TikTok tískunnar: Hratt, ódýrt og ávanabindandi sölukerfi

„Ég vil ekki að þeir kæri mig ef þeir fá cancer í fram­tíð­inni og láti eins og það sé mér að kenna,“ segir íslensk kona um leið og hún sýnir vör­urnar sem hún keypti á Shein. Kín­verska ofur­hrað­tísku­húsið Shein hefur tek­ist að byggja upp sterk tengsl við not­endur TikTok, sem geta styrkt félags­lega stöðu sína með því að kynna vörur fyr­ir­tæk­is­ins. Á sama tíma er fyr­ir­tækið sakað um ávana­bindnadi hönnun og leikja­fræði sem ýtir undir hvat­vísi í kaupum.

Back to school Shein haul,“ segir íslensk stúlka á TikTok og dregur sautján nýjar flíkur upp úr pok­anum. Shein er svo­kallað ofur­hrað­tísku­fyr­ir­tæki sem byggir veldi sitt á hræó­dýrum tísku­vörum.

Stelpur: Opnum pakkana

Þegar net­notkun jókst í heims­far­aldr­inum sá kín­verska net­versl­unin Shein sókn­ar­færi. Fyr­ir­tækið lagði áherslu á sam­starf við smærri áhrifa­valda og almenna not­endur sam­fé­lags­miðla sem kynntu vörur gegn fríum vörum eða greiðslu. Aðferðin virk­aði. Shein byggði hratt upp stóran og tryggan við­skipta­hóp í Banda­ríkj­unum og Evrópa fylgdi í kjöl­farið.

Vel­gengni Shein helst í hendur við vin­sældir TikTok á meðal ungs fólks, þar sem svokölluð „haul“ mynd­bönd eru á meðal þess efnis sem fær mest áhorf. Samkvæmt Hasta­gRadar hafa 5,4 millj­ónir mynd­banda birst á TikTok undir merkjum #haul og fengið yfir 59,4 millj­arða áhorfa. Fleiri myllu­merki eru í notkun fyrir sam­bæri­leg mynd­bönd, sem snú­ast um að not­endur sýni fylgj­endum sínum hvað þeir hafa verið að kaupa.

Shein …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár