Svipmyndir af erlendum vettvangi 2016

Árið 2016 hefur markast af frek­ari átökum á alþjóða­vett­vangi og upp­gangi þjóð­ern­ispopúl­isma. Brexit, Trump, Sýrland, ISIS og margt fleira er reifað hér að neðan í myndum árs­ins af erlendum vett­vangi.

Við­burða­ríku ári lýkur á laug­ar­dags­kvöld. Árið 2016 verður hugs­an­lega skráð í sögu­bæk­urnar sem vendi­punktur í stjórn­málum vest­rænna ríkja. Alda flótta­manna hefur farið um Evrópu und­an­farin ár og það hefur, meðal ann­ars, stuðlað að breyttum stjórn­mála­á­herslum. Popúl­ískar hreyf­ingar hafa víða kom­ist til valda eða hlotið aukna hlut­deild á þjóð­þingum.

Þessar hreyf­ingar eiga það sam­eig­in­legt að vilja hægja á eða vinda ofan af Evr­ópu­sam­run­anum. Á árinu kusu Bretar að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu, í Banda­ríkj­unum hlaut Donald Trump kjör sem for­seti og í Frakk­landi og á Norð­ur­löndum hafa sam­bæri­leg stjórn­mála­öfl vaxið ásmeg­inn.

Hér að neðan má líta nokkrar erlendar frétta­myndir frá erlendum atburðum sem Kjarninn fylgd­ist grannt með á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið undanfarið ár