Helmingur kvenna háskólamenntaður á móti þriðjungi karla

Hlutfall karla og kvenna sem voru ein­göngu með grunn­menntun var um helm­ingi hærra utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en á því sam­kvæmt nýjum tölum Hag­stof­unnar.

Rúmur helm­ingur kvenna 25–64 ára var með háskóla­menntun árið 2017 sam­an­borið við rúm­lega þriðj­ung karla á sama aldri. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar.

Ef litið er til búsetu voru 56 pró­sent kvenna og 43 pró­sent karla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með háskóla­menntun en 41 pró­sent kvenna og 20 pró­sent karla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá voru 39 pró­sent karla og 26 pró­sent kvenna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með starfs- og fram­halds­menntun en 47 pró­sent karla og 29 pró­sent kvenna utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Hlutfall karla og kvenna sem voru ein­göngu með grunn­menntun var um helm­ingi hærra utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en á því.

Atvinnu­þátt­taka kvenna var tæp 79 pró­sent árið 2017, þátt­taka karla var rúm 86 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár