Hvað ef fasteignaverð væri alls staðar hið sama?

Þrátt fyrir að fast­eigna­verð í stærri byggð­ar­lögum lands­ins yrði allt í einu alls staðar hið sama myndu flestir kjósa sér búsetu þar sem þeir búa í dag, sam­kvæmt nýlega birtum nið­ur­stöðum frá Byggða­stofnun.

Ef fast­eigna­verð á Íslandi væri alls staðar hið sama myndu flestir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og stærri þétt­býl­is­staða á Íslandi þó áfram vilja búa í sama hverfi eða byggð­ar­lagi og þeir eru búsettir í dag.

Þetta er á meðal þess sem lesa má í um í nýút­gef­inni skýrslu Byggða­stofn­unar um búsetu­á­form lands­manna, sem byggir á nið­ur­stöðum könn­unar sem Maskína sá um að fram­kvæma á meðal íbúa stærri þétt­býl­iskjarna á Íslandi undir lok síð­asta árs.

Þannig vildu sam­tals 85 pró­sent þeirra sem búa vestan Elliðaár í Reykja­vík ýmist búa í mið­borg­inni eða öðrum hverfum nálægt mið­bænum, 65 pró­sent þeirra sem í dag búa austan Elliðaár í Reykja­vík segj­ast vilja búa í úthverfi Reykja­víkur og 72 pró­sent þeirra sem búa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur, Kraganum, segja að þar vilji þeir helst vera, þrátt fyrir að fast­eigna­verðið væri hið sama í öllum þessum mis­mun­andi hverfum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Heimakærir Akureyringar

Fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið voru þeir svar­endur könn­un­ar­innar á Akureyri allra lík­leg­astir til að vilja helst áfram búa í sínum bæ, en 83 pró­sent þeirra sögð­ust vilja búa áfram á Akureyri þrátt fyrir að fast­eigna­verðið yrði all­staðar á land­inu hið sama. Það sögðu einnig 78 pró­sent svar­enda á Akranesi og 75 pró­sent íbúa á bæði Selfossi og Húsavík.

Þetta hlut­fall var 65 pró­sent eða hærra í öllum þeim byggð­ar­lögum sem voru með í könn­un­inni, nema Vogum í Vatns­leysu­strönd.

Ef fast­eigna­verð væri hið sama alls staðar sögð­ust ein­ungis 56 pró­sent svar­enda þar kjósa sér að búa áfram í Vogum. Ríkur vilji mæld­ist þar til flutn­inga á höf­uð­borg­ar­svæðið, og þá sér­stak­lega til nágranna­sveit­ar­fé­laga Reykja­víkur, en í þeim væri kjör­bú­seta 25 pró­sent svar­enda í Vogum.

[adspot]

Heilt yfir var yfir­gnæf­andi meiri­hluti svar­enda í könn­unni, sem yfir 9.000 manns svör­uðu undir lok síð­asta árs, ánægður með búsetu sína. Einungis tæp­lega 5 pró­sent sögð­ust óánægð með búsetu sína. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum voru íbúar á og við höf­uð­borg­ar­svæðið ólík­legri til að flytj­ast búferlum en þeir sem búa á þétt­býl­is­stöðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Atvinnutækifæri og sýn á framtíðina afgerandi þáttur

Á meðal ann­arra nið­ur­staðna í rann­sókn Byggða­stofn­unar, sem unnin var í sam­starfi við Háskól­ann á Akureyri, er að atvinnu­tæki­færi vega þungt þegar kemur að við­horfi ein­stak­linga til búferla­flutn­inga. Aukin atvinnu­tæki­færi draga þannig úr hættu á brott­flutn­ingi íbúa og þar af leið­andi fólks­fækkun. Þá skiptir aðgengi að menntun, menn­ingu, afþr­ey­ingu, þjón­ustu og nálægð við fjöl­skyldu og vini einnig máli.

Fram kemur í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar að mat svar­enda á lík­legri þróun lífs­kjara í byggða­kjarn­anum á næstu árum hafi sterk­ari tengsl við búsetu­á­form en mat þeirra á þróun síð­ustu ára. Fram­tíð­ar­sýn svar­enda er sam­ofin búferla­hug­leið­ingum og þeir sem eru sáttir við búsetu sína í dag og telja lífs­kjör sín verða betri í náinni fram­tíð ætla ekki að flytja á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignaverð

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár