Hver Íslendingur gæti tapað um 22 þúsundum króna á ári vegna Brexit

Tap hvers Íslend­ings á útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu er metið á bil­inu 13 til 22 þús­unda króna á hverju ári, sam­kvæmt nýrri þýskri rann­sókn.

Áhrif Brexit yrðu áþreifanleg um allan heim, samkvæmt rannsókninni.
Áhrif Brexit yrðu áþreif­an­leg um allan heim, sam­kvæmt rann­sókn­inni. Mynd: EPA

Samkvæmt þýskri rann­sókn yrðu afleið­ingar af útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu slæmar fyrir bæði Bretland og öll hin ríki EES. Tapið á Íslandi gæti numið um 0,3 pró­sentum af lands­fram­leiðslu, eða um 22 þús­und krónum á mann á hverju ári.

Þýska hug­veitan Ber­tels­mann Stiftung gaf út skýrslu fyrr á árinu þar sem efna­hags­leg áhrif útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu (e. Brexit) voru metin víðs vegar um heim­inn. Þar mátu skýrslu­höf­undar ann­ars vegar hugs­an­leg áhrif útgöngu án samn­ings og hins vegar áhrifin ef Bretland myndi ná að semja við Evr­ópu­sam­bandið. 

750 þúsund manns gætu flúið land

Samkvæmt grein­inni gæti útganga án samn­ings leitt til um 57 millj­arða evra taps í Bret­landi á hverju ári, sem þýðir að lands­fram­leiðslan þar myndi skreppa saman um 2,49 pró­sent og að hver Breti yrði af um 120 þús­und krónum árlega. Slíkt tap myndi leiða til stór­út­flutn­ings frá Bret­landi að mati höf­und­anna, en þeir telja að allt að um 750 þús­und manns flytji frá land­inu í leit að betri atvinnu­tæki­færum.

Ef samn­ingur næð­ist milli Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins áður en aðskiln­aður á sér stað er búist við mild­ari áhrifum, en sam­kvæmt lík­ani höf­und­anna gæti verið að „ein­ungis“ 400 þús­und flytji burt þaðan í því til­viki.

Írland, Holland og Belgía verst úti

Neikvæðu áhrif­anna mun hins vegar ekki ein­ungis gæta á Bret­landi, en búist er við því að öll lönd innan EES muni tapa á útgöng­unni. Stærð sam­drátt­ar­ins virð­ist vera í beinu sam­bandi við fjar­lægð ríkj­anna frá Bret­landi, auk þess sem áhrifin eru nei­kvæð­ari meðal landa með hærri fram­leiðni.

Mest yrðu áhrifin á Írlandi, en Holland og Belgía myndu einnig finna fyrir tals­verðum sam­drætti. Vegna nálægðar við Bretland og háa fram­leiðni væru Ísland og Noregur einnig í til­tölu­lega mik­illi hættu ef samn­ingi hefði ekki verið náð milli ríkj­anna.

Önnur lönd græða

Þó eru nokkur lönd sem búist er við að muni græða á Brexit, sér í lagi ef útgangan verður án samn­ings. Í þessu til­viki nefna grein­ar­höf­undar sér­stak­lega Brasilíu, Indland og Ísrael, en þeir spá því að löndin fái meiri við­skipta­tæki­færi vegna auk­innar eft­ir­spurnar og inn­flutn­ings vinnu­afls. Einnig er búist við að önur iðn­ríki og nýmark­aðs­ríki utan Evrópu græði á samn­ings­lausri útgöngu, þótt sam­an­lagður ábati þeirra sé mun minni en tap Evr­ópu­ríkja vegna hennar.

Á mynd hér að ofan má sjá áhrif Brexit án samn­ings í Evr­ópu­löndum, mæld í árlegri breyt­ingu í lands­fram­leiðslu, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar. Sam­drátt­ur­inn yrði mestur í Norður-og Vestur Evrópu, en minni í Austur-Evr­ópu­löndum auk Sviss og Aust­ur­ríkis. Búist er svo við að Tyrkland og Rússland muni græða lít­il­lega á útgöng­unni, en hugs­an­legur ábati land­anna er þó agn­ar­smár.

22 þúsund krónur á mann á Íslandi

Samkvæmt höf­und­unum myndi útganga Bret­lands úr ESB án samn­ings við Ísland leiða til 0,3% sam­dráttar í lands­fram­leiðslu, sem jafn­gildir rúmum 22 þús­undum króna á mann á hverju ári. Ef samn­ingur næst meta skýrslu­höf­undar það svo að áhrifin yrðu um helm­ingi minni, með 0,18% sam­drátt í lands­fram­leiðslu og um 13 þús­unda króna tapi á mann á hverju ári.

Samkvæmt skýrslu­höf­und­unum mæti helst rekja tapið til auk­innar óhag­kvæmni í fram­leiðslu og minna vöru­úr­vali vegna hærri tolla milli land­anna. Með hærri tollum í alþjóða­við­skiptum yrðu fram­leiðslu­þættir ekki full­nýttir og fjöl­breytni myndi minnka þar sem ekki yrði lengur hag­kvæmt að kaupa og selja ákveðnar vörur milli land­anna.

Versta sviðsmyndin ólíkleg

Þrátt fyrir að allt stefni í útgöngu Bret­lands án samn­ings við Evr­ópu­sam­bandið er ólík­legt að Íslend­ingar muni finna fyrir jafn­miklu höggi og skýrslu­höf­undar gera ráð fyrir. Samkvæmt utan­rík­is­ráðu­neyt­inu hefur íslenska rík­is­stjórnin unnið hörðum höndum að því að tryggja kjarna­hags­muni á lyk­ilsviðum, meðal ann­ars með samn­ingum um áfram­hald­andi rétt­indi borg­ara til búsetu, vöru­við­skipti og flug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár