Hagsmunagengi krónunnar

Gengi krón­unnar er þrætu­epli nú sem fyrr. Vaxandi áhyggjur eru nú í atvinnu­líf­inu af því að gengi krón­unnar muni styrkj­ast of mikið við frek­ari losun hafta.

Gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum er enn einu sinni orðið að þrætu­epli hjá hags­muna­að­ilum á Íslandi. Þeir hafa áhyggjur af því hvert gengi krón­unnar verður gagn­vart erlendum myntum, þegar höft verða losuð. Á rúm­lega ári hefur tónn­inn í áhyggju­rödd­unum gjör­breyst. Á fyrra hluti árs í fyrra höfðu margir áhyggjur af því að krónan myndi veikj­ast mikið við losun fjár­magns­hafta, eftir að áætl­unin um losun hafta var kynnt, en nú hafa þau við­horf að mestu snú­ist við. Nú ótt­ast margir að krónan muni styrkj­ast of mikið, með til­heyr­andi erf­ið­leikum fyrir útflutn­ings­fyr­ir­tæki og þjón­ustu á Íslandi sem reiða sig á erlendar tekjur. Evran kostar nú 140 krónur og hefur gengi krón­unnar gagn­vart henni styrkst nokkuð að und­an­förnu. 

Hvað ger­ist ef evran fer í 120 krónur, eða jafn­vel 100 krónur? Þegar stórt er spurt, er oft fátt um svör. Ólíkir hags­munir veg­ast á í þessu. Sumir hagn­ast á því að krónan hald­ist á svip­uðum slóðum og hún er nú, á meðan styrk­ing krón­unnar getur skilað sér í auk­inni neyslu inn­an­lands, þar sem inn­fluttar vörur verða ódýr­ari.

Þarf að fylgjast með

Í jan­úar í fyrra kost­aði evran 155 krónur, svo dæmi sé tekið. Um 60 pró­sent af útflutn­ingi Íslands er inn á evru­svæðið, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Einn af þeim sem hefur áhyggjur af því, að mikið inn­flæði gjald­eyris muni styrkja krón­una enn meira á þessu ári, er Grímur Sæmund­sen, for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og stærsti eig­andi Bláa lóns­ins, þar sem hann er jafn­framt for­stjóri. Sagði hann á árs­fundi Samtaka ferða­þjón­ust­unnar að „yf­ir­vof­andi styrk­ingu ís­lensku krón­unn­ar við af­nám gjald­eyr­is­hafta vera ógn en „geysi­mikið inn­flæði gjald­eyr­is vegna upp­gangs ferða­þjón­ust­unn­ar“ hafi ger­breytt for­send­um um af­nám haft­anna.

Hvatti hann stjórn­völd til að standa vakt­ina í þess­um efn­um og „tryggja með nauð­syn­leg­um mót­væg­is­að­gerðum, að krón­an styrk­ist ekki frek­ar en nú er stað­reynd.“

Lokahnykkurinn

Í dag er árs­fundur Seðla­banka Íslands, og hefur Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, boðað að tíð­indi verði flutt af losun fjár­magns­hafta, og er fast­lega búist við því að þar sé um að ræða tíma­setn­ingu á útboðum til að losa um hengju aflandskróna. Um er að ræða loka­hnykk­inn í áætlun stjórn­valda um afnám fjár­magns­hafta, en nú þegar hafa slitabú Glitni, Lands­bank­ans og Kaupþing greitt stöð­ug­leika­fram­lag, sem er nærri 400 millj­örðum króna. Liður í því er meðal ann­ars að ríkið hefur eign­ast Íslands­banka að öllu leyti, og á nú stóran hluta fjár­mála­kerf­is­ins. Lands­bank­inn, Íslands­banki, Íbúða­lána­sjóður, Lána­sjóður íslenskra náms­manna (LÍN) og Byggða­stofnun eru nú í rekstri rík­is­ins, og er ríkið nú með um 75 til 80 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á mark­aði fjár­mála­þjón­ustu. Arion banki er 87 pró­sent í eigu kröfu­hafa Kaup­þings og 13 pró­sent í eigu rík­is­ins.

Þurfa að vera á tánum

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands og doktor í hag­fræði, segir að Seðla­banki Íslands þurfi að fá ­„öflug“ stýri­tæki til að stýra fjár­magns­flæði, til að koma í veg fyrir ójafn­vægi í hag­kerf­inu. „

Það er auð­vitað ekk­ert eitt gengi sem skilur á milli feigs og ófeigs. Raun­gengið hefur styrkst mjög mikið frá því það var lægst 2009-2010 og er nú orðið svipað og það var að jafn­aði síð­asta ára­tug­inn fyrir bólu, þ.e. frá miðjum tíunda ára­tug síð­ustu aldar til u.þ.b. 2004. Hækkunin mun fyr­ir­sjá­an­lega eyða þeim afgangi sem við höfum búið við á við­skipta­jöfn­uði allt frá hruni fyrr eða síðar. Æski­legra væri lík­lega að raun­gengið væri ívíð veik­ara en núna og áfram væri smáaf­gangur á við­skipta­jöfn­uði. Það er vissu­lega hætta á því að hingað streymi fé þegar höftin verða afnumin og það hækki nafn­gengið í ljósi þess að vextir eru háir hér­lendis en nán­ast núll í öllum nágranna­lönd­unum. Seðla­bank­inn verður að vera - og verður örugg­lega - á tánum vegna þess. Hann þarf þó að fá öfl­ugri tæki til að stýra fjár­magns­flæð­inu til og frá land­inu en hann hafði fyrir hrun. Frjálsir fjár­magns­flutn­ingar eins og tíðk­uð­ust fyrir hrun koma von­andi aldrei aftur þótt höftin sem hafa verið frá 2008 verði afnumin sem slík,“ segir Gylfi.

Mikil breyting á skömmum tíma

Það sem helst hefur bætt í gjald­eyr­is­flæði til lands­ins er ferða­þjón­ustan. Því er spáð að erlendir ferða­menn verði 1,6 millj­ónir á þessu ári, en fyrir aðeins fimm árum voru þeir innan við 500 þús­und. Gjald­eyr­is­inn­streymi vegna ferða­þjón­ust­unnar verður yfir 400 millj­arðar á þessu ári sam­kvæmt nýlegri spá Íslands­banka, meira en hjá nokk­urri annarri atvinnu­grein, og er vægi ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðsl­unni komið í 32 pró­sent. Þessi hraða breyt­ing hefur breytt miklu, og gera flestar hag­spár ráð fyrir því að vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu verði á bil­inu 20 til 30 pró­sent á ári, næstu árin.

Hvað mun krónan kosta?

Árið 2007 kost­aði Banda­ríkja­dalur 58 krónur, þegar krónan var sterk­ust, en núna kostar hann 128 krónur. Svipað gildir um evr­una, sem nú er á 140 krónur, en var á bil­inu 75 til 80, þegar gengi krón­unnar var sem sterkast fyrir hrunið. Það sem erfitt er að segja til um núna, er hversu mikil inn­grip Seðla­banka Íslands verða á gjald­eyr­is­mark­aði, með það að leið­ar­ljósi að ver­anda sam­keppn­is­hæfni hag­kerf­is­ins, og tryggja stöð­ug­leika. Það er ekki víst að seðla­bank­inn geti leyft sér að halda gengi krón­unnar á svip­uðum stað og það er núna, ef gjald­eyr­is­inn­streymi verður jafn mikið og spár segja til um.

En gengið er áhrifa­mik­ill þáttur þegar kemur að verð­bólgu­horfum. Seðla­bank­inn getur því ekki annað, í ljósi verð­bólgu­mark­miðs upp á 2,5 pró­sent, en horft til þess hvernig gengi krón­unnar er að þró­ast. Um þessar mundir mælist verð­bólga 2,2 pró­sent, og metur Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, stöðu mála þannig að verð­bólga muni fara hækk­andi. „Verð­bólga mæld­ist 2,2% í febr­úar og hefur auk­ist um ríf­lega 1 pró­sentu frá því sem hún var fyrir ári. Sem fyrr veg­ast þar á inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur og inn­flutt verð­hjöðnun á alþjóð­legum vöru­mörk­uðum. Áfram er útlit fyrir að verð­bólga verði undir mark­miði fram eftir ári en horfur eru óvissar, m.a. varð­andi inn­flutn­ings­verð­lag[...]Alþjóð­leg verð­lags­þróun og sterk­ari króna hafa veitt svig­rúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauð­syn­legt. Það breytir hins vegar ekki því að miðað við spá Seðla­bank­ans er lík­legt að auka þurfi aðhald pen­inga­stefn­unnar frekar á næstu miss­erum í ljósi vax­andi inn­lends verð­bólgu­þrýst­ings. Hve mikið og hve hratt það ger­ist ræðst af fram­vind­unni,“ segir í rök­stuðn­ingi nefnd­ar­innar, fyrir ákvörðun um að halda stýri­vöxtum óbreyttum í 5,75 pró­sentum.

Sem fyrr mun gengi krón­unnar hafa mikil á það, hvernig hag­kerfið mót­ast á næstu árum, og þrátt fyrir að öll merki séu um að gjald­eyr­is­inn­streymi um aukast veru­lega, og upp­gangur verða í efna­hags­líf­inu, þá má krónan ekki styrkj­ast of mikið. Því ef það ger­ist, þá þrengir að útflutn­ingi og ferða­þjón­ustu, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum fyrir heild­ar­mynd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár