Stýrivextir óbreyttir – Áfram 4,25 prósent

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands til­kynnti í morgun að stýri­vextir verði óbreyttir. Verð­bólga dróst saman milli mán­aða og er nú 2,3 pró­sent.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands verða áfram 4,25 pró­sent sam­kvæmt ákvörðun Pen­inga­stefnu­nefndar hans sem kynnt var í morg­un. Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum segir að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri muni á kynn­inga­fundi um vaxta­á­kvörð­un­ina, sem hefst klukkan 10, koma með yfir­lýs­ingu um sér­staka bindi­skyldu.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að verð­bólga í febr­úar hafi verið 2,3 pró­sent í febr­úar og minnk­aði úr 2,4 pró­sent mán­uð­inn áður. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga hjaðn­aði einnig lít­il­lega. Áfram hefur dregið úr árs­hækkun hús­næð­is­verðs og áhrif hærra gengis krón­unnar hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næst­unni. Gengi krón­unnar hefur hækkað frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar og gjald­eyr­is­mark­að­ur­inn hefur áfram verið í ágætu jafn­vægi. Verð­bólgu­horfur hafa lítið breyst frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar en verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa hækkað lít­il­lega. Of snemmt er þó að álykta um hvort kjöl­festa þeirra við verð­bólgu­mark­mið bank­ans hafi veikst.

Hátt raun­gengi hefur hægt á vexti útflutn­ings og horfur eru á minnk­andi spennu í þjóð­ar­bú­skapnum. Eigi að síður er áfram þörf fyrir pen­inga­legt aðhald til að halda aftur af örum vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar. Nýleg ákvörðun um að segja ekki upp kjara­samn­ingum dregur úr hættu á ósjálf­bærum launa­hækk­unum til skamms tíma litið en und­ir­liggj­andi spenna á vinnu­mark­aði er enn til staðar.“

Verð­­bólga hefur verið undir 2,5 pró­­sent mark­miði Seðla­­banka Íslands í 49 mán­uði sam­fleytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár