Framtíð íslenskra gagnavera snúist ekki um að grafa eftir rafmyntum

Samkvæmt mati for­stjóra Verne Global má áætla að um 750 GWst af þeim 970 GWst raf­orku sem seldar voru til gagna­vera í fyrra hafi farið í að grafa eftir raf­myntum.

Dominic Ward, forstjóri Verne Global, sem rekur gagnaver í Reykjanesbæ.
Dominic Ward, for­stjóri Verne Global, sem rekur gagna­ver í Reykja­nesbæ. Mynd: Arnar Þór

Raf­mynta­gröftur skóp íslenska raf­mynta­iðn­að­inn og er enn stór hluti hans, en hins vegar ekki fram­tíðin, sagði Dominic Ward for­stjóri Verne Global, sem rekur gagna­ver í Reykja­nesbæ, í við­tali við Kjarnann í upp­hafi mán­aðar.

Ward sagði að gagna­ver lands­ins hefðu í dag um 200 MW af upp­settu afli (e. data center capacity) til þess að selja við­skipta­vinum sínum og að hann teldi að af þessum 200 MW væru ein­ungis um 41 MW að fara í eitt­hvað annað en að grafa eftir raf­myntum.

Hann full­yrti við Kjarnann að nær öll starf­semi gagna­vera á Ísland, ann­arra en Verne Global, fælist í raf­mynta­greftri. Verne Global hefur þegar sagt upp öllum samn­ingum sínum við Bitcoin-graf­ara og munu þeir síð­ustu renna út á næsta ári.

Um 750 GWst í rafmyntagröft í fyrra?

Mat for­stjór­ans er þannig að tæp 80 pró­sent allrar orku sem gagna­verin á Íslandi noti fari í að grafa eftir raf­myntum.

Í fyrra nam sam­an­lögð orku­sala Lands­virkj­unar, HS Orku og Orku nátt­úr­unnar til gagna­vera 970 gíga­vatt­stundum (GWst) sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Orku­stofnun.

Má því áætla að um 750 GWst hafi farið í raf­mynta­gröft, ef mat for­stjóra Verne Global er nærri lagi.[links]

Það er meiri orka en stærsti orku­sal­inn, Lands­virkjun, seldi gagna­verum í fyrra, en sala Lands­virkj­unar til gagna­ver­anna hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum, úr 146 GWst árið 2017 og upp í 739 GWst árið 2021. Sömu­leiðis er það litlu minni orka en Sult­ar­tanga­virkjun fram­leiddi árið 2020, sam­kvæmt tölum frá Orku­stofnun.

Ekki hefur verið hægt að fá það opin­ber­lega gefið upp frá orku­sölum né Orku­stofnun hve mikil orka fer í raf­mynta­gröft hér­lendis.

Ward sagði í við­tal­inu við Kjarnann, sem birt­ist í heild sinni síð­asta sunnu­dag, að hann vildi gjarnan hafa það uppi á borðum nákvæm­lega hversu mikið af orku færi í að grafa eftir raf­myntum á Íslandi á hverjum tíma.

Hann furð­aði sig raunar á því að ekki væri hægt að fá þau svör frá opin­berum aðilum – sem vissu­lega hefðu upp­lýs­ingar um hvert orkan væri að fara – ekki einu sinni þegar kjörnir full­trúar þjóð­ar­innar á Alþingi færu fram á fá þær upp­lýs­ing­ar.

Ekki bjartsýnn á framtíð Bitcoin

Í við­tal­inu sagði Ward að raf­myntir hefðu búið til grund­völl fyrir starf­semi gagna­vera á Íslandi, en að hann væri ekki bjart­sýnn á fram­tíð fyrstu kyn­slóðar bálka­keðju­tækni, sem raf­myntir á borð við Bitcoin hvíla á.

[adspot]

Það mat Ward er ekki síst sökum þess hve mikla orku þarf til þess að leysa reikni­þraut­irnar. Vegna þessa og af fleiri ástæðum reyndar líka, telur for­stjór­inn að áhættu­prófíll Bitcoin sé gríð­ar­lega hár.

Hann benti á að Kína hefði í fyrra bannað gröft eftir Bitcoin með einu penna­striki og það hefðu fleiri sömu­leiðis gert eða verið með til skoð­unar. „Allur Bitcoin-gröft­ur­inn sem var í Kína og var slökkt á í des­em­ber færð­ist til Banda­ríkj­anna. Það er tíma­sprengja sem bíður þess að springa að ein­hver blaða­maður í Banda­ríkj­unum kveiki á þessu, fjalli um málið og það að það þurfti að kveikja á öllum gömlu kolaknúðu orku­ver­unum til að anna eft­ir­spurn­inni. Við erum að tala um þús­undir mega­vatta sem eru að bæt­ast við kolefn­is­fót­spor Banda­ríkj­anna. Eng­inn er að fjalla um þetta, en það verður gert, gefum þessu sex mán­uð­i,“ sagði Ward.

Hann telur þó að bálka­keðju­tæknin sem slík sé til margra hluta nyt­sam­leg og eigi eftir að verða mik­il­væg til fram­tíðar – þá sér­stak­lega sú tækni sem byggi á svoköll­uðu proof of stake fremur en proof of work eins og fyrsta kyn­slóðin sem Bitcoin hvílir á. Sú tækni sé marg­falt minna orku­frek og feli í sér tæki­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár