Sterkasti maður heims vill 10 milljónir

Magnús Ver Magn­ús­son afl­rauna­maður reisir kröfu fyrir hér­aðs­dómi vegna hler­ana. Lög­reglan hler­aði hann og var með búnað í bif­reið hans í þrjú ár.

Hleraður
Hleraður Magnús Ver Magn­ús­son hefur stefnt íslenska rík­inu vegna tæp­lega þriggja ára eft­ir­lits lög­reglu. Mynd: Maks D

Magnús Ver Magn­ús­son afl­rauna­maður krefst þess að fá 10 millj­ónir króna í bætur vegna sím­hler­ana lög­reglu sem stóðu í 34 mán­uði. Magnús, sem var sterkasti maður heims, telur aðgerðir og eft­ir­lit lög­reglu hafa verið mann­rétt­inda­brot, ólög­legt og meið­andi. Krafan er tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. 

Málið er rakið til þess að Magnús Ver fékk sím­tal frá lög­regl­unni í ágúst síð­ast liðnum. Þar var honum til­kynnt að lög­reglan hefði hlerað síma hans og komið fyrir hler­un­ar­bún­aði og eft­ir­far­ar­bún­aði í bif­reið hans. Þannig gat lög­reglan fylgst með öllum hans ferðum. Magnús krafði lög­reglu­mann­inn um frek­ari upp­lýs­ingar en var þá ráð­lagt að fá sér lög­mann. 

Eftirlit lög­regl­unnar stóð í tæp þrjú ár, eða frá því í jan­úar 2012 til októ­ber 2014. Þetta var vegna grun­semda um að Magnús Ver hefði átt aðild að stór­felldu fíkni­efna­smygli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár