Botninn sem fannst aldrei

Í dag eru 90 ár frá Svarta þriðju­deg­inum, sem skók Wall Street og hag­kerfi heims­ins. Glund­roði skap­að­ist sem ýtti Krepp­unni miklu af stað.

„Þrátt fyrir allt þá eru stoð­irnar traustar og efna­hags­lífið sömu­leiðis. Margt bendir til þess að botn­inn sé nú fund­inn á mark­aðnum, og að fjár­festar eigi að koma með pen­inga sína aftur inn á mark­að­inn.“

Þetta sagði Irving Fisher, virt­asti hag­fræð­ingur Banda­ríkj­anna, í dramat­ísku útvarps­ávarpi, fyrir 90 árum í dag.

Þá skók Svarti þriðju­dag­ur­inn hluta­bréfa­mark­aði.

Ólíkt því sem Fisher hélt fram - í veikri von um að mynda traust á verð­bréfa­mörk­uðum - þá fannst botn­inn ekki þennan þriðju­dag, og raunar má segja að hann hafi ekki fund­ist fyrr en skelf­ing Krepp­unnar miklu í Banda­ríkj­unum var búin að hreiðra um sig, ekki síst í vöggu efna­hags­lífs Banda­ríkj­anna á þessum tíma, New York.

Hér varð mikið hrun

Hluta­bréfa­verð hrundi svo til upp úr þurru, um 12 pró­sent á þessum þriðju­degi, og á næstu þremur árum á eftir fór það niður um 84 pró­sent.

Þetta er meðal ann­ars rifjað upp í hlað­varpi NPR í dag.

Kreppan mikla stóð lengi, frá 1929 og fram til árs­ins 1939. Það er sá tími sem oft­ast er afmark­aður við þennan erf­iða kafla í sögu Banda­ríkj­anna og heims­ins alls.

Á undra­skömmum tíma misstu millj­ónir manna vinn­una í Banda­ríkj­unum, og fór atvinnu­leysi upp í 25 pró­sent og hélst þannig í meira en 7 ár. Staðan var sér­stak­lega erfið á borg­ar­svæðum vítt og breitt um landið, og hefur stundum verið sagt að villta vestrið hafi í raun ráðið ríkjum, á svörtum mark­aði sem mynd­að­ist þegar fjórði hver full­orð­inn maður hafði ekki vinnu.

Stríðsáhrifin

Stór hópur þeirra sem þó hafði vinnu, var ekki með góð laun. Þetta var einn erf­ið­asti tímí sögu Banda­ríkj­anna og lauk honum í raun ekki, fyrr en ákveðið var að nýta stór­aukin hern­að­ar­um­svif sem stuð­puða fyrir efna­hag­inn.

Seinni heim­styrj­öldin stóð sem hæst 1939 til 1945, en und­an­fari hennar voru afar erf­iðar efna­hags- og félags­legar aðstæður í Evrópu og Banda­ríkj­unum.

Munaði minnstu að við færum þangað aftur

Kreppan mikla hefur verið rann­sökuð innan hag­fræði- og sagn­fræði - og lík­lega svo til allra fræði­greina - ára­tugum saman, og mikið verið skrifað um hana frá ýmsum hliðum.

Ben Bernanke, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, fjallar um hana í bók sinni Courage To Act, í sam­hengi við aðstæð­urnar sem mynd­uð­ust á fjár­mála­mörk­uðum á árunum 2007 til 2009, þegar hann var Seðla­banka­stjóri.

Hann sagði, með John Paulson þáver­andi fjár­mála­ráð­herra sér við hlið, við banka­stjóra stærstu bank­ana á Wall Street, að hann hefði eytt allri starfsævi sinni í að rann­saka Kreppuna miklu. „Staðan núna er verri“ sagði hann við banka­stjór­ana.

Bernanke hefur haldið því fram, að innan við tveimur sól­ar­hringum hafi munað, frá því að sam­bæri­legar eða verri aðstæður sköp­uð­ust í Banda­ríkj­unum, árið 2008, og voru uppi í Krepp­unni miklu.

Hvernig má það vera?

Hann segir að það litlu hafi munað, að það botn­frysti hrein­lega á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum, með til­heyr­andi keðju­verk­andi áhrifum - eins og sköp­uð­ust eftir Svarta þriðju­dag­inn. Fyr­ir­tæki gátu þá allt í einu ekki borgað laun, tekjur bár­ust ekki. Það ein­fald­lega stöðv­að­ist allt. Kreppan kom eins og nátt­úru­ham­farir.

Næst verður þetta öðruvísi

Hag­fræð­ingar og sagn­fræð­ingar segja oft, að næsta kreppa verði ekki eins og sú síð­asta, en hún mun koma. Enginn veit hvenær, og hvernig áhrifin verða.

Svarti þriðju­dag­ur­inn er þekktur í sögu Banda­ríkj­anna sem einn áhrifa­mesti við­burður í efna­hags­sögu þessa flókna ríkja­banda­lags. Botninn fannst ekki, fyrr en mörgum árum síðar, þegar jörðin var sviðin og lífs­bar­áttan hörð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár