Íslendingar mótmæli olíuvinnslu Norðmanna

Veð­ur­fræð­ing­ur­inn Einar Svein­björns­son bendir á tví­ræðni í umhverf­is­boð­skap Norð­ur­landa­þjóð­anna og spyr hvort Íslend­ingar hafi póli­tískt þor til að beita sér í mála­flokknum.

Olíuborpallur
Olíu­bor­p­allur Nýtt svæði Norð­manna mun skila olíu sem við bruna losar jafn mikið og Noregur allur síð­asta 21 ár. Mynd: Shutterstock

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur segir Íslend­inga geta mót­mælt olíu­vinnslu Noregs og umhverf­is­á­hrifum hennar á vett­vangi Norð­ur­landa­ráðs. Slíkt mundi þó krefj­ast þess að við tækjum til í okkar eigin fram­lögum til lofts­lags­mála. Þetta skrifar hann í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Einar nefnir að Greta Thunberg hafi afþakkað umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs á dög­unum. „Ég tók líka eftir því að í umfjöllun norskra fjöl­miðla örl­aði á tóni móðg­unar þegar Greta lét þess getið að Norðmenn hefðu gefið út met­fjölda olíu­vinnslu­leyfa og að nýjasta svæðið sem kennt er við Johan Sverdrup gæti fram­leitt olíu og gas til næstu 50 ára,“ skrifar Einar. „Á sinn raun­sæ­is­lega hátt varp­aði hún eig­in­legri sprengju framan í for­sæt­is­ráð­herra allra Norð­ur­landa­þjóð­anna sem sátu alvöru­gefnir á fremsta bekk þegar hún bætti við að þess væru engin merki að nauð­syn­legar breyt­ingar væru fram undan. Á eftir klöpp­uðu allir sett­lega og hrósuðu Gretu litlu Thunberg fyrir hug­rekkið. Þetta er málið, senni­lega eru allar Norð­ur­landa­þjóð­irnar sekar um tví­ræðni í lofts­lags­mál­unum.“

Einar segir sömu tví­ræðni gilda um Íslend­inga. „Hér á landi forð­ast menn t.d. eins og heitan eld­inn að gera upp gamlar syndir stór­iðj­unnar í losun koltví­ildis eða hinn gríð­ar­mikla umhverfis­kostnað sem nýja „stór­iðjan“ okkar, ferða­þjón­ustan, er völd að. Þess í stað er sjónum mark­visst beint að litlum og sætum aðgerðum sem allir skilja, s.s. eins og að fella niður virð­is­auka­skatt á reið­hjólum eða auka græn­ker­a­fæði í mötu­neytum skóla­barna.“

„Þetta er málið, senni­lega eru allar Norð­ur­landa­þjóð­irnar sekar um tví­ræðni í lofts­lags­mál­unum“

Einar segir sið­ferð­is­lega þver­sögn vera til staðar hjá Norð­mönnum, sem líti á sig í far­ar­broddi lofts­lags­mála en þéni stórar fúlgur fjár á olíu- og gasvinnslu. Hlutur Norð­manna sé um 2 pró­sent af heims­fram­leiðsl­unni og að losun vegna brennslu olí­unnar frá nýja Sverdrup-svæð­inu muni jafn­ast á við alla losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Noregi í 21 ár.

Einar Svein­björns­sonVeð­ur­fræð­ingur bendir á að Íslend­ingar hafi ekki horfst í augu við umhverf­is­á­hrif ferða­þjón­ust­unnar.

„Norðmenn að vinna olíu gætu aðrir auð­veld­lega dælt upp því sem ann­ars vant­aði fyrir óseðj­andi mark­að­inn,“ skrifar hann. „Þeir klifa líka stöðugt á því að vinnslu­svæðið sé umhverf­is­vænt því not­ast er við raf­magn ofan af landi við upp­dæl­ing­una. Það sé nær ein­stakt í heim­inum í dag. Mörg fjöl­þjóð­leg stór­fyr­ir­tæki í jarð­efna­elds­neyti reyna hvað þau geta að rugla mynd­ina, draga vís­indin í efa, dreifa röngum áróðri o.s.frv. Norðmenn fara aðeins aðrar leiðir, en slá engu að síður ryki í augu fólks þegar þeir reyna að telja fólki heima fyrir trú um umhverf­is­vænan olíu­iðnað. Og svo virð­ist sem lands­menn trúi fegr­un­ar­að­gerð­unum og það hentar ágæt­lega sál­ar­lífi norsku þjóð­ar­innar þessa dag­ana.“

Einar spyr hvort Íslend­ingar eigi að mót­mæla þess­ari þróun í Norð­ur­landa­ráði. „Er rétt­læt­an­legt að horfa þegj­andi á ný og ný haf­svæði þar sem borað er eftir olíu í raun ekki svo ýkja langt frá okkur? Á sama tíma og streðað er við að ná mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins! Innan Norð­ur­landa­sam­starfs­ins eigum við rödd og líka áhrif. Eins í norð­ur­skauts­ráð­inu. Þar sitja líka Banda­ríkja­menn og Rússar við okkar borð. Við getum líkt og Svíar hér áður, sem mót­mæltu kröft­ug­lega hval­veiðum Íslend­inga, beitt okkur meira á þessum vett­vangi. Snýst vit­an­lega um póli­tískt þor, en kannski ekki síður hvort við höfum efni á að setj­ast í slíkt hásæti dóm­ar­ans í lofts­lags­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár