Kvika vill kaupa Netgíró

Áætlað er að ganga frá kaup­samn­ingi innan þriggja mán­aða en ef kaupin ganga í gegn mun Kvika vera eini eig­andi félags­ins.

Kvika hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á 80 pró­sent hlut í Netgíró en fyrir á bank­inn um 20 pró­sent hlut í félag­inu og verður því eini eig­andi þess ef kaupin ná fram að ganga. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu bank­ans til Kaup­hall­ar­innar.

Vilja­yf­ir­lýs­ingin er gerð með ýmsum fyr­ir­vörum, svo sem um sam­þykki stjórnar Kviku, nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar og sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Áætlað er að ganga frá kaup­samn­ingi innan þriggja mán­aða, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

„Kaupin hafa ekki áhrif á afkomu­spá bank­ans fyrir árið í ár en stefnt er að því að kaupin hafi jákvæð áhrif á afkomu bank­ans til lengri tíma.“

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að kaup á Netgíró séu í sam­ræmi við stefnu bank­ans að nýta tækni­lausnir til þess að nútíma­væða fjár­mála­þjón­ustu. Netgíró hafi lagt áherslu á að þróa láns­hæf­is­möt ásamt því að bjóða rað­greiðslur með ein­földum hætti. Áður hafi bank­inn sett fjár­tækni­þjón­ust­una Auði á lagg­irnar með góðum árangri.

Kvika hafi átt far­sælt sam­starf við Netgíró á und­an­förnum árum, meðal ann­ars varð­andi fjár­mögnun á kröfusafni félags­ins. Kaupin geri bank­anum kleift að efla enn frekar sam­starfið við Netgíró sem leiði til auk­innar skil­virkni og hag­ræð­ingar hjá báðum aðilum. Netgíró er nú á tæp­lega 3.000 sölu­stöðum á land­inu og yfir 68.000 ein­stak­lingar eru í við­skiptum við fyr­ir­tækið.

Marinó Örn Tryggva­son, for­stjóri Kviku, segir í til­kynn­ing­unni að þau sjái tæki­færi í Netgíró til fram­tíðar enda sé félagið með háa mark­aðs­hlut­deild og hjá því starfi öfl­ugir og reynslu­miklir starfs­menn. „Vænt­an­leg kaup bank­ans á Netgíró falla vel að stefnu bank­ans um þróun fjár­mála­þjónstu byggða á hag­kvæmum tækni­lausnum. Með sterka inn­viði og fjár­hags­legan styrk bank­ans á bak­við sig teljum við félagið vera í góðri stöðu til að sækja fram á næstu miss­erum.“

Skorri Rafn Rafnsson, stjórn­ar­for­maður Alva Holding ehf., móð­ur­fyr­ir­tækis Netgíró, segir að vilja­yf­ir­lýs­ingin sé mikið gleði­efni og um leið stað­fest­ing á því „sem við hjá Netgíró höfum unnið að frá stofnun félags­ins. Afburða starfs­fólk, skýr fram­tíð­ar­sýn og mikil vinna hefur skapað fyr­ir­tæk­inu þann sess sem það nú skipar. Við vitum að framundan eru spenn­andi tímar og mikil tæki­færi til vaxtar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár