Ritstjóri Stundarinnar: Búið að þagga málið niður fram yfir kosningar

Rit­stjóri Stund­ar­innar segir lög­bannið for­kast­an­legt inn­grip í frjálsa fjöl­miðlun.

Jón Trausti Reyn­is­son, annar rit­stjóra Stund­ar­innar, var afar ósáttur við lög­bannið sem sett hefur verið á frétta­flutn­ing fjöl­mið­ils­ins upp úr gögnum frá Glitni er varða við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Hann segir að lög­bannið taki til þess, að Stundin megi ekki vinna fréttir upp úr gögn­unum og geti því ekki birt frek­ari fréttir um mál, þar til réttaró­vissu um heim­ild til þess hefur verið eytt.

Málið er nú á leið­inni fyrir dóm­stóla, en að sögn Jón Trausta hefur Glitnir Holdco ehf., eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka Glitn­is, viku til þess að rök­styðja lög­bannið fyrir dóm­stól og leggja fram stefnu máli sínu til stuðn­ings. Ljóst sé að nið­ur­staða muni ekki fást í málið fyrr en eftir kosn­ing­arnar 28. októ­ber, næst­kom­andi.

Jón Trausti segir að öllum kröfum Glitnis Holdco hafi verið kröft­ug­lega mót­mælt af Stund­inni, enda eigi umfjöll­unin erindi við almenn­ing. Hún fjalli um sam­spil við­skipta og stjórn­mála, í aðdrag­anda hruns­ins.

Hann segir aðgerðir eins og þessar „hættu­legar í lýð­ræð­inu“, og hann telur að dóm­stólar muni ekki fall­ast á þessa heftun á tján­inga­frels­inu þegar á reynir.

Stundin hefur unnið úr gögnum og birt umfjöllun, í sam­starfi við The Guardian og Reykja­vík Media, að ein­hverju leyti. Lög­bannið nær einnig til frétta The Guardian og Reykja­vík Media.

Umfjöll­unin hefur birst í röð frétta þar sem fjallað erum lán­veit­ingar, hluta­bréfa­við­skipti, per­sónu­legar ábyrgðir á lánum, og sam­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar við banka­menn og við­skipta­fé­laga, í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár