Seðlabankinn vill lögfesta heimild til að setja þak á veðhlutföll

Mik­il­vægt er [...] að heim­ild til að setja þak á veð­hlut­föll í þjóð­hags­var­úð­ar­skyni sé til staðar áður en skulda­drifin hækkun á fast­eigna­verði hefst, segir Seðla­banki Íslands.

Fer­metra­verð mið­svæðis í Reykja­vík hefur hækkað um 38 pró­sent á tæpum fimm árum, og útlit er fyrir veru­lega hækkun fast­eigna­verðs á næstu miss­erum. Seðla­banki Íslands telur mik­il­vægt að lögum verði breytt á þann veg að skýr heim­ild verði til staðar, sem tak­marki mögu­leika á skuld­setn­ingu vegna fast­eigna­kaupa. „Mik­il­vægt er [...] að heim­ild til að setja þak á veð­hlut­föll í þjóð­hags­var­úð­ar­skyni sé til staðar áður en skulda­drifin hækkun á fast­eigna­verði hefst en laga­frum­varp með slíkri heim­ild liggur nú fyrir Alþingi,“ segir í fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans, sem kom út 20. apríl síð­ast­lið­inn. Sigríður Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika, er rit­stjóri þess.

Ekki skuldir í þetta skiptið

Sé horft heil yfir fast­eigna­mark­að­inn, það er með­al­tals­tölur á öllum mark­aðnum, þá hækk­aði fast­eigna­verð í fyrra um sjö pró­sent að raun­virði, að því er segir í rit­inu. Íbúð sem var með verð­miða upp á 30 millj­ónir í byrjun árs­ins í fyrra kost­aði 32,1 milljón í lok árs­ins. Sé mið tekið af spám þá verður hún komin í tæp­lega 40 millj­ónir í byrjun árs 2018.

Í rit­inu segir að hækkun fast­eigna­verðs á und­an­förnum árum hafi ekki verið drifin áfram með auk­inni skuld­set­ingu heim­ila, en hætta sé á því að það ferli hefj­ist fyrr en seinna. Ofþensla sé í kort­unum, og mik­il­vægt að grannt sé fylgst með gangi mála. .

Heild­ar­skuldir heim­ila hafa lækkað að und­an­förnu, og er staða þeirra í alþjóð­legum sam­an­burði nokkuð góð um þessar mundir. Skuldir heim­ila lands­ins eru áætl­aðar 177% af ráð­stöf­un­ar­tekjum um síð­ustu ára­mót, eða álíka hlut­fall og um síð­ustu alda­mót, að því er fram kom í frétta­skýr­ingu Guðna Ein­ars­sonar í Morg­un­blað­inu á dög­unum.

Til sam­an­burðar var þetta hlut­fall í árs­lok 2014 305% í Danmörku, 274% í Hollandi, 174% í Svíþjóð, 225% í Noregi og 127% í Finn­landi, að því er fram kom í fyrr­nefndri frétta­skýr­ingu.

Á bremsunni

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, sagði á opnum fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, að nauð­syn­legt væri að vera á hag­stjórn­ar­brems­unni, þar sem helsta hættan sem steðj­aði að hag­kerf­inu væri ofþensla. Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins, einkum Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, og Þor­steinn Sæmunds­son, spurðu Má ítar­lega út í vaxta­á­kvarð­anir bank­ans, og gagn­rýndu þær. Sögðu verð­bólgu­spár engan veg­inn hafa gengið eftir, og stýri­vextir væru alltof háir fyrir vikið. Sagði Frosti meðal ann­ars að aðeins skuld­arar væru látnir bera hit­ann og þung­ann af þessum vaxta­hækk­unum, og meðan þeir sem ættu pen­inga í lausu inn á banka­reikn­ingum myndu hagn­ast á þessu háa vaxta­tæki.

Már hafn­aði því, að vextir væru óeðli­lega háir og sagði nauð­syn­legt að horfa ekki aðeins til verð­bólgu­spár, heldur einnig til ann­arra þátta. Margt benti til þess að mikil ofþensla gæti haft nei­kvæð áhrif, ef hag­stjórn­ar­tækjum yrði ekki beitt með skyn­sömum hætti. Á þetta hefði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn meðal ann­ars bent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár