Viðreisn vildi Áslaugu á lista

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins íhug­aði að taka sæti á lista Við­reisnar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor.

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins íhug­aði að taka sæti á lista Við­reisnar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Þetta kom fram í ítar­legu við­tali Áslaugar við Mannlíf sem kom út á föstu­dag og lesa má í heild sinni hér.

„Ég á vini í Viðreisn og til tals kom að ég tæki sæti á lista flokks­ins. Eftir að hafa íhugað málið ákvað ég að gera það ekki,“ sagið Áslaug, en hún verður ekki á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds í odd­vita­kjöri og ekki boðið sæti neðar á lista af kjör­nefnd flokks­ins í Reykja­vík.

[links]Viðreisn birti lista sinn á mánu­dag þar sem fram kom að Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir rekstr­ar­hag­fræð­ingur muni leiða lista flokks­ins. Pawel Bar­toszek stærð­fræð­ingur er í öðru sæti og Diljá Ámunda­dótt­ir, almanna­teng­ill og vara­borg­ar­full­trúi, er í þriðja sæt­in­u.

Í við­tal­inu segir Áslaug Pawel vera mjög vera mjög sterkan hægri mann sem bjóði sig fram nú í kosn­ing­unum og að hann eigi svo sann­ar­lega erindi í borg­ar­stjórn. „Hann er því miður far­inn úr okkar flokki. Hann er með mjög líka sýn og þá sem var að þró­ast hjá Sjálf­stæð­is­flokknum á sínum tíma og skrif hans sýna að hann hefur góðar hug­myndir í mörgum öðrum málum. Að missa mann eins og hann er auð­vitað mjög leið­in­legt.

Fjöldi fólks hefur snúið baki við Sjálf­stæð­is­flokknum af þessum og öðrum sökum á und­an­förnum miss­erum. Skemmst er að minn­ast stofn­unar Við­reisnar þar sem finna má ógrynni af fyrr­ver­andi sjálf­stæð­is­mönnum, oft með ein­hverjar skoð­anir sem þóttu ekki heppi­legar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins leiðir nú Viðreisn og áður­nefndur Pawel Bartoszek, auk ann­arra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár