­stæðu­reikn­ingum þess­ara félaga, en vert er að taka fram að síð­asti útgefni sam­stæðu­reikn­ingur Reita er frá 2019. Þeir hlutir eru minna en milljón króna virði.

Stundin greindi nýverið frá því að Jón hefði ekki skráð hluta­bréfa­eign sína í Icelandair Group í hags­muna­skrá í sam­ræmi við gild­andi reglur. Sömu sögu er að segja um eign hans í Brimi.

Frá því að frétt Stund­ar­innar, sem birt­ist 31. maí síð­ast­lið­inn, fór í loftið hefur Jón bætt úr þessu og eign hans í félög­unum tveimur er nú til­greind í hags­muna­skránni. Þar kemur hins vegar ekki fram hvert virði eign­anna sé. Hann sagði í sam­tali við mið­il­inn að um yfir­sjón hefði verið að ræða að hans hálfu.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og ritari flokksins.
Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og rit­ari flokks­ins.

Í frétt Stund­ar­innar var einnig greint frá því að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefði sömu­leiðis ekki skráð eign sína í Icelandair Group í sam­ræmi við gild­andi reglur. Inga sagð­ist hafa keypt hlut í Icelandair vorið 2020 og að hún hafi þynnst niður í hluta­fjár­aukn­ingu Icelandair Group í sept­em­ber í fyrra.

Fleiri þing­menn eiga hlut í Icelandair Group en þau Jón og Inga. Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og nýr odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, átti 800 þús­und hluti í félag­inu sem voru um 1,3 milljón króna virði í lok árs í fyrra. Sú eign er og hefur verið skráð und­an­farna mán­uði, en Njáll hafði ekki skráð neina eign í Ícelandair Group í hags­muna­skrán­ingu í nóv­em­ber í fyrra.

Flugfélagið Icelandair Group er vinsælt á meðal þingmanna sem eiga hlutabréf.
Flug­fé­lagið Icelandair Group er vin­sælt á meðal þing­manna sem eiga hluta­bréf.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, á svo 100.000 hluti í Icelandair Group sem voru 164 þús­und króna virði um síð­ustu ára­mót, og þar af leið­andi undir þeim mörkum sem þarf að skrá. Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar átti líka lít­inn hlut í Icelandair Group um síð­ustu ára­mót, alls 13 þús­und hluti sem metnir voru á rúm­lega 21 þús­und krónur.

Telur birtinguna fara gegn lögum

Ekki er víst hvort heild­ar­hlut­haf­alist­arnir sem not­aðir voru til að finna hluta­bréfa­eign þing­manna verði aðgengi­legir í langan tíma, en líkt og Kjarninn fjall­aði um á dög­unum telur Per­sónu­vernd birt­ingu þeirra fara gegn lögum.

Í áliti sem stofn­unin birti í þar­síð­ustu viku segir að orða­lag laga­breyt­ing­anna feli að óbreyttu ekki í sér nægi­lega skýra heim­ild til birt­ing­ar­lista yfir alla hlut­hafa félaga sem undir lögin falla með árs­reikn­ingum þeirra. Þess má geta að árið 2018 fetti stofn­unin fingur út í það að Kaup­höllin sjálf birti reglu­lega upp­færðar upp­lýs­ingar um 20 stærstu hlut­hafa skráðra félaga á vef sínum.

Per­sónu­vernd lagði fyrir rík­is­skatt­stjóra að láta af slíkri birt­ingu upp­lýs­inga innan mán­aðar frá ákvörð­un­inni, það er að segja fyrir 18. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár