Hvernig 50 ára gamlir þýskir klossar urðu það allra eftirsóttasta

Klossar frá þýska skófram­leið­and­anum Birkenstock af teg­und­inni „Boston“ hafa verið á mark­aðnum frá því á 8. ára­tugnum en hafa aldrei notið jafn mik­illa vin­sælda og nú og eru nær ófá­an­legir. Af hverju? Svarið er ein­falt: TikTok.

Birkenstock-klossar af tegundinni Boston eru nær ófáanlegir sökum vinsælda á TikTok.
Birkenstock-klossar af teg­und­inni Boston eru nær ófá­an­legir sökum vin­sælda á TikTok. Mynd: Birkenstock/Facebook

Birkenstock er vöru­merki sem mörgum er kunn­ugt. Þýskt gæða­merki. Inniskór. Klossar. Eða eru þeir kannski meira en það?

Til eru fjöl­margar teg­undir af Birkenstock-skóm. Ein þeirra, kloss­arnir „Boston“, hefur notið gríð­ar­legra vin­sælda upp á síðkastið.

Almennt sölu­verð kloss­anna í dag er 160 doll­arar, um það bil 23 þús­und krónur, það er að segja, ef þú finnur þá. Þökk sé sam­fé­lags­miðlum eru kloss­arnir nán­ast ófá­an­legir þar sem YouTube- og TikTok-stjörnur hafa gert kloss­ana, sem eitt sinn þóttu með því hall­æris­legra sem fyr­ir­finnst, að því allra heitasta í dag.

Johann Adam Birkenstock stofn­aði fyr­ir­tækið árið 1774 í Neustadt í Þýska­landi og saga skófram­leið­and­ans því nærri 250 ára gömul. Birkenstock vildi hanna skó með þæg­indin í fyr­ir­rúmi, skó sem syðja við og lag­ast að útlínum fót­anna. Skórnir voru svar við flötum sóla sem var nán­ast það eina sem fáan­legt var á þessum tíma. Árið 1896 kom Birkenstock-kork­sól­inn á markað, sem er und­ir­staðan í öllum skóm fram­leið­and­ans, og á þriðja ára­tug 20. aldar voru Birkenstock-sandalar og -klossar fáan­legir um alla Evrópu.

Birkenstock eru fyrir löngu orð­inn fasti í tísku­heim­inum en vin­sældir þeirra hafa náð hæðum og lægðum líkt og gengur og ger­ist. Hönnuðir hafa gripið tæki­færið þegar færi gefst og sem dæmi má nefna sam­starf Birkenstock og Phoebe Philo fyrir Céline þar sem „Arizona“-sandalar Birkenstock eru fóðraðir með minka­feldi og þekktir undir nafn­inu „Furkenstock“.

Þrír möguleikar í stöðunni

Birkenstock-klossar af teg­und­inni „Boston“ eru til í nokkrum útgáfum en drapp­lit­aðir, rúskinn og leður klossar eru upp­seldir í vef­verslun Birkenstock og aðeins örfá pör eru til í öðrum litum. Einungis þau sem eru afar smá­fætt, eða stór­fætt, gætu haft heppn­ina með sér.

Þrír mögu­leikar eru í stöð­unni. Aug­ljós­asti mögu­leik­inn er að bíða þol­in­móð eftir að kloss­arnir komi aftur í sölu. Líflegar umræður hafa mynd­ast á sér­stökum Birkenstock-umræðu­þræði á Reddit þar sem not­endur eru iðnir við að láta vita þegar sér­stakar týpur af kloss­unum eru aftur fáan­legir.

Annar mögu­leiki er að leita til ann­arra sölu­að­ila en Birkenstock-versl­ana, en þar gengur einnig hratt á birgð­irnar. Kristen Seninger, 24 ára, er ein fjöl­margra sem hefur verið á hött­unum eftir Birkenstock-klossum. Í lok ágúst hringdi hún oft á dag, fimm daga í röð, í skó­búð­ina Journeys í San Francisco, þar til henni tókst ætl­un­ar­verkið.

„Stelp­urnar í búð­inni voru farnar að þekkja mig. Þær höt­uðu mig, en okkur tókst að tryggja vör­una í dag,“ sagði hún í mynd­skeiði sem hún birti á TikTok, him­in­lif­andi með árang­ur­inn. Seninger segir í sam­tali við New York Times, sem hefur gert ítar­lega grein­ingu á vin­sældum „Boston“, að starfs­mað­ur­inn sem seldi henni kloss­ana hafa verið spennt yfir því að hún hafi loks­ins náð pari.

Svo er það þriðji mögu­leik­inn, að leita að pari á upp­sprengdu verði á sölu­síðum á borð við eBay og Poshmark. Dæmi eru um að par hafi selst þar á tvö­földu smá­sölu­verði, allt upp í 350 doll­ara, eða sem nemur rúmum 50 þús­und krónum.

50 þúsund krónur fyrir klossa

Sarah Cowie, end­ur­skoð­andi frá Michigan, greiddi 330 doll­ara fyrir sitt par. „Ég var svo sein í partýið að þeir voru upp­seldir alls staðar,“ segir hún. Klossana sá hún hjá upp­á­halds YouTube-stjörn­unni sinni, Gretchen Geraghty, og gat varla hugsað um annað þar til hún eign­að­ist þá. En kloss­arnir eru umdeildir. „Sumum finnst þeir mjög sætir en aðrir kalla þetta kart­öflu­skóna,“ segir Cowie.

Cowie keypti kloss­ana af Savanna Huml, sem var snemma í því í jóla­gjafainn­kaupum þegar hún keypti fimm pör í sumar og ætl­aði að gefa vin­konum sínum og systur. Þegar hún átt­aði sig á vin­sældum kloss­anna ákvað hún að láta slag standa og selja þá á sölu­síð­unni Poshmark.

Pörin hefur hún selt á allt að 350 doll­ara og hefur hún fengið ýmsar athuga­semdir frá not­endum þar sem hún hefur meðal ann­ars verið sökuð um að verð­leggja alltof hátt. Sumar athuga­semd­irnar eru það ljótar að Huml hefur til­kynnt þær til Poshmark sem áreitni. Huml bjóst við að ljót­ustu athuga­semd­irnar væru frá ung­lings­stelpum. „Þetta virð­ast vera mömmur, mæður sem eru að áreita mig á net­inu af því að ég á par af Boston-klossum sem dætur þeirra girn­ast,“ segir Huml.

Vin­sældir kloss­anna urðu ekki til á einni nóttu. Rúmt ár er síðan stjörnur eins og Kendall Jenner og Kaia Gerber (dóttir Cindy Crawford) skört­uðu kloss­unum. Þegar YouTube-stjörnur á borð við Emma Chamberlain fóru að dásama kloss­ana var svo ekki aftur snúið.

Sala á „Boston“-kloss­unum hefur marg­fald­ast að sögn full­trúa Birkenstock, sem þó gat ekki gefið New York Times nákvæma sölu­tölu, annað en að sölu­aukn­ing­una megi telja í tugum pró­senta og að eft­ir­spurn almennt hafi verið umfram fram­boð síð­ustu tíu ár.

Tíminn mun leiða í ljós hvort Birkenstock-kloss­arnir séu komnir til að vera. Það verður þó að telj­ast ólík­legt þar sem sam­fé­lags­miðlar, og þá sér­stak­lega TikTok, eru vett­vangur æðanna og spurn­ingin ætti því frekar að vera: Hvaða æði kemur næst?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfélagsmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár