Nú má heita Ármúla

Manna­nafna­nefnd sam­þykkti milli­nafnið Ármúla á fundi sínum á þriðju­dag, en nafnið upp­fyllti öll þau skil­yrði sem mill­i­nöfn þurfa lögum sam­kvæmt að upp­fylla til að hljóta sam­þykki nefnd­ar­innar.

Frá Ármúla í Reykjavík.
Frá Ármúla í Reykja­vík. Mynd: Mapio

Milli­nafnið Ármúla var á meðal þeirra nafna sem sam­þykkt voru af hálfu manna­nafna­nefndar á fundi sem fram fór á þriðju­dag, en erindi þar sem óskað var eftir því að nafnið yrði sam­þykkt barst til nefnd­ar­innar um miðjan sept­em­ber.

Í úrskurði manna­nafna­nefndar segir að milli­nafnið Ármúla upp­fylli þau skil­yrði sem í lögum um manna­nöfn þurfa að vera upp­fyllt til að nöfn fái sam­þykki sem milli­nafn.

Það er dregið af íslenskum orð­stofni, hefur ekki nefni­falls­end­ingu, hefur hvorki unnið sér hefð sem eig­in­nafn karla né kvenna og þykir ekki til þess fallið að verða nafn­bera til ama.

Nafnið er síðan heldur ekki ætt­ar­nafn og upp­fyllir þannig öll ákvæði laga um manna­nöfn sem manna­nafna­nefnd horfði til.

Á úrskurð­ar­vef stjórn­ar­ráðs­ins hafa í dag birst all­nokkrir úrskurðir manna­nafna­nefndar frá því á þriðju­dag­inn.

Ekki öll nöfn hlutu braut­ar­gengi eins og Ármúla, en til dæmis var beiðnum um mill­i­nöfnin Street og Thund­er­bird báðum hafnað. Auk þess var umsókn um eig­in­nafnið Hel hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár