Allar breytingartillögur stjórnarandstöðunnar felldar

Allar breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hluta fjár­laga­nefndar voru sam­þykktar í 2. umræðu fjár­laga í gær en öllum til­lögum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna var hafnað. Sam­fylk­ingin og Píratar hafa gagn­rýnt nið­ur­stöðu umræð­unnar.

Allar breyt­ing­ar­til­lögur að fjár­lögum sem lagðar voru fram af stjórn­ar­and­stöðu­flokkum voru felldar í annarri umræðu um fjár­lög á Alþingi í gær. Þing­flokkar Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata, Mið­flokks­ins og flokki fólks­ins lögðu allir fram sínar breyt­ing­ar­til­lögur við fjár­laga­frum­varpið en allar þær til­lögur voru felldar í atkvæða­greiðslu Alþingis í gær. All­ar breyt­ing­ar­til­lög­ur meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar við fjár­laga­frum­varpið voru hins vegar sam­þykktar og fer frum­varpið því til fjár­laga­nefndar en þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag.

Breytingartillögur meirihlutans gagnrýndar

Nokkuð hef­ur verið deilt um fjár­laga­frum­varpið að und­an­förnu og breyt­ing­ar­til­lög­ur meiri­hlut­ans en gagn­rýni hefur meðal ann­ars komið frá Alþýðu­sam­bandi Íslands en mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands sak­aði meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþing­is um að reka „óá­byrga rík­is­fjár­mála­stefnu,“ á fjöl­miðla­fundi í síð­ustu viku. Gagn­rýn­is­raddir varð­andi breyt­ing­ar­til­lög­urnar hafa einnig borist frá Öryrkja­banda­lag­inu, SÁÁ og stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum.

Meðal þeirra breyt­ing­ar­til­laga sem felldar voru í gær má nefna til­lögu Mið­flokks­ins um að veita Krabba­meins­fé­lagi Íslands fimm­tíu millj­ónir króna. Allar sautján til­lögur Sam­fylk­ing­ar­innar voru felldar þar á meðal til­lögur um hækkun á barna­bótum og vaxta­bótum um tvo millj­arða til hvors mála­flokks ásamt öllum til­lögum Pírata sem m.a. sneru að afnámi krónu á móti krónu skerð­ingu og leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði.

Gagnrýna að ríkisstjórnin hafnaði öllum breytingartillögum nema sínum eigin

Sam­fylk­ingin hefur gagn­rýnt stefnu rík­is­stjórn­ar­innar er við kemur fjár­lög­unum og í til­kynn­ingu frá flokknum segir að fjár­laga­frum­varpið tryggir hvorki félags­legan né efna­hags­legan stöð­ug­leika og van­rækir félags­lega inn­viði. „Stefna rík­is­stjórn­ar­innar er óábyrg og ósjálf­bær og lætur byrð­arnar á þá sem minnst hafa á milli hand­anna þegar kreppir að og hlífir breiðu bök­unum. Ekkert er gert til að mæta kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og tryggja rétt­læti“ segir jafn­framt í til­kynn­ingu frá flokknum.


„Það var slá­andi að sjá rík­is­stjórn­ina fella hverja góða til­lög­una á eftir annarri. Aukin fram­lög í barna- og vaxta­bætur líka, hærri stofn­fram­lög, aukn­ing til öryrkja og aldr­aðra, hækkun til SÁÁ var felld, hóf­legar við­bætur til hjúkr­un­ar­heim­ila, skóla, þró­un­ar­sam­vinnu o.s.frv. Rík­is­stjórnin kaus frekar lækkun til öryrkja og aldr­aðra, lægri hús­næð­is­stuðn­ing, lægri fram­lög til fram­halds­skól­anna og auð­vitað lægri veiði­gjöld“ segir Logi Ein­ars­son

Þing­flokkur Pírata gagn­rýndi einnig nið­ur­stöðu umræð­unnar í gær­kvöldi og segir nið­ur­stöð­una hafa verið fyr­ir­sjá­an­lega, í Facebook-færslu þing­flokks­ins í gær­kvöldi. Í færsl­unni gagn­rýna þeir jafn­framt að allar breyt­ing­ar­til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana voru felldar án skoð­unar, „Það er greini­legt að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna ætlar engu að breyta til að efla traust til stjórn­mál­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár