47% telur fjölmiðla háða sérhagsmunum

Fleiri segj­ast vera ánægðir með íslenska fjöl­miðla en óánægðir. Nærri því helm­ingur telur fjöl­miðla háða sér­hags­muna­að­ilum.

Um 23 pró­sent Íslend­inga eru ánægðir með fjöl­miðla á Íslandi. Það er örlítið stærri hópur en seg­ist vera óánægður með íslenska fjöl­miðla; Sá hópur mæld­ist 20 pró­sent. 10 pró­sent segja það mjög mis­mun­andi eftir því hvaða fjöl­miðla er spurt um.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem send var fjöl­miðlum í dag. Könnunin var gerð dag­ana 12. til 17. júlí síð­ast­lið­inn. Svar­endur voru 1.596 tals­ins.

Lang flestir sem svör­uðu spurn­ing­unni: „Almennt séð ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með fjöl­miðla á Íslandi?“ höfðu ekki sterka skoðun, 47 pró­sent svör­uðu „í með­al­lagi“.

Ánægja með íslenska fjölmiðla

Ánægjan

Ekki er mik­ill munur á svörum fólks um ánægju til fjöl­miðla þegar þau eru borin saman við stjórn­mála­skoð­anir. Fylg­is­menn Pírata og Fram­sókn­ar­flokks­ins draga með­al­talið þó niður. 13,3 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Pírata ef kosið væri í dag voru ánægð með fjöl­miðla og 17,7 pró­sent þeirra sem ætla að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Skipting svarenda eftir stjórnmálaafstöðu

Þeir svar­endur sem hyggj­ast kjósa Sam­fylk­ing­una, Bjarta fram­tíð, Viðreisn eða Vinstri græna eru ánægð­astir með fjöl­miðla á Íslandi.

Óánægja með fjöl­miðl­ana er mest meðal þeirra sem hyggj­ast kjósa Pírata eða 31,4 pró­sent. Fjórð­ungur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins er óánægður með fjöl­miðla, og fimmt­ungur kjós­enda Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar­innar eru óánægðir.

[adspot]

Fjölmiðlar háðir hagsmunaaðilum

47 pró­sent svar­enda sagð­ist finn­ast íslenskir fjöl­miðlar vera háðir hags­muna­að­ilum. 12 pró­sent telja fjöl­miðl­ana vera óháða og 17 pró­sent segja það mjög mis­mun­andi eftir fjöl­miðlum hvort þeir séu óháðir eða háðir. Mikill meiri­hluti svar­enda í könnun Maskínu segir það hins vegar skipta miklu máli að fjöl­miðlar séu óháðir, eða 87 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Hagsmunir fjölmiðla

Kjós­endur Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins eru frekar á þeirri skoðun að íslenskir fjöl­miðlar séu óháðir hags­muna­öflum en kjós­endur ann­ara flokka. Um það bil helm­ingur kjós­enda allra flokka telja fjöl­miðl­ana vera háða hags­muna­að­ilum. Kjós­endur Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins skera sig svo úr þegar kemur að fjölda þeirra sem segja það mis­mun­andi eftir fjöl­miðlum hvort þeir séu háðir eða óháðir hags­muna­að­ilum.

Skipting svarenda eftir stjórnmálaafstöðu

Ríkisútvarpið á að vera áfram ríkisrekið

Spurt var um afstöðu svar­enda til einka­væð­ingar Rík­is­út­varps­ins. 66,6 pró­sent Íslend­inga eru and­vígir því að Rík­is­út­varpið verði einka­vætt. Einungis 16,1 pró­sent segj­ast vera því hlynnt og 17,3 segj­ast ekki hafa sterka skoðun á því.

Á að einkavæða Ríkisútvarpið?

Afstaða fólks til einka­væð­ingar RÚV skipt­ist nokkuð skýrt eftir stjórn­mála­skoð­unum. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisnar eru frekar hlynnt einka­væð­ingu en kjós­endur ann­ara flokka. Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna eru hins vegar frekar and­víg einka­væð­ingu en kjós­endur ann­ara flokka.

Skipting svarenda eftir stjórnmálaafstöðu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár