Sýna minni tryggð við stjórnmálaflokka

Á síðustu þremur áratugum hefur hlutfall tryggra kjósenda stjórn­málaflokka lækkað töluvert, samkvæmt nýbirtri fræði­grein Evu H. Önnu­dóttur og Ólafs Þ. Harðar­sonar.

Eva Heiða Önnudóttir, doktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Eva Heiða Önnu­dóttir, doktor við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands Mynd: Ólafur Þ. Harðarson

Tryggð íslenskra kjósenda við stjórn­málaflokka hefur farið minnkandi á síðustu þremur áratugum, þrátt fyrir að hugmynda­fræðileg gjá milli borgar og lands­byggðar standi óbreytt. Þetta eru niður­stöður nýrrar fræði­greinar stjórnmála­fræðinganna Evu Heiðu Önnu­dóttur og Ólafs Þ. Harðar­sonar við Háskóla Íslands.

Í greininni, sem birtist í nýjasta tölublaði Stjórn­mála og Stjórn­sýslu á dögunum, er farið yfir kosninga­hegðun Íslendinga eftir niður­stöðum úr Íslensku kosninga­rann­sókninni frá árunum 1983 til 2017. Rann­sóknin var framkvæmd í kjölfar hverra Alþingis­kosninga sem fóru fram á þessu tímabili, en þær voru alls tíu.

Hnignun Fjórflokks breytti litlu

Niður­stöður Evu og Ólafs bentu til þess að fylgis­minnkun Fjór­flokksins og ris fjölda nýrra stjórn­málaflokka hafi haft lítil kerfislæg áhrif á hegðun íslenskra kjósenda. Hugmynda­fræðileg gjá milli borgar og sveitar hefur nokkurn veginn haldist óbreytt á tíma­bilinu, enn sé jafnstór munur á kosninga­hegðun kjósenda í dreifbýli og þéttbýli og fyrir þremur áratugum síðan. Gjáin í stefnu­málum milli hægri- og vinstri­flokka er sömuleiðis jafnstór nú og árið 1983, en hún minnkaði tíma­bundið á árunum 2003 til 2013.

Helsta breytingin sem hefur átt sér stað í kosninga­hegðun Íslendinga er hins vegar aukinn sveigjanleiki kjósenda. Atkvæði fara í minni mæli eftir þjóð­félagsstöðu kjósenda, auk þess sem ekki skiptir jafnmiklu máli nú og áður að kjósandi velji flokk sem er hugmynda­fræðilega nálægt honum á hægri-vinstri ásnum. Samhliða því hefur tryggum kjósendum stjórn­málaflokka einnig farið fækkandi á þremur áratugum.

Til útskýringar á niður­stöðum sínum nefna Eva og Ólafur tvær hugsanlegar afleiðingar hvers vegna fylgi sé ekki jafn­bundið ákveðnum stjórn­málaflokkum-og stefnum og áður. Annars vegar gæti mikill fjöldi nýrra flokka valdið því að kjósendur séu ekki jafn­upplýstir um hvar þeir liggja á hægri-vinstri ás stjórn­málanna og kjósi því oftar flokka sem samrýmast þeirra stjórnmála­skoðunum ekki jafnvel. Hins vegar er einnig möguleiki á að Íslendingar kjósi í auknum mæli af ástæðum sem séu ótengdar hægri-vinstri ás stjórn­mála­flokkanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár