Endilega breytum. Ég skal ráða

Hvers vegna berst Sjálfstæðis­flokkurinn af svo miklum skrið­þunga gegn því sem flestir landsmenn eru sammála um að nauðsynlegt sé?

Fyrir tíu árum ákvað Alþingi að þjóðin skyldi kjósa stjórnlaga­þing til að smíða tillögur að nýrri stjórnar­skrá.

Sú hugmynd hefði fallið stjórn­málamönnum við upphaf lýðveldis­tímans vel í geð enda vildu þeir endur­skoða stjórnar­skrána frá grunni við fyrsta tækifæri. Til þess hafði ekki gefizt tími í hrað­skilnaðinum frá Dönum.

Stjórnar­skránni hefur reyndar verið breytt, en ekki í grundvallar­atriðum. Ástæðan fyrir því er ein og aðeins ein. Hún heitir Sjálfstæðis­flokkurinn.

Eina stóra breytingin

Eina veiga­mikla breytingin á stjórnar­skránni varð árið 1995, þegar nýr mann­réttinda­kafli hennar var samþykktur. Aðrar breytingar hafa mestum verið um kjördæma­skipan og kosningar.

Mann­réttinda­kaflinn var mikil­vægur, en samt að flestu leyti aðeins stað­festing á þeim skuld­bindingum sem Íslendingar höfðu undirgengizt í mann­réttinda­sáttmála Evrópu og Sameinuðu þjóðanna. Við sögðumst semsagt vilja festa í stjórnar­skrá að við værum sæmilega siðað fólk.

Nýi kaflinn hafði ekki afgerandi áhrif, en þýddi þó að til dæmis öryrkjar gátu sótt réttindamál gegn ríkis­valdinu með vísan í hann og haft sigur í Hæstarétti í kringum aldamótin. Án hinna nýju ákvæða í stjórnar­skránni hefði málið sennilega tapazt og fátækt fólk þurft að sækja rétt sinn til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu.

Fyrir sína parta sannaði breytingin gildi sitt þegar Davíð Oddsson, þáverandi forsætis­ráðherra, missti sig eftir sigur öryrkjanna. Hann kallaði dómara í Hæstarétti „spákellingar“ og stakk upp á því að túlkun á stjórnar­skránni yrði tekin frá réttinum og færð í sérstaka deild í forsætis­ráðuneytinu hans.

Af því varð sem betur fer ekki, en umræðan endur­speglaði viðhorf innan lögfræðinnar um að Hæstiréttur ætti ekki að „skrifa ný lög“ með nýrri túlkun á stjórnar­skránni, heldur fram­fylgja ströngum bókstaf. Helzti talsmaður þessa viðhorfs hefur verið Jón Steinar Gunnlaugsson.

Það er ekki aðeins í Banda­ríkjunum sem ólík viðhorf að þessu leyti takast á.

En í öryrkja­málinu – og líka kvóta­málum, sem voru flóknari en líka stærri hagsmunir undir – fengu sjálfstæðis­menn staðfest að stjórnar­skráin skiptir máli.

Eins og þeir hefðu ekki vitað það fyrir. En einmitt þess vegna eru þeir á móti veiga­miklum breytingum á henni.

Út í hött

Þjóðin kaus sér semsagt stjórnlaga­þing árið 2010 til að gera tillögur um nýja stjórnar­skrá.

Sjálfstæðis­menn kærðu hins vegar kosninguna og sjálfstæðis­menn í Hæstarétti felldu þann úrskurð, að kjörið væri ógilt. Ástæðan var hreinn tittlinga­skítur og enginn gat sýnt fram á að smávægilegir hnökrar við framkvæmdina hefðu haft nokkur áhrif á niður­stöðuna. Enda datt engum það í hug. Þetta voru bara sjálfstæðis­menn að æfa laga­tæknina sína.

Alþingi ákvað hins vegar að skipa hina kjörnu stjórnlaga­þings­fulltrúa í annað batterí, sem fékk heitið stjórnlagaráð.

Hverjir skyldu nú hafa verið mest á móti þeirri ráðstöfun? Þar sem markmiðið var enn að endur­skoða stjórnar­skrána frá grunni? Þið megið gizka tvisvar.

Svo sögunnar sé gætt, þá voru sjálfstæðis­menn ekki einir í þessari andstöðu. Það var Framsóknar­flokkurinn líka, sem er talsvert fyndið. Þegar minnihluta­stjórn Jóhönnu Sigurðar­dóttur og Steingríms J. Sigfús­sonar var mynduð snemma árs 2009 veitti Framsóknar­flokkurinn henni hlutleysi og setti meðal annars það skilyrði að boðað yrði til stjórnlaga­þings til að endur­skoða stjórnar­skrána.

Þegar Framsóknar­flokkurinn var hins vegar kominn í stjórnar­andstöðu fáeinum mánuðum seinna veitti hann Sjálfstæðis­flokknum harða samkeppni um hvor flokkurinn væri meira á móti þessari fásinnu. Þar fóru fremst í flokki Sigmundur Davíð formaður, Gunnar Bragi Sveinsson þing­flokks­formaður og Vigdís Hauks­dóttir. Hún er enda lögfræðingur.

Annar lögfræðingur, Birgir Ármannsson, sérstakur talsmaður Sjálfstæðis­flokksins í stjórnar­skrár­málum á þingi og sá sem hefur mest beitt sér í stjórnar­skrár­málum hin seinni árin, sagði „út í hött“ að skipa þetta stjórnlagaráð.

Það gerðist nú samt, ráðið tók til starfa og skilaði að mörgu leyti mjög merki­legum niður­stöðum.

Og þá hófst nú fjörið fyrir alvöru.

Ákveðið ferli

Eða þó ekki. Áður­nefndur Birgir Ármannsson er alls góðs maklegur, en seint verður hann sakaður um að standa fyrir fjöri á Alþingi.

Ég spurði eitt sinn góðan kunningja minn, mikla eftirhermu, hvernig hann myndi herma eftir Birgi.

„Það er einfalt,“ var svarið. „Tala hægt, með næstum brostinni röddu – þó ekki eins slæmri og Þorsteinn Pálsson – og vera rosalega leiðinlegur.“

Þetta er bæði ósann­gjarnt og dóna­skapur, en of góð saga til að sleppa henni. Forláttu, Birgir.

Höfum við dæmi um málflutning? Jájá. Ótalmörg.

„Stjórnar­skrár­breytingar eru án efa eitt mikil­vægasta verkefnið sem Alþingi og alþingis­mönnum er falið miðað við stjórn­skipun Íslands. Sennilega er hér um að ræða allra mikil­vægasta verkefnið enda hljóta stjórnar­skrár­breytingar að jafnaði að standa mun lengur en önnur verk okkar. Stjórnar­skrá felur í sér grundvallar­löggjöf, er grund­völlur annarra laga sem sett eru hér og á að jafnaði að geta staðið af sér sveiflur á hinu pólitíska sviði […].

Það liggur fyrir auðvitað að engar breytingar verða gerðar á stjórnar­skrá, hvorki einstökum ákvæðum né stjórnar­skránni í heild, nema fylgt sé þeim reglum sem hún sjálf kveður á um. Við þingmenn erum kjörnir til að fjalla um slíkar breytingar og berum ábyrgð á niður­stöðunni. Þessi veruleiki hlýtur að móta alla umfjöllun okkar á þingi um tillögur stjórnlaga­ráðs og eftir atvikum aðrar stjórnar­skrár­breytingar. Hér er um að ræða verkefni sem okkur er falið samkvæmt stjórnar­skránni, og þeirri ábyrgð getum við ekki vísað annað.

Starf stjórnlaga­ráðs og tillögur þess eru liður í ákveðnu ferli sem stendur yfir í sambandi við endur­skoðun stjórnar­skrárinnar.“

Þarna birtist mjög skýrt sterkt þema í málflutningi Sjálfstæðis­flokksins um tillögur stjórnlaga­ráðs. Jújú, vissulega kaus þjóðin eitthvert fólk úti í bæ til að gera þetta og seinna skipaði Alþingi það til sömu verka, en við alþingis­menn eigum engu að síður að ráða því hvað stendur í stjórnar­skránni. Það stendur í henni sjálfri.

Og allt er þetta „ákveðið ferli“.

Eruð þið sofnuð, ágætu lesendur? Ekki örvænta – þetta er ekki allt svona yfirmáta andlaust og leiðinlegt.

En það er gagnlegt að hafa í huga – þegar við hlustum núna á sjálfstæðis­menn tala um breytingar á stjórnar­skránni – að þeir tala ekki einungis niður stjórnlaga­ráðið sjálft, heldur leggja áherzlu á að alþingis­menn skuli stjórna því hvað stendur í stjórnar­skránni.

Óháð því hvað þjóðinni finnst. Eða einhverju misjöfnu fólki úti í bæ.

Þetta er laga­tæknilega rétt, en minnir óheppilega mikið á kröfu Bjarna Benedikts­sonar á sínum tíma: „Skilaðu lyklunum, Jóhanna.“ Við eigum þá nefnilega.

Efnisatriði

Hér er ekki tóm til að fara yfir þau efniastriði, sem einkum er deilt um í stjórnar­skrár­málum. Þau eru fjölmörg enda eru tillögur stjórnlaga­ráðs bæði margar og ýtarlegar. Þær má finna og lesa á stjornlagarad.is.

Nefnum þó stuttlega tvennt. Þjóðar­eign á auðlindum og þjóðar­atkvæða­greiðslur.

Um hvort tveggja var niður­staða stjórnlaga­ráðs mjög afgerandi.

Í fyrra tilvikinu ekki aðeins að auðlindir skyldu vera í þjóðar­eign, heldur að „fullt gjald“ – í merkingunni markaðs­verð – skyldi koma fyrir afnot af þeim.

Um þjóðar­atkvæði að tíu prósent kjósenda geti krafizt þess, með tilteknum skilyrðum og reglum.

Hvað finnst nú Sjálfstæðis­flokknum um þetta?

Það virðist stundum vera óljóst og ruglingslegt, en er það samt ekki. 

Fyrst um auðlindirnar.

Lengi vel – og stundum enn – hafa sjálfstæðis­menn andmælt gegn þeirri hugmynd að nokkuð geti yfirleitt verið þjóðar­eign. Það sé í bezta falli „ríkiseign“ eins og hver önnur fasteign.

Orða­notkun skiptir hér máli. Ríki er allt annarrar merkingar en „þjóð“, þótt ekki væri nema vegna þess að ríkið er almennt slæmt í huga sjálfstæðis­manna, en þjóðar­hugtakið gott í hugar­heimi íhalds­manna.

Ríki er allt annarrar merkingar en þjóð

Þess vegna reyndu sjálfstæðis­menn lengi að vera á móti hugtakinu „þjóðar­eign“. Þeir eru eiginlega hættir því, en hlustið samt enn á ræður þeirra á þingi. Það er grunnt á gömlu hugsuninni.

Kannske benti einhver þeim á að allt frá árinu 1928 hefur hugtakið „þjóðar­eign“ verið í íslenzkum lögum. Og þá var meirað­segja danska stjórnar­skráin enn í gildi.

Í lögum um þjóð­garðinn á Þing­völlum segir nefnilega að hinir friðlýstu hlutar hans skuli vera „ævinleg eign íslensku þjóðarinnar“. Þessi lög voru sett í aðdrag­anda Þingvalla­hátíðarinnar 1930 og okkur er óhætt að fullyrða að þar hafi engir byltingar­sinnar átt í hlut.

Þetta er ekki efnislega mikilvægt atriði, een það skiptir máli – aftur einmitt laga­tæknilega.

Hugtakið þjóðar­eign hefur semsagt verið í lögum í hartnær hundrað ár og enginn gert athugasemd við það. Enda ásælist enginn Þingvelli (nema Bretar og Hollendingar í Icesave-deilunni, ef marka má Sigmund Davíð).

Um aðra auðlind – fiskinn – gegnir öðru máli. Hann ásælast margir og sumir telja sig orðið eiga óveiddan fiskinn í sjónum. Þeir geta í það minnsta veðsett réttinn til að veiða hann – og þar með óveiddan afla – og enginn getur veðsett það sem hann á ekki.

Í lögum um stjórn fiskveiða frá árinu 1990 segir samt í fyrstu grein: „Nytja­stofnar á Íslands­miðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“ Þarna er ekki einu sinni hugtakið þjóðar­eign, hvað þá ríkiseign, heldur beinlínis sameign, sem hljómar eins og argasti kommúnismi.

(Og hvað sem þið viljið nú annars segja um Jón Baldvin Hannibalsson, þá setti hann þessa sakleysis­legu setningu sem skilyrði fyrir því að Alþýðu­flokkurinn greiddi þessum lögum atkvæði sitt.)

Og það er fiskurinn sem skiptir máli. Á honum má græða peninga. Það græða fáir á Þing­völlum.

Viðbrögðin

Eins og áður sagði vildi stjórnlagaráð setja í stjórnar­skrá að „fullt gjald“ yrði greitt fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Á mannamáli þýðir það að sá, sem er reiðu­búinn að borga mest, fær nýtingar­réttinn, þó til skamms tíma í senn.

Þetta hefur Sjálfstæðis­flokknum (og Framsóknar­flokknum og Vinstri grænum) alltaf þótt frekar vond hugmynd. Útgerðin þyrfti þá að borga meira fyrir að græða á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

Í fyrir­sjáanlegum andmælum fóru á flot hugtök á borð við „sann­gjarnt gjald“ og „eðlilegt gjald“, sem hljóma ósköp fallega, en eru algerlega háð túlkun þeirra sem lesa þau. Fullt gjald er fullt gjald. Enginn veit hvað eðlilegt gjald merkir. Og sú merking er háð mati og ákvörðun ríkis­stjórnar hverju sinni. Eins og dæmin sanna.

Þegar alþingi hafði varpað vinnu stjórnlaga­ráðs fyrir borð tók við enn ein stjórnar­skrár­nefndin, skipuð fulltrúum stjórn­málaflokka, eins og undan­farna áratugi. Hún skilaði ágætri vinnu og tillögum til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar forsætis­ráðherra (voruð þið nokkuð búin að gleyma því að hann var einu sinni forsætis­ráðherra?).

Sú nefnd klofnaði vitaskuld eftir flokks­pólitískum línum, en fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins lögðu áherzlu á að í umræðu um sameign á þjóðar­auðlindum sé „ekki gengið á þau réttindi sem varin eru af eignar­réttar­ákvæði stjórnar­skrárinnar“.

Birgir ÁrmannSson kann sína lögfræði. Enginn veit hvaða þýðingu þessi setning hefur, en hitt vitum við að lögfræðingaher er tilbúinn að fara í mál til að verja það sem margar útgerðir telja nú orðið réttmæta eign sína – óveiddan fiskinn í sjónum.

Tökum líka eftir þessu orðalagi næst þegar sjálfstæðis­menn tala um eignar­réttar­ákvæði stjórnar­skrárinnar.

Þegar þeir halda áfram andófi sínu á þingi, svolítið eins og sjálf­malandi kaffi­kvarnir.

Þeir halda áfram andófi sínu á þingi

Flokkar skulu ráða

Um þjóðar­atkvæða­greiðslur er frá einfaldara máli að segja. Stjórnlagaráð lagði til að tíu prósent kjósenda gætu farið fram á þjóðar­atkvæði um samþykkt lög (og marg­víslegt fleira því tengt).

Í nefndar­vinnunni vildi Sjálfstæðis­flokkurinn 20 prósent, með þeim rökum meðal annars að „fulltrúa­lýðræði og þingræði eigi áfram að vera megin­einkenni stjórn­skipunar okkar og að þjóðar­atkvæða­greiðslum eigi ekki að beita nema í sérstökum tilvikum“.

Ekki kom fram hvað sérstök tilvik væru eða hver ætti að úrskurða um það. En í orðunum liggur að stjórn­málaflokkar eigi að ákveða það. Og þá nátt­úrlega þeir sem eru við völd hverju sinni.

Flokkarnir með lyklana.

Annar lögfræðingur Sjálfstæðis­flokksins, Sigríður Á. Andersen, hefur gert þessi orð að sínum:

„Þeir sem vilja breyta stjórnar­skrá lýðveldisins gætu til dæmis byrjað á því að lesa grein 79 um hvernig það er gert. Þar er bara ekkert um að stjórnlagaráð geti gert slíkar breytingar. Alþingi fer með valdið til breytinga.“

Síðasta stjórnar­skrár­nefnd skilaði fínum tillögum, þótt klofin væri, en starf þess góða fólks sökk í hafið með Panama-skjölunum, barna­níðingum og öllu hinu sem hefur ráðið pólitískri framvindu á Íslandi síðustu misseri.

Tónninn í sjálfstæðis­mönnum breytist samt ekki. Enda hefur þeim gengið vel að tefja, þæfa og þvælast fyrir því sem flestir landsmenn telja sennilega löngu tímabærar úrbætur.

Já, og fjörið

Við höfum reynt eftir beztu getu að vera málefnaleg hér, en reynum nú að létta okkur lund.

Í því skyni má alltaf treysta Brynjari Níelssyni:

„Það er alveg sérstök íslensk uppfinning að það hafi þurft að kollvarpa íslensku stjórnar­skránni af því að einhverjir bankar hrundu. Við erum enn í þessari umræðu eins og stjórnar­skránni hafi aldrei verið breytt og aldrei verið endur­skoðuð. Það er mörgu búið að breyta, hún hefur tekið miklum breytingum, öll mann­réttinda­ákvæðin, vissar breytingar á stjórn­skipan landsins. Hún hefur verið í stöðugri endurnýjun og endur­skoðun og tekið breytingum.“

„Af því að einhverjir bankar hrundu.“ Við skulum láta nægja hér að hvetja Brynjar til þess að lesa skýrslu rann­sóknar­nefndar hans eigin Alþingis. Hún var ekki bara um að einhverjir bankar hrundu. Hún var um kerfis­brest, siðferðis­brest og stjórnar­skrár­brest, svo aðeins nokkrar stoðir samfélagsins séu nefndar.

Á sínum tíma sagði Brynjar ekkert mark takandi á stjórnlaga­ráði, því að pólitískur meirihluti á Alþingi hafi skipað það. Afurðir ráðsins beri þess enda merki. Þetta hafi bara verið pólitík. Vinstri pólitísk róttækni.

Inn í þessa röksemda­færslu vantar í það minnsta eitt smáatriði: Alþingi skipaði í stjórnlagaráð nákvæmlega sama fólk og þjóðin hafði kosið til að sitja á stjórnlaga­þingi. Brynjar á enn eftir að útskýra fyrir okkur hvernig vinstra samsæris­liðinu tókst að fá þjóðina til að kjósa þennan lýð svo að þingið gæti skipað það sama fólk eftir að samflokksmenn Brynjars í Hæstarétti höfðu ógilt kosningu þess.

En Brynjar er auðvitað skemmtilegur og vanur því að verja sakamenn, og svarar þessu við fyrsta tækifæri.

Eigum við nokkuð að sleppa tilvitnun um að störf stjórnlaga­ráðs hafi verið „unnin með rass­gatinu“?

Brynjar er væntanlega að tala um Ómar Ragnarsson. Eða hugsanlega Ara Teitsson, Arnfríði Guðmunds­dóttur, Ástrósu Gunnlaugs­dóttur, Dögg Harðar­dóttur, Erling Sigurðarson, Írisi Lind Sæmunds­dóttur, Katrínu Fjeldsted, Pawel Bartozsek, Salvöru Nordal og Þorkel Helgason, svo við nefnum aðeins fáein þeirra sem eru lands­þekkt af handvömm og byltingar­sinnaðri róttækni.

Við sleppum því að telja upp kommúnista á borð við Eirík Bergmann Einarsson og Pétur Gunnlaugsson. Brynjar er vonandi með alla hina á fæl hjá hér.

Og vitaskuld þykir Brynjari ótækt að þetta fólk – sem flest er jú „leikmenn“ en ekki útlært í lögfræði – skuli hafa skoðanir á því og jafnvel tillögur um hvernig grund­völlur alls samfélagsins skuli byggður.

Slík vinna á að vera í höndum lögfræðinga. Eins og Brynjars. Og Vigdísar Hauks­dóttur.

Þau halda áfram – treystið því

Málflutningur Brynjars er í samræmi við hina almennu stefnu Sjálfstæðis­flokksins um breytingar – eða réttara sagt ekki breytingar – á stjórnar­skránni.

Nema þau ráði. Viðvarandi tónn í því stefi er að nauðsyn sé á víðtækri sátt, þver­pólitískri sátt, um allar breytingar. Stjórnar­skráin sé jú grundvallar­plagg og allir þurfi að vera sammála um hana.

Þetta er önnur leið til þess að segja að ekkert breytist.

Samt segjast þau endilega vilja breytingar. Brynjar nefnir jafnan ákvæði um stöðu forsetans, sem er rétt athugasemd. Niður­staða nýlegrar og einmitt „þver­pólitískrar“ vinnu er hins vegar að kjör­tímabil hans skuii vera sex ár, en ekki fjögur, og að forsetinn geti aðeins setið í tólf ár.

Hversu mikið sem við gruflum er engin leið til að finna áhuga – hvað þá kröfu – á þessari tilteknu breytingu. Hvergi nokkurs staðar. Enda er hún svo gott sem merkingar­laus.

Hún er hins vegar afrakstur hinnar hefð­bundnu vinnu við breytingu stjórnar­skrár, þar sem allir flokkar koma saman til að finna lægsta sameiginlega samnefnara. (Rétt er að halda því til haga, að ekki hafa allir flokkar samþykkt þessa tillögu, en leyft henni að fara á flot).

Og ef merkingar­snauð breyting á við þessa verður samþykkt getur Sjálfstæðis­flokkurinn sagt: „Sjáið þið bara. Við erum ekki á móti breytingum. Við erum alltaf að breyta stjórnar­skránni.“

Hætt er þó samt við því að Bjarni Benediktsson eldri og betri hristi höfuðið lengi yfir þeim meintu breytingum. 

En hvers vegna lætur Sjálfstæðis­flokkurinn svona? Hvers vegna berst hann af svo miklum skrið­þunga gegn því sem flestir landsmenn eru sammála um að nauðsynlegt sé?

Fyrir því eru aðeins tvær ástæður. Völd. Og hagsmunir.

Í auðlinda­málum ráða hagsmunir stór­fyrirtækja, sumsé útgerðarinnar.

Í deilum um þjóðar­atkvæða­greiðslur ráða hagsmunir flokksins og völd.

Þau vilja nefnilega endilega breyta. En bara ef þau ráða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár