Hatursglæpur hafður til viðmiðunar

Stúlka sem var stungin með hnífi í miðbæ Reykja­víkur á menn­ing­arnótt er enn í lífs­hættu. Gæslu­varð­hald yfir árás­armann­inum rennur út í dag. Hat­urs­glæpur er hafður til við­mið­unar við rann­sókn máls­ins. Hnífstungum hefur fjölgað og bráða­læknir biðlar til fólks að passa upp á hvað annað.

Ofbeldisbrot ungmenna áhyggjuefni
Ofbeld­is­brot ung­menna áhyggju­efni Eyrún Eyþórs­dóttir, lektor í lög­reglu­fræðum við Háskól­ann á Akureyri segir það ógn­vekj­andi hversu algengar hnífa­árásir meðal ung­menna eru orðnar. Hjalti Már Björns­son, læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, segir starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar finna fyrir aukn­ing­unni. Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar lög­reglu, fer fyrir rann­sókn á hnífstungu­árás sem gerð var á Menn­ing­arnótt þar sem þrjú ung­menni voru stungin af 16 ára pilti.

Gæslu­varð­hald yfir 16 ára pilti sem var hand­tek­inn á menn­ing­arnótt, grun­aður um að hafa stungið þrjú ung­menni með hníf, rennur út í dag. Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar lög­reglu, sagði síð­degis í gær að ekki liggi fyrir hvort farið verði fram á fram­lengt gæslu­varð­hald. Árás­armað­ur­inn var fyrst um sinn vistaður á Hólms­heiði þar sem lög­regla fór fram á ein­angrun en var síðar færður í við­eig­andi úrræði sökum ald­urs. 

Grímur segir rann­sókn máls­ins miða vel, hún er umfangs­mikil og hefur verið í algjörum for­gangi hjá lög­reglu frá því að hún kom upp. „Við erum búin að fá nokkuð skýra mynd, við erum samt enn þá að reyna að átta okkur á aðdrag­anda atvika.“ Hann getur ekki stað­fest að ung­mennin þrjú hafi verið í bíl þegar árás­armað­ur­inn veitt­ist að þeim. „Það sem ég get stað­fest er að ein­hver þeirra voru í bíl en hvort hnífstung­urnar áttu sér stað þegar fólk sat í bíl eða var fyrir utan, ég get ekk­ert stað­fest um það.“

Hatursglæpur ef árásin byggir á ásetningi fordóma

Hin slös­uðu, tvær stúlkur og einn piltur, eru á svip­uðum aldri og árás­armað­ur­inn. Hann er íslenskur og báðar stúlk­urnar sömu­leiðis. Önnur stúlkn­anna er enn í lífs­hættu. Hin hlaut minni áverka og var fljót­lega útskrifuð af spít­ala. Pilt­ur­inn sem varð fyrir árásinni er frá Palest­ínu og hefur búið á Íslandi í þrjú ár. For­eldrar hans og systk­ini komu til Íslands fyrir einu og hálfu ári á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar og hefur faðir pilts­ins lýst því í fjöl­miðlum að hann hafi haldið að hann væri að bjarga lífi barna sinna með því að flytja til Íslands frá Gaza. Nú ótt­ast hann um líf sonar síns. 

„Glæpur er hat­urs­glæpur ef árásin hefur verið byggð á ásetn­ingi for­dóma,“ segir Eyrún Eyþórs­dóttir, lektor í lög­reglu­fræðum við Háskól­ann á Akureyri. Hún segir það mik­il­vægt í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi eins og á Íslandi að lög­reglan hafi það ávallt í huga að glæpur geti verið hat­urs­glæpur. „Það er ekki það að mann­eskjan sé stút­full af hatri, það er nóg að það sé eitt­hvað nei­kvætt við­horf eða for­dómar,“ segir Eyrún. 

Grímur segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hat­urs­glæpur sé hafður til við­mið­unar við rann­sókn máls­ins. „Það gæti alltaf komið upp í svona rann­sókn að það væru ein­hver atriði sem gætu bent til ein­hvers ann­ars en maður reikn­aði með í upp­hafi.“

Hnífstungum fer fjölgandi 

Til­kynn­ingum um alvar­leg ofbeld­is­brot ung­menna og stór­felldar lík­ams­árásir ung­menna hafa aldrei verið fleiri, að því er fram kemur í skýrslu Rík­is­lög­reglu­stjóra um ofbeldi barna sem kom út í júní. „Það er ógn­vekj­andi hvað þetta er orðið algengt. Það er greini­lega eitt­hvað í gangi sem þarf að skoða ofan í kjöl­inn,“ segir Eyrún. 

„Við búum öll hér saman á þessu litla landi og við eigum að geta gert það frið­sam­lega“
Hjalti Már Björns­son,
læknir á bráða­mót­töku Land­spít­ala.

Hjalti Már Björns­son, læknir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, tekur í sama streng. Spít­al­inn hefur ekki tekið saman nákvæmar tölur um tíðni og alvar­leika lík­ams­árása hjá ung­mennum. „En það er til­finn­ing hjá okkur að hnífstungum og atburðum þar sem hnífar koma við sögu, þeim hefur fjölgað.“    

Hann segir þró­un­ina var­huga­verða. „Ég held að við þurfum öll að stíga var­lega til jarðar í sam­fé­lag­inu, passa upp á hvað annað og að það gliðni ekki um of á milli hópa í þjóð­fé­lag­inu. Við búum öll hér saman á þessu litla landi og við eigum að geta gert það frið­sam­lega eins og okkur hefur farn­ast hingað til í gegnum árin.“

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár