Milljónamæringaskattur til að laga samgöngukerfið

Borg­ar­stjóri New York-borgar ætlar að hækka skatta á rík­ustu íbúa borg­ar­innar til að greiða fyrir end­ur­bætur á almenn­ings­sam­göngu­kerfi hennar og nið­ur­greiðslu fyrir fátæk­ustu íbúa borg­ar­innar. Skatt­ur­inn leggst á tæp­lega eitt pró­sent íbúa.

Bill De Blasio, borgarstjóri New York-borgar, sést hér í gleðigöngu hinsegin samfélagins í borginni fyrr í sumar.
Bill De Blasio, borg­ar­stjóri New York-borgar, sést hér í gleði­göngu hinsegin sam­fé­lag­ins í borg­inni fyrr í sumar. Mynd: EPA

Bill De Blasio, borg­ar­stjóri New York-borgar, ætlar að leggja fram til­lögu sem felur í sér að hækka skatta á rík­ustu íbúa borg­ar­innar til að borga fyrir end­ur­bætur á almenn­ings­sam­göngu­kerfi hennar. Auk þess eiga við­bót­ar­tekj­urnar að greiða fyrir því að fátæk­ari borg­ar­búum bjóð­ist betri kjör á almenn­ings­sam­göngum. Þetta var til­kynnt í gær. The New York Times greinir frá.

Íbúar New York borgar greiða sér­stakan tekju­skatt til borg­ar­yf­ir­valda til við­bótar við þá skatta sem þeir greiða til alrík­is­ins og rík­is­ins. Sá skattur er þrepa­skiptur og því hærri sem laun við­kom­andi eru, því meira greiðir hann í skatta. Í frétt blaðs­ins segir að De Blasio muni kynna nýja skatt­inn, sem í felst hækkun á hæsta tekju­skatts­þrepi borg­ar­innar úr 3,9 pró­sent í 4,4 pró­sent, í dag mánu­dag. Hinn svo­kall­aði millj­óna­mær­inga­skattur á að skila á bil­inu 700 til 800 millj­ónum dala – 73 til 84 millj­örðum íslenskra króna – á ári í við­bót­ar­tekjur fyrir borg­ina. Skatt­ur­inn á að greið­ast af öllum ein­stak­lingum með meira en 500 þús­und dali í árs­tekjur (rúm­lega 52 millj­ónir króna) og af hjónum með yfir eina milljón dali í árs­tekjur (rúm­lega 104 millj­ónir króna). Emb­ætt­is­menn New York-borgar áætla að um 32 þús­und íbúar borg­ar­innar muni þurfa að greiða við­bót­ar­skatt­inn, eða tæp­lega eitt pró­sent þeirra ein­stak­linga sem greiða skatta í borg­inni.

Pen­ing­anna á að mestu að nota í að laga neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfið í New York, sem er eitt elsta almenn­ings­sam­göngu­kerfi í heimi. Það er líka eitt það mest not­að­asta. Kerfið er farið að láta veru­lega á sjá og nauð­syn­legt er að fjár­festa umtals­vert í við­haldi og end­ur­bótum á því, sem er afar kostn­að­ar­samt. Á und­an­förnum árum hafa rekstr­ar­að­ilar þess, opin­ber stofnun sem leigir kerfið af New York-borg, þurft að hækka miða­verð umtals­vert til að standa straum af kostn­aði vegna þessa. Auk þess stendur til að bæta stræt­is­vagna­kerfi borg­ar­innar.

En pen­ing­arnir sem millj­óna­mær­inga­skattur De Blasio á að skaffa munu ekki ein­ungis renna beint í slíkar betrumbætur. Um 250 millj­ónir dala (um 26 millj­arðar króna) eiga að fara í að nið­ur­greiða almenn­ings­sam­göngu­kort fyrir lág­launa­fólk sem býr í borg­inni. Þeir sem áætl­unin nær yfir munu fá kortin á hálf­virði. Miðað er við þá íbúa sem eru við eða undir skil­greindum fátækt­ar­mörkum, en það eru fjöl­skyldur sem eru með 24,5 þús­und dali, rúm­lega 2,5 millj­ónir króna, í árs­tekjur eða minna. Talið er að um 800 þús­und íbúar New York-borgar muni geta fengið nið­ur­greidd lest­ar­kort sam­kvæmt áætl­un­inni. Samkvæmt töl­fræði sem borgin tekur saman eru konur lík­legri til þess að búa við fátækt í henni en karlar og hlut­fall fátækra er mun hærra hjá svörtum, spænsku­mæl­andi og íbúum af asískum upp­runa en hvítum íbúum New York.

De Blasio, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri sem borg­ar­stjóri í kosn­ingum sem fara fram í nóv­em­ber næst­kom­andi, segir í yfir­lýs­ingu að það þurfi að færa almenn­ings­sam­göngu­kerfi borg­ar­innar inn í 21. öld­ina. „Frekar en að senda reikn­ing­inn til vinn­andi fjöl­skyldna og not­enda lesta og stræt­is­vagna sem þegar finna fyrir hærri far­gjöldum og verri þjón­ustu, þá erum við að biðja rík­asta fólkið í borg­inni til að leggja aðeins meira til og hjálpa okkur að færa almenn­ings­sam­göngu­kerfið okkar inn í 21. öld­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

newyork

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár