Skora á stjórnvöld að „frysta tafarlaust vísitölu neysluverðs til verðtryggingar“

Formaður VR og vara­for­seti ASÍ vilja að stjórn­völd grípi til aðgerða sem þeir telja að verji stöðu lands­manna með verð­tryggð hús­næð­is­lán.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður verka­lýðs­fé­lags Akraness. Mynd: Samsett mynd

Vil­hjálmur Birg­is­son, vara­for­seti ASÍ og for­maður verka­lýðs­fé­lags Akraness, og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hafa birt sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þeir skora á stjórn­völd að „frysta taf­ar­laust vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar og koma þannig til móts við heim­ilin í land­inu sem eru með verð­tryggð hús­næð­is­lán.“

Þetta vilja þeir gera í ljósi þess óvissu­á­stands sem skap­ast hefur vegna COVID-19 veirunnar og mik­illar veik­ingar krón­unnar.

Einnig skora þeir á stjórn­völd að beita sér með sér­stökum aðgerðum fyrir fólk á leigu­mark­aði sem flest eru með vísi­tölu­tryggða leigu­samn­inga.

Óverð­tryggð lán sem íslenskir bankar veittu með veði í hús­næði juk­ust um 80 millj­arða króna í fyrra. Alls fór heild­ar­um­fang þeirra úr því að vera 289 millj­arðar króna í 369 millj­arðar króna. Það er aukn­ing upp á tæp 28 pró­sent.

Á sama tíma dróg­ust verð­tryggð lán sem bank­arnir eiga saman um 27,3 millj­arða króna. Ástæðan fyrir því er meðal ann­ars að finna í að Íbúða­lána­­sjóður ákvað að kaupa 50 millj­­arða króna safn af verð­­tryggðum lánum af Arion banka og átti sú sala sér stað í sept­­em­ber 2019. Ef lána­safnið hefði ekki verið selt til Íbúða­lána­­sjóðs, sem hefur dregið sig mjög saman á útlána­­mark­aði á und­an­­förnum árum og lánar ein­ungis verð­­tryggt, hefði verið aukn­ing á verð­tryggðum lánum íslensku bank­anna.

Hlut­fallið á útlánum banka til hús­næð­is­kaupa fór því úr að vera 69 pró­sent verð­tryggð lán og 31 pró­sent óverð­tryggð í árs­lok 2018 í að vera 62 pró­sent verð­tryggð og 38 pró­sent óverð­tryggð.

Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins 101,6 millj­arðar króna í sjóðs­fé­laga­lán á árinu 2019. Það er hæsta upp­hæð í krónum talið sem þeir hafa nokkru sinni lánað til íbúð­ar­kaupa, en fyrra metið var 99,2 millj­arðar króna árið 2017. Þegar tekið er til­lit til verð­bólgu síð­ustu tveggja ára var raun­virði útlána þó hæst á því ári. 

Heild­ar­um­fang verð­tryggðra lána sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa veitt jókst um 17 pró­sent á árinu 2019. Það fór úr 353 millj­örðum króna í 414 millj­arða króna. Á sama tíma jókst hins vegar umfang óverð­tryggðra lána sem sjóð­irnir veittu þeim sem borga í þá um 42,5 pró­sent, fór úr 80 millj­örðum króna í 114 millj­arða króna. 

Verð­tryggðu lánin eru þó enn mun hærra hlut­fall af heild­ar­út­lánum líf­eyr­is­sjóða en þau óverð­tryggðu, eða 78 pró­sent á móti 12 pró­sent­u­m. 

Verð­bólga hefur að mestu verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014. Und­an­skilið er rúm­lega árs tíma­bil frá haustinu 2018 og fram í des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar hún reis hæst upp í 3,7 pró­sent. Verð­bólga mælist nú 2,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár