Kvika búin að kaupa Netgíró

Kvika banki hefur lokið við kaup sín á öllu hlutafé í Netgíró, þremur mán­uðum á eftir áætlun.

Marínó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku
Marínó Örn Tryggva­son, for­stjóri Kviku Mynd: Aðsend

Kvika banki hefur nú keypt upp allt hlutafé í Netgíró, hálfu ári eftir að vilja­yf­ir­lýs­ing um það var rituð. Yfir­lýs­ingin sneri að 80 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu, en bank­inn átti fyrir um 20 pró­senta eign­ar­hlut.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Kviku sem birt var á vef Kaup­hall­ar­innar fyrr í dag. Samkvæmt til­kynn­ing­unni eru kaupin í sam­ræmi við stefnu bank­ans að nýta tækni­lausnir til þess að nútíma­væða fjár­mála­þjón­ustu, en bank­inn hafði áður sett upp fjár­tækni­þjón­ust­una Auði í sama til­gangi.

Sex mánuðir í stað þriggja

Í vilja­yf­ir­lýs­ingu sinni fyrir sex mán­uðum síðan áætl­aði Kvika að gengið yrði frá kaup­samn­ingi við Netgíró innan við þriggja mán­aða, en þá átti eftir að fá sam­þykki stjórnar Kviku, auk nið­ur­staðna áreið­an­leika­könn­unar og sam­þykki eft­ir­lits­að­ila.

Bankinn mun birta afkomu­spá fyrir árið 2021 þann 28. jan­úar næst­kom­andi. Í spánni er gert ráð fyrir að kaupin á Netgíró hafi jákvæð áhrif á afkomu árs­ins en stefnt er að því að þau áhrif auk­ist tölu­vert þegar horft er til næstu ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár