Fyrir einhverjum vikum síðan las ég grein eftir Kára Stefánsson þar sem hann fordæmir harkalega dómsmálaráðherra Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Þar fordæmir Kári þær hugmyndir Áslaugar um að aflétta auglýsingabanni á áfengi í fjölmiðlum og að auka frelsi með kaup á sömu vöru í gegn um netið. Fyrst eftir að ég las þessa grein þá vaknaði löngun hjá mér að koma með aðra hlið á þessu máli, en áður en af því varð kom upp þetta dæmalausa COVID-19 sem varð til þess að ég gerði ekkert í málinu. En nú þegar þó nokkur tími er liðinn frá því að Kári skrifaði greinina í Fréttablaðið og við erum stödd í miðjunni á þessu veirufári þá tek ég eftir að málið er að vakna aftur. Bæði hjá Áslaugu Örnu og í kjölfarið hjá fólki sem tekur kröftulega undir sjónarmið Kára Stefánssonar og þá get ég ekki setið á mér.
Nú vil ég taka það fram í byrjun að ég er sammála Kára um angistina og skelfinguna sem getur fylgt þeim sem eru að takast á við alvarlegan alkóhólisma og aðra fíknisjúkdóma. En að hann geti tengt það við hugmyndir dómsmálaráðherra um meira frjálslyndi á sviði áfengismála á Íslandi, því er ég bara alls ekki sammála. Í fyrsta lagi langar mig að rifja upp hvernig áfengiskúltúrinn var á Íslandi þegar við Kári vorum unglingar eða ungir menn. Þar sem við erum báðir á sama aldri (fæddir á fyrri hluta síðustu aldar) þá hlýtur hann að muna jafnvel og ég hvernig var til siðs að nota áfenga drykki á okkar sokkabandsárum. En sá kúltúr var allur undir þeim lögum og formerkjum að sauðsvartur almúginn færi sér ekki að voða þegar hann notaði þetta efni. Og ég vil taka það fram að í þá daga var ekki leyft að selja bjór á Íslandi vegna þess að stjórnvöld voru ákveðin í að forða almúganum frá því að vera út úr drukkinn frá morgni til kvölds. Eða það var alla veganna skýringin sem gefin var og dæmi nú hver fyrir sig hvort spárnar hafi gengið eftir, eftir að bjórbanni var aflétt. En aftur að vínkúltúr í æsku okkar Kára þegar forræðishyggjan var í hámarki, auðvitað til verndar því að sauðheimskur almúginn færi sér ekki að voða.
[adspot]Í þá gömlu og góðu daga var ekki til siðs þegar Íslendingar fengu sér vín, að drekka eitthvert léttvínssull eða bjór. Enda var hann reyndar ekki á boðstólum. Nei takk, þá drukku menn bara almennilegan rudda sem annaðhvort hét Íslenskt brennivín eða rússneskur vodki og svo auðvitað Seniver sem líka var vinsælt. Og svo má ekki gleyma blessuðum landanum sem var hálfgerð þjóðaríþrótt að framleiða með misjöfnum árangri. Þá var líka siðurinn sá að detta í það eða kannski réttara sagt að hrynja í það. Enda voru vín metin góð þegar styrkleikinn var sem mestur og hægt var að ná því takmarki að verða sem fyllstur á methraða. Í þá daga var það óþekktur kúltúr á Íslandi að setjast niður eina kvöldstund með hvítvínsglas eða bjórglas án þess að verða blindfullur og enda kvöldið með hausinn í klósettskálinni ælandi lifur og lungum. Og Kári hlýtur að muna eftir djamminu í Glaumbæ þar sem drykkur hússins var vodki í kók eða eitthvað á svipuðum styrkleika og ástandið á fólkinu í stíl við það. Eða í Þórskaffi þar sem engar vínveitingar voru og í raun bannað að drekka vín þar innandyra. Það furðulega var að ég man ekki eftir öðru en flestir hafi verið þar á rassgatinu úr víndrykkju sem átti ekki að vera leyfilegt. Enda var það keppnisíþrótt meðal ungs fólks í þá daga hverjum tækist að smygla sem mestu af víni inn í Þórskaffi. Jafnvel var gengið svo langt að hífa heilu flöskurnar með snærisspotta upp í klósettgluggann sem var á efri hæðinni. Og svo þegar ballið var búið á kristilegum tíma auðvitað að boðun stjórnvalda þá hélt djammið áfram í einhverju heimahúsinu. Og ef þið haldið að partíið hafi lognast út af þegar allt vín var búið þá er það tómur misskilningur. Í þá daga þurfti ekki annað en hringja á vissa leigubílastöð og biðja um góðan bíl með vökvastýri og viti menn hann var mættur fyrir utan húsið tíu mínútum seinna. Hvort bíllinn var með vökvastýri eða ekki skipti ekki máli í þessu sambandi því öruggt var að skottið var fullt af brennivíni sem bílstjórinn seldi svo á uppsprengdu verði. Og í þessum viðskiptum var ekkert spurt eftir löglegum vínkaupsaldri eða álíka tittlingaskít. Þarna gilti einungis að eiga peninga og þá stóð skottið upp á gátt fyrir hverjum sem kaupa vildi. Allur þessi villimannslegi kúltúr með vín á Íslandi hafði þróast vegna boða og banna sem stjórnvöld settu og héldu í sínum barnaskap að þar með færi fólk sér ekki að voða við að meðhöndla vín.
Ég get ekki látið það vera að láta flakka með minningu sem ég varð vitni að í æsku og er um það hvernig margt fullorðið fólk notaði áfengi í þá daga. Ég hef sjálfsagt verið um ellefu ára gamall og staddur í fjárréttum austur í sveitum þaðan sem ég er ættaður. Myndin er af einum virðulegum bónda í sveitinni sem hafði verið lagður til upp við réttarvegginn steindauður úr áfengisdrykkju og greinilega búin að míga á sig í þokkabót. Þar stutt frá stóðu svo aðrir mektarbændur úr sveitinni í einum hnapp og sungu af mikilli innlifun lagið. „Fram í heiðanna ró.“ Og ég man ekki betur en ástandið á sumum þessara söngfugla hafi verið á þann veg að þeir væru á leiðinni með að taka sér far með þeim hlandblauta inn í draumalandið. Allir þessir menn sem þarna um ræðir voru alls ekki þekktir fyrir að drekka vín dagsdaglega og höfðu jafnvel virkilega skömm á útlendingum sem sífellt væru að sulla í bjór. Þetta fékk maður alla veganna að heyra á sínum uppvaxtarárum. Þeir tóku hins vegar inn áfengisskammtinn á einum degi sem fólk í löndum sem bjó við frjálslyndari og siðaðri áfengiskúltúr tók á einhverjum vikum eða mánuðum.
[adspot]En aftur að þessu opna bréfi sem Kári Stefánsson skrifaði til Áslaugar Örnu dómsmálaráðherra. Þar heldur hann því fram að hún sé að leggjast í víking til þess að auka neyslu á áfengi og stuðla um leið að meiri vandamálum sem vissulega fylgir ef neyslan verður meiri. En þarna er ég ekkert viss um að neyslan verði meiri, þótt Kára og fleirum finnist það furðuleg afstaða. Ef við byrjum til dæmis á því að velta fyrir okkur þessari hugmynd dómsmálaráðherra um aukið frelsi að kaupa áfengi í gegn um netið. Í fyrsta lagi ef við tökum þann hóp sem er verst staddur í sinni áfengisneyslu og er jafnvel heimilislaus af þeirri ástæðu. Þá get ég ekki ímyndað mér að margir af þeim eigi tölvu svona yfirleitt. Fyrir utan hvað það væri fáránlegt að láta sér detta það í hug að þeir færu að panta sér vín í gegn um netið sem þeir þyrftu svo að bíða eftir í einhverja daga. Og þetta á líka við um þá sem eru langt leiddir af þessum sjúkdómi en eiga heimili og tölvu. Þeir munu ekki bíða í einhverja daga með að fá sinn skammt sem þeir þurfa á að halda ekki seinna en strax. Þeir einu sem mér dettur í hug að muni panta sér vín í gegn um netið eru þeir sem eru vandlátir á víntegundir. Þeir munu notfæra sér þennan vettvang til þess að panta þær tegundir sem fást ekki í Áfengisverslun ríkisins. En það er ekki sá hópur sem Kári og hans skoðanabræður þurfa að hafa áhyggjur af.
Síðan skulum við velta fyrir okkur þessu atriði sem dómsmálaráðherra datt líka í hug, um að leyft yrði að auglýsa áfengi í fjölmiðlum á Íslandi. Auðvitað dettur fólki það fyrst í hug að áfengisneysla muni aukast og vandamálin sem af þeim hlýst verða meiri. En er það svo? Ég er bara alls ekki viss. Í fyrsta lagi eru áfengisauglýsingar út um allt í Íslensku samfélagi. Þær eru í erlendum blöðum og tímaritum sem fólk er áskrifendur af eða kaupir í næstu bókabúð. Þær eru á erlendum sjónvarpsrásum og á efnisveitum sem fólk streymir á netinu. Ekki síst ungt fólk og það fer bara vaxandi með aukinni alþjóðavæðingu. Jafnvel er hægt að sjá þetta í innlendum miðlum þrátt fyrir að það sé bannað með því að klína orðinu léttöl í eitt hornið og þá er allt í sómanum. Þvílík hræsni. En þá spyr fólk. Er það ekki einmitt tilgangur seljanda einhverrar vöru að auka söluna með því að auglýsa hana? Jú, meira að segja ég get verið sammála þessu nema kannski ekki á þann hátt að vandamál sem fylgir áfengisneyslu verði meiri. Hugsum okkur ungt fólk sem ætlar að fara á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og er ákveðið í að kaupa einn kassa af bjór til fararinnar. Þau verða sammála því að þessi bjórkassi skuli vera af tegundinni Túborg, en eftir að stór og glæsileg auglýsing birtist þeim í einhverju blaði þá var ákveðið að skipta yfir og kaupa Carlsberg frekar. Þarna í þessu dæmi tókst öðru fyrirtækinu að yfirbuga hitt og auka söluna á sinni vöru með kröftugri auglýsingu. Nú þykist ég vita að þeir sem ekki eru sammála mér í þessu dæmi bendi strax á að þetta unga fólk muni auðvitað bæta Carlsberg kassanum við hinn kassann og þar með verði aukin neysla í hópnum. Nú getur það vel verið að sú verði raunin en þá ætla ég að fullyrða að það hafi verið fyrir miklar efasemdir um það að einn kassi myndi duga til fararinnar. Því ef ungt fólk er eitthvað líkt því sem það var á mínum ungdómsárum þá lætur það ekki henda að það verði skortur á áfengisbyrgðum þegar farið er í slíkar ferðir. Og ég skal fúslega viðurkenna það að kröftug auglýsing getur haft áhrif á það hvaða tegund verður fyrir valinu og það vita þeir sem höndla með þessa vöru og þess vegna auglýsa þeir. Ég get þess vegna bætt því við að fjölþjóðarisinn Coka Cola sem hefur auglýst svakalega í gegn um tíðina eykur ekki við gosdrykkjaþamb í heiminum. En neysla á gosdrykkjum hefur frekar dregist saman að mér skilst vegna aukinnar heilsuvitundar hjá fólki. Þeir einungis auglýsa meira til þess að selja meira en keppinauturinn. Svo er við þetta að bæta að flestir fjölmiðlar á Íslandi sem manni skilst að rambi á barmi gjaldþrots mundu fagna nýrri tekjulind til þess að reka sig og standa jafnfætis erlendum fjölmiðlum á þessu sviði.
Nú fer sjálfsagt einhver sem les þetta að velta því fyrir sér hvort ég sé einn af þessum heilaþvegnu sjálfstæðismönnum sem verði að taka upp hanskann fyrir einn ráðherra þess flokks. En því er til að svara að þeir sem þekkja mig vita að þessi hugdetta er fjarstæðukennd. Ég hef þvert á móti haft frekar skömm á þessum flokki og talið hann vera dragbít á íslensku samfélagi. Sjálfstæðisflokkurinn er grímulaust hagsmunabandalag fyrir ákveðna hópa og því miður búin að móta okkar litla samfélag á þann hátt að maður hefur á tilfinningunni að þeir hirði rjómann af sameiginlegum auðlindum okkar mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. En því miður verður ekki litið fram hjá því að þessi flokkur er búin að vera ráðandi afl í íslensku samfélagi síðastliðin hundrað ár og allt útlit fyrir að hann verði það eitthvað áfram. Þess vegna er það fagnaðarefni að það skuli koma einhver frjálslyndistónn úr þessari átt og vottur þess að við séum færast nær öðrum þjóðum hvað varðar þá tilfinningu að stjórnvöld treysti þegnunum.
[adspot]Og þá er ég kannski komin að kjarnanum á því hvað fór mest í taugarnar á mér við þetta mál og ástæðunni fyrir því að ég er að skrifa þennan pistil. Hvers vegna í fjandanum þarf ég enn einu sinni að búa við það, kominn á gamalsaldur, að fram spretti einhverjir sjálfskipaðir siðapostular öskrandi um, að ef við á Íslandi færumst eitthvað nálægt því sem gengur og gerist í löndunum hérna í kring um okkur þá fari stór hluti þjóðarinnar sér að voða. Og það hlægilega, eða eigum við að segja það grátlega við þetta er að hluti af þessum siðapostulum býr í þessum löndum þar sem áfengiskúltúr er mun frjálslegri heldur en á Íslandi. Frá því að ég man eftir og fór að fylgjast með íslenskum þjóðmálum hef ég orðið vitni af þessari sjúklegu forræðishyggju. Jafnvel á sínum tíma þegar átti að koma sjónvarp á Íslandi þá byrjuðu siðapostularnir að góla um að þjóðin myndi ekki höndla það. Og svo aftur seinna þegar átti að senda út sjónvarp í lit þá þótti það of mikið. Jafnvel sum orðin sem þá voru látin falla eru beinlínis hlægileg í dag, eins og að morðin í glæpamyndunum yrðu svo raunveruleg að hin saklausa alþýða Íslands gæti ekki höndlað það. Síðan er hægt að rekja söguna í hverju málinu á fætur öðru. Þegar við gengum í EFTA og svo seinna ESS þá átti hin Íslenska þjóð að standa hjá á meðan útlendingar hirtu af okkur vinnu og annað fémætt sem hérna var að finna. En reyndin varð heldur betur önnur. Hagur okkar stórbatnaði og því miður jaðraði frekar við að við misnotuðum útlendinga sem hingað komu til þess að vinna fyrir okkur. Þegar aflétt var bjórbanni átti hver vinnustaðurinn á fætur öðrum að vera óstarfhæfur sökum þess að starfsfólk yrði svo ölvað frá morgni til kvölds. En reyndin varð sú að vínkúltúr á Íslandi stórbatnaði og ég man ekki betur en að hafa heyrt um að dregið hafi úr áfengisneyslu ungs fólks á Íslandi frá þeim tíma.
Ég gæti haldið áfram endalaust um þessa sjúku forsjárhyggju sem sumir Íslendingar eru haldnir en ég læt mér nægja að nefna eitt í viðbót. Á þeim tíma þegar ameríski herinn dvaldi hér á landi var það mikið rifrildismál og ekki síst fyrir það að hann hefði svo mikil og óæskileg áhrif á alþýðu Íslands. Þarna var aðallega verið að tala um sjónvarp og útvarp sem herinn var með á sínum snærum. Það þótti náttúrlega stórhættulegt að landinn gæti náð þessum útsendingum og þess vegna náðist það í gegn að útsending var takmörkuð við varnarsvæðið. Sem betur fór tókst það ekki að öllu leyti þannig að útsendingar náðust í Keflavík sem sumir segja að hafa orðið til þess að fleiri tónlistarsnillingar hafi fæðst þar en annars staðar á Íslandi. Og dæmi nú hver fyrir sig.
Ég hóf þessi skrif á því að deila hart á Kára Stefánsson og kallaði hann gamlan frethólk í fyrirsögn en eftir á íhugaði ég hvort þar væri einum of langt gengið. En svo ákvað ég að láta slag standa vegna þess að í mínum huga fellst í þessu orði ákveðin aðdáun á þessum manni. Hann hefur oft verið orðhvass og hitt í mark í þeim greinum sem hann hefur skrifað og þar hef ég oft verið honum sammála. Ég er líka þeirra skoðunar að Kári sé afskaplega fær maður í sinni fræðigrein fyrir utan að hann er bráð skemmtilegur karlinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir