Bæjarstjórinn í Kópavogi á hlutabréf fyrir meira en 50 milljónir

Ármann Kr. Ólafsson telur ekki að eign hans á hluta­bréfum í sex skráðum félögum, þar á meðal 32 millj­óna króna eign í banka, kalli á að hann upp­lýsi sam­starfs­menn sína um eign­irnar.

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, á hluta­bréf í skráðum félögum í Kaup­höll­inni hér á landi fyrir rúmar 50 millj­ónir króna.

Kjarninn sendi Ármanni, sem hefur verið bæj­ar­stjóri í Kópavogi frá árinu 2012, fyr­ir­spurn um þessa eign 16. júní síð­ast­lið­inn þar sem hann hafði ekki birt yfir­lit yfir fjár­hags­lega hags­muni sína á þar til gerðu vef­svæði hjá bænum.

Ármann svar­aði fyr­ir­spurn­inni 25. júní og var þá búinn að fylla út hags­muna­skrána. Vert er að taka fram að bæj­ar­stjór­inn þarf ekki að geta þess­ara til­teknu fjár­hags­legu hags­muna, sam­kvæmt drögum að reglum um hags­muna­skrán­ingu kjör­inna full­trúa sem bæj­ar­stjórn Kópavogs sam­þykkti sam­hljóða fyrr á þessu ári.

Þær reglur ganga skemur en reglur um hags­muna­skrán­ingu bæði þing­manna og borg­ar­full­trúa í Reykja­vík, en bæði þing­menn og borg­ar­full­trúar þurfa að gefa upp hluta­bréfa­eign ef mark­aðsvirði hluta þeirra er yfir einni milljón króna.

Hluta­bréfa­eign Ármanns var á meðal þess sem kom í ljós við úttekt sem Kjarninn réð­ist í á hluta­bréfa­eign stjórn­mála­fólks á Íslandi, en í sam­stæðu­reikn­ingum allra skráðra félaga í Kaup­höll­inni er hægt að sjá heild­ar­hlut­haf­alista og þar með nöfn allra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem áttu stöðu í félög­unum um síð­ustu ára­mót, eða síðar, eftir atvikum.

Við úttekt­ina setti Kjarninn saman nafna­lista með öllum þing­mönnum þjóð­ar­innar, auk kjör­inna full­trúa í fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Þessi listi af fólki var síðan bor­inn saman við hlut­haf­alista skráðra félaga. Ármann Kr. trónir ræki­lega á toppnum, þegar kemur að fjár­hags­legum hags­munum íslenskra stjórn­mála­manna, sem bundnir eru við gengi skráðra félaga á mark­aði.

Á í bæði Kviku og Arion

Bæj­ar­stjór­inn átti nokkuð stóran hlut í Kviku banka um síð­ustu ára­mót, eða rösk­lega 1,8 milljón hluta sem voru rúm­lega 32 millj­óna króna virði þegar Kjarninn réð­ist í úttekt­ina. Einnig er hann hlut­hafi í fimm skráðum félögum til við­bótar, Arion banka, Icelandair Group, Síld­ar­vinnsl­unni og Marel. Í síð­ast­nefnda fyr­ir­tæk­inu var Ármann skráður fyrir hlut sem var met­inn á rúmar 12 millj­ónir króna í upp­hafi þessa mán­aðar.

Aðspurður hvort hann horfi þannig á að hluta­bréfa­eignin geti leitt til þess að Ármann verði að ein­hverju leyti van­hæfur til þess að fjalla um mál sem snert geta hags­muni þeirra félaga sem þú átt hlut í segir hann ekki svo vera. „Hluta­bréfa­eign mín í skráðum félögum er mjög óveru­leg í hlut­falli við stærð félag­anna og leiðir ekki til van­hæfis og slíkt hefur ekki gerst.“

Ármann seg­ist ekki hafa greint sam­starfs­mönnum sínum í bæj­ar­stjórn frá eign sinni á hlutum í skráðum félögum, enda líti hann ekki svo á að hún hafi áhrif á hæfi hans sem kjör­ins full­trúa. „Auk­in­heldur er hún langt undir við­mið­un­ar­mörkum bæj­ar­stjórnar,“ segir í svari bæj­ar­stjór­ans.

Kjarninn spurði Ármann einnig hvort honum fynd­ist að hluta­bréfa­eign kjör­inna full­trúa í hans sveit­ar­fé­lagi ætti almennt að vera uppi á borðum gagn­vart kjós­endum eins og bæj­ar­stjórn hefur sam­þykkt að sumir aðrir fjár­hags­legir hags­munir ættu að vera. Í svari hans sagði að bæj­ar­stjórn Kópavogs hafi tekið afstöðu til þessa efnis og sam­þykkt að kjörnir full­trúar geri opin­bera hluti sína í félagi, fjár­mála- eða sjálfs­eign­ar­stofnun í atvinnu­rekstri sem kjör­inn full­trúi á að minnsta kosti fjórð­ungs hlut í.

Fleiri sveitarstjórnarmenn eiga hlutabréf

Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri í Garðabæ, var um síð­ustu ára­mót skráður fyrir hluta­bréfum sem höfðu rúm­lega 2,5 millj­óna króna mark­aðsvirði þegar Kjarninn réð­ist í úttekt sína. Í Garðabæ eru engar reglur í gildi um hags­muna­skrán­ingu kjör­inna full­trúa.

Enginn borg­ar­full­trúi í Reykja­vík átti um síð­ustu ára­mót hluta­bréf í skráðum félögum sem voru með mark­aðsvirði yfir einni milljón, hið minnsta ekki í eigin nafni, en úttekt Kjarnans ein­skorð­að­ist við að skoða hluta­bréfa­eign ein­stak­linga. Tveir borg­ar­full­trúar eiga litla hluti í Icelandair.

Gunnar Þór­ar­ins­son, bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­nesbæ, var skráður hlut­hafi í sjö mis­mun­andi skráðum félögum í lok síð­asta árs, en vert er að halda því til haga að hann er ekki atvinnu­stjórn­ar­mála­maður, en færa má rök fyrir því að önnur við­mið gildi um þá sem eru á fullum launum hjá almenn­ingi og þeim sem eru í sveit­ar­stjórn­ar­störfum í hluta­starfi með öðrum verk­efnum. Alls var virði hluta­bréfa í hans eigu rúmar 8 millj­ónir króna í upp­hafi mán­aðar og hlutur hans í Icelandair, sem er með þunga­miðju rekstrar síns á Kefla­vík­ur­flug­velli, var rúm­lega þriggja millj­óna króna virði. Engar reglur eru til staðar um opin­bera hags­muna­skrán­ingu kjör­inna full­trúa í Reykja­nesbæ.

Telur birtinguna fara gegn lögum

Ekki er víst hvort heild­ar­hlut­haf­alist­arnir sem not­aðir voru til að finna hluta­bréfa­eign sveit­ar­stjórn­ar­manna verði aðgengi­legir í langan tíma, en líkt og Kjarninn fjall­aði um á dög­unum telur Per­sónu­vernd birt­ingu þeirra fara gegn lögum.

Í áliti sem stofn­unin birti í þar­síð­ustu viku segir að orða­lag laga­breyt­ing­anna feli að óbreyttu ekki í sér nægi­lega skýra heim­ild til birt­ing­ar­lista yfir alla hlut­hafa félaga sem undir lögin falla með árs­reikn­ingum þeirra. Þess má geta að árið 2018 fetti stofn­unin fingur út í það að Kaup­höllin sjálf birti reglu­lega upp­færðar upp­lýs­ingar um 20 stærstu hlut­hafa skráðra félaga á vef sínum.

Per­sónu­vernd lagði fyrir rík­is­skatt­stjóra að láta af slíkri birt­ingu upp­lýs­inga innan mán­aðar frá ákvörð­un­inni, það er að segja fyrir 18. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár