Lestur Fréttablaðsins kominn niður fyrir 30 prósent í fyrsta sinn

Lestur stærsta dag­blaðs lands­ins, sem er frídreift inn á 75 þús­und heim­ili fimm daga í viku, hefur helm­ing­ast á ára­tug og aldrei mælst minni. Nýir eig­endur hafa fjár­fest 1,5 millj­arði króna í útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins á tveimur og hálfu ári.

Lestur Frétta­blaðs­ins mæld­ist 29,9 pró­sent í jan­ú­ar­mán­uði. Það er í fyrsta sinn síðan að mæl­ingar á lestr­inum hófust sem hann fer undir 30 pró­sent. Lest­ur­inn hefur helm­ing­ast á einum ára­tug.

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­festu á dag­blaða­mark­aði með til­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­sent lands­manna lesa Frétta­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­sent.

Lest­ur­inn hefur að mestu dreg­ist saman hjá yngri les­end­um. Vorið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára blað­ið. Nú lesa 20,4 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu það. Lest­ur­inn í þeim hópi lækk­aði um 4,6 pró­sentu­stig í fyrra og með sama áfram­haldi verður ekki langt að bíða þangað til að hann fer undir 20 pró­sent.

Þetta mál lesa út úr nýjum tölum Gallup um lestur prent­miðla sem voru birtar í lok lið­innar viku.

Frétta­blaðið er í eigu útgáfu­fé­lags­ins Torgs og er flagg­skip þess félags. Útgáfu­­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­dags­út­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag.

Í lok síð­asta mán­aðar var greint frá því að Jón Þór­is­son, sem var rit­stjóri Frétta­blaðs­ins frá haustinu 2019 og fram í ágúst í fyrra, væri kom­inn aftur til starfa hjá útgáfu­fé­lagi blaðs­ins, Torgi. Hann hefur tekið til starfa sem for­stjóri útgáfu­fé­lags­ins, sem heldur einnig úti DV, Hring­braut og tengdum miðl­um. Sig­mundur Ernir Rún­ars­son er rit­stjóri Frétta­blaðs­ins.

Mikið tap og nýjum peningum dælt inn

Í júní 2019 keypti athafna­mað­ur­inn Helgi Magn­ús­son helm­ings­hlut í útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, Torgi. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en í októ­ber keyptu Helgi og sam­starfs­menn hans, meðal ann­ars rit­stjór­inn Jón Þór­is­son, hinn helm­ing­inn í útgáf­unni auk þess sem sjón­­­­varps­­­­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­­­­ur­inn. Aftur var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál. Eign­ar­haldið á Torgi hefur verið í félagi sem heitir HFB-77 ehf. Það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­ónir króna í fyrra. Torg er eina þekkta eign félags­­­ins og var keypt á síð­­­asta ári. Í des­em­ber 2020 var greint frá því að Helgi hefði keypt nýtt hlutafé í Torgi fyrir 600 millj­ónir króna og rétt fyrir síð­ustu ára­mót setti hann 300 millj­ónir króna í við­bót inn í rekst­ur­inn.

[adspot]Miðað við þær upp­­lýs­ingar má ætla að Helgi og við­­skipta­­fé­lagar hans hafi sett um 1,5 millj­­arð króna í að ann­­ars vegar kaupa Torg og hins vegar að styrkja rekstur útgáfu­­fé­lags­ins.

Eign­ar­halds­fé­lag Helga, Hof­garðar, seldi sex pró­sent hlut sinn í Bláa lón­inu í fyrra og hagn­að­ist fyrir vikið um 3,2 millj­arða króna á því ári. Eigið fé Hof­garða, sem fjár­festir í skráðum og óskráðum verð­bréf­um, var 2,9 millj­arðar króna í lok árs 2020 en er nú yfir sex millj­arðar króna.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­­em­ber í fyrra að rekstr­­­ar­tap Torgs, útgáfu­­­fé­lags Frétta­­­blaðs­ins, Hring­braut­­­ar, DV og tengdra miðla, var 688,7 millj­­­ónir króna á árinu 2020. Árið áður var rekstr­­­ar­tap félags­­­ins 197,3 millj­­­ónir króna og því nam sam­eig­in­­­legt rekstr­­­ar­tap þess á tveimur árum 886 millj­­­ónum króna.

Tíu prósent undir fimmtugu lesa Morgunblaðið

Hitt dag­blað lands­ins, Morg­un­blaðið, bætti lít­il­lega við sig í lestri í síð­asta mán­uði. Alls segj­ast 19,1 pró­sent lands­manna lesa blaðið, en vert er að taka það fram að Morg­un­blaðið er frí­blað einu sinni í viku, á fimmtu­dög­um, þegar það er í svo­kall­aðri aldreif­ingu. Þá fær fjöldi manns sem er ekki áskrif­andi blaðið óum­beðið inn um lúg­una hjá sér. Lestur Morg­un­blaðs­ins hjá öllum ald­urs­hópum hefur rúm­lega helm­ing­ast frá vor­inu 2009, þegar hann var 40 pró­sent.

[adspot]Sam­drátt­ur­inn er mestur í ald­urs­hópnum 18-49 ára. Þar segj­ast tíu pró­sent lands­manna lesa Morg­un­blað­ið. í byrjun árs 2009, þegar nýir eig­endur komu að rekstri blaðs­ins sem réðu svo núver­andi rit­stjóra (Da­víð Odds­son og Har­ald Johann­es­sen) þess til starfa, var Morg­un­blaðið lesið af þriðj­ungi allra lands­manna á þessum aldri. Lestur á blað­inu hjá full­orðnum lands­mönnum undir fimm­tugu er mjög svip­aður og hann var í upp­hafi síð­asta árs, þegar 10,3 pró­sent sögð­ust lesa Morg­un­blaðið.

Sá eig­enda­hópur sem tók við Árvakri árið 2009 hefur sam­tals lagt félag­inu til 1,9 millj­arða króna í nýtt hlutafé á rúmum ára­tug, síð­ast 300 millj­ónir króna á árinu 2019. Sam­an­lagt end­an­legt tap félags­ins á sama tíma­bili er yfir 2,5 millj­örðum króna.

Stærsti eig­and­inn er Guð­björg Matth­í­as­dóttir og börn henn­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­manna­eyja. Sam­an­lagt á sá hópur 25,5 pró­sent hlut. Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjáv­ar­af­urð­ir, í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, með 19,4 pró­sent eign­ar­hlut.

Tekjur blaða drógust saman um 38 prósent á fjórum árum

Fá 1997 til 2016 juk­ust tekjur fjöl­miðla á Íslandi á hverju ein­asta ári í krónum talið með einni und­an­tekn­ingu, árinu 2009 þegar eft­ir­köst banka­hruns­ins komu fram. Frá 2016 hafa þær hins vegar lækkað á milli allra ára sem liðin eru.

[links]Það ár voru sam­an­lagðar tekjur íslenskra fjöl­miðla 28,1 millj­arðar króna. Árið 2020 voru þær 25,1 millj­arður króna og höfðu því lækkað um tæp ell­efu pró­sent á fjórum árum.

Þetta má lesa úr nýjum tölum sem Hag­stofa Íslands birti nýverið og sýna þróun á tekjum fjöl­miðla á Íslandi.

Mestur hefur sam­drátt­ur­inn orðið hjá þeim fjöl­miðlum sem gefa út dag­blöð og viku­blöð. Tekjur þeirra hafa farið úr 7,3 í 4,5 millj­arða króna á þessu fjög­urra ára tíma­bili. Það er sam­dráttur upp á rúm­lega 38 pró­sent.

Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið eru langstærstu miðl­arnir sem til­heyra þessum flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár