Sjálfstæðisflokkinn skortir umburðarlyndi

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fékk ekki sæti á lista flokks­ins fyrir kosn­ingar í vor, eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds í odd­vita­kjöri. Hún seg­ist eiga nóg inni í stjórn­mál­unum og stefnir ótrauð áfram.

„Núna er maður bara að klára þetta kjör­tíma­bil, það er ekki alveg búið, það eru tveir, þrír mán­uðir eftir,“ segir Áslaug Frið­riks­dóttir frá­far­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Áslaug verður ekki á lista flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í maí eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir, Eyþóri Arnalds, í odd­vita­kjöri í jan­úar. Í kjöl­farið vann kjör­nefnd að upp­still­ingu í önnur sæti þar sem til­laga um hana í 2. sætið var felld í kosn­ingu í nefnd­inni. „Ég sótt­ist eftir því að taka 2. sætið á list­anum en það var fellt.“ Henni var ekki boðið sæti neðar á list­anum. Það liggur því fyrir að hún mun fara í önnur störf eftir kosn­ing­arnar.

„Ég held að ég taki mér smá frí og svo fer ég bara að huga að nýjum verk­efnum. Það er rosa­lega mikið að breyt­ast hjá mér í einu. Ég er að skilja, ætla að fara að flytja og við þetta bæt­ist að skipta um vinnu. Þannig að það er mikið að ger­ast hjá mér næstu mán­uði,“ segir Áslaug. Hún segir samt að það sé ekki stór­mál að hætta í borg­ar­stjórn stjórn­mála­menn viti aldrei hvað verður á næsta kjör­tíma­bili og séu með­vit­aðir um það að allt geti breyst. „Maður getur ekki gengið að neinu vísu í póli­tík og þarf auð­vitað alltaf að sækja umboð kjós­enda sinna.“

Áslaug er bjart­sýn á fram­tíð­ina. Hún seg­ist vön að fást við alls kyns verk­efni, hefur verið verk­efna­stjóri, unnið að stefnu­mótun og þarfa­grein­ingum í mörgum verk­efnum. Hún á hlut í ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í því að aðstoða fyr­ir­tæki við að gera vef­síður og kerfi betri með til dæmis því að nýta not­enda­próf­anir. „Ég hef ekki getað starfað þar með fullu starfi borg­ar­full­trúa og nú ætla ég bara að sjá hvað verður.“

Byrjaði í ólgusjó

Áslaugu var fyrst boðið 14. sæti á lista flokks­ins fyrir kosn­ingar 2006. „Ég sagði bara já. Síðan náði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sjö borg­ar­full­trúum í kosn­ing­unum sem þýddi að ég varð vara­borg­ar­full­trúi. Ég hafði ekki minnstu hug­mynd um hvað fólst í því,“ segir hún glettin og bætir við að um miklu meiri vinnu hafi verið að ræða en hún bjóst við.

Hún byrj­aði sem nefnd­ar­maður í leik­skóla­ráði. „Það hafði verið stofnað sér­stak­lega af því að þá voru langir biðlistar eftir leik­skóla­vist og mikil mann­ekla, mjög keim­líkt því sem nú blasir við.“ Þar sat Áslaug meðal ann­arra með Þor­björgu Helgu Vig­fús­dóttur fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa flokks­ins, sem leiddi starf leik­skóla­ráðs­ins, en Áslaug seg­ist sjá mikið eftir Þor­björgu úr starf­inu.

„Þetta var auð­vitað ævin­týra­legt kjör­tíma­bil póli­tískt séð og í raun­inni rosa­lega skemmti­legt þó það hafi oft verið erfitt. Það verða þarna fjórir borg­ar­stjórar á mjög skömmum tíma, það var mik­ill órói, bæði í borg­ar­stjórn­inni sjálfri og innan flokk­anna. Björn Ingi [Hrafns­son fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sóknar] var að fara út, stung­inn í bakið, Vil­hjálmur [Þ. Vil­hjálms­son fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins] hætti á tíma­bil­inu og Hanna Birna [Krist­jáns­dóttir] tók við. Ólafur F. var borg­ar­stjóri um tíma en Hanna Birna mynd­aði síðan meiri­hluta með Óskari Bergs­syni og fram­sókn­ar­mönnum og þá loks fór að róast.“

Um þetta leyti varð hrunið og kreppan dundi á. „Undir stjórn Hönnu Birnu var ákveðið að vinna á þessum við­kvæmu tímum í mik­illi pólistískri sátt. Stefnan var tekin á að segja starfs­fólki ekki upp heldur fá alla með í að takast á við þess breyttu rekstr­ar­for­sendur. Ég var for­maður menn­ingar- og ferða­mála­ráðs á þessum tíma. Alls staðar var stefnan tekin á að skera niður eins og hægt væri, án þess að það kæmi niður á stör­f­unum. Ég var efins um þessa stefnu í fyrstu en þetta gekk alveg ótrú­lega vel. Þarna tókst Hönnu Birnu að loka fjár­hags­á­ætlun með þessum nýjum leiðum á ótrú­legan hátt sem var afrek út af fyrir sig og seinna fékk borgin reyndar nýsköp­un­ar­verð­laun fyrir þessa vinnu. Þetta var mjög lær­dóms­ríkt. Og þannig var siglt inn í kjör­tíma­bil 2010, með póli­tísku sátt­ina í for­grunni.“

Ný sýn á borgarskipulagið

Þó að það hafi oft verið mik­ill hasar og drama­tík í póli­tík­inni á þessu tíma­bili segir Áslaug að mikið hafi að ger­ast í borg­ar­hug­mynda­fræð­inni. „Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru að móta hug­myndir um hina „nýju Reykja­vík“. Þarna var Gísli Marteinn [Bald­urs­son fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins] til dæmis að þróa grænu skrefin og við vorum að móta stefnu í átt að þétt­ingu byggðar og að nýrri sýn í sam­göngum. Þá var á stefnu­skrá flokks­ins að byggja í Vatns­mýr­inni, þótt síðar vildu menn ekki kann­ast við það. Við höfðum unnið að þess­ari nýju sýn og þó að alltaf hafi verið ágrein­ingur um flug­vall­ar­málið innan hóps­ins þá hafði flokk­ur­inn þá stefnu að kanna hvort að finna mætti flug­vell­inum annað stæði.“

Áslaug segir að í þeim hug­myndum sem þró­aðar voru á þessum tíma þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var í meiri­hluta hafi verið lögð áhersla á að gera stærri hluta Reykja­víkur áhuga­verðan með þétt­ari byggð og ýta undir fjöl­breytt­ari og vist­vænni sam­göngu­máta. Þessari vinnu var áfram­haldið í póli­tískri sátt þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn næði ekki inn í meiri­hluta 2010 eftir stór­sigur Besta flokks­ins. Alla vega fyrst um sinn. En svo fór að gæta óþol­in­mæði og borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn gagn­rýndur fyrir að vera of mikið að vinna með meiri­hlut­anum í stað þess að berja á honum og sýna þannig hversu ómögu­legur meiri­hlut­inn væri.

Í aðdrag­anda próf­kjörs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í nóv­em­ber 2013 kom gríð­ar­legur ágrein­ingur í ljós um þessar hug­myndir sem varð til þess að Gísli Marteinn Bald­urs­son, sem farið hafði mjög fyrir þeim, dró sig í hlé og ákvað að halda til ann­arra starfa. „Nið­ur­stöður þessa próf­kjörs urðu samt þær að við sem höfðum tekið þátt í að móta þessar nýju hug­myndir náðum ágætis árangri í próf­kjör­inu þrátt fyrir að við röð­uð­umst ekki í efstu sætin. Þorbjörg Helga, var þó ekki sátt við sinn hlut og ákvað í kjöl­farið því miður að hætta afskiptum af borg­ar­mál­unum og var mik­ill sjón­ar­sviptir af henni. Við Hildur Sverr­is­dóttir vorum áfram á list­anum, stóðum í ströngu við að útskýra okkar sjón­ar­mið og fengum á okkur heil­mikla gagn­rýni fyrir að ganga ekki takt.“

Áslaug segir þá gagn­rýni ekki hafa verið sann­gjarna í ljósi sög­unnar. „Mér fannst mjög leið­in­legt að þetta mikla starf sem við höfðum unnið var í raun gjald­fellt í próf­kjör­inu vegna þess að innan flokks­ins voru ákveðin öfl sem fóru gegn þessum hug­myndum. Manni leið svo­lítið á þessu tíma­bili eins og flokk­ur­inn vildi ekki ekki kann­ast við barnið sitt. Auðvitað voru alls konar skoð­anir innan hóps­ins, til dæmis í afstöð­unni til flug­vall­ar­ins. Sumir vildu hann burt sama hvað og aðrir að við honum yrði ekki snert. Mitt sjón­ar­mið hefur alltaf verið að það væri í góðu lagi að skoða hvort að til væri annað heppi­legt flug­vall­ar­stæði en að hann yrði ekki færður án þess að það lægi fyrir. Þegar Hanna Birna var í borg­ar­stjóri hafði við­kvæðið verið að flug­vall­ar­málið yrði unnið í sátt. Mér fannst það hið eðli­leg­asta mál. Hins vegar varð svo mikil harka í þessum málum og raddir um að allir þeir sem voru ekki til í að taka undir skil­yrð­is­lausan stuðn­ing við að flug­völlur yrði í Vatns­mýri um eilífa fram­tíð fengu á sig þann stimpil að vera að svíkja sjón­ar­mið flokks­ins. Sam­fé­lag­miðl­arnir log­uðu og flokks­fundir hafa varla verið hat­rammari. Þetta var hálf dap­ur­legt tíma­bil.“

Áslaug segir að á þessum tíma hafi henni verið farið að finn­ast vanta upp á bjart­sýni í kringum borg­ar­málin hjá flokknum, gleði og áhug­ann á því að þróa áfram nýjar leiðir. „Margir kusu að hlusta frekar á óánægju­raddir sem alltaf koma upp í stað þess að leiða hlut­ina áfram. Samhliða þess­ari dvín­andi gleði kvarn­að­ist úr hópnum tölu­vert af virki­lega góðu fólki, bæði úr starf­inu og ekki síst úr borg­ar­stjórn­ar­hópnum. Að sjá á eftir fólki sem var dug­legt, hæfi­leik­a­ríkt og reynslu­mikið í þessum málum, mér finnst það ein­fald­lega vera algjör synd.“

Hún segir þetta kjör­tíma­bil sem senn tekur enda hafa ein­kennst af því að öll áhersla var lögð á að borg­ar­stjórn­ar­hóp­ur­inn kæmi sam­ein­aður fram og tal­aði einu máli. „Auðvitað hefur það þýtt miklar mála­miðl­anir innan hóps­ins í stærstu ágrein­ings­mál­unum. Ég tel að því reyndu að far­sælla sé að gera ráð fyrir því að ólíkar hug­myndir séu innan allra hópa og gefa fólki frelsi til að hafa sínar skoð­anir í stað þess að reyna að steypa öllum í sama mót. Fólk verður að hafa frelsi til að fara eftir sann­fær­ingu sinni.“

Ýtt út

Áslaug sótt­ist eftir því að halda áfram í borg­ar­mál­unum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hún lenti í öðru sæti í odd­vita­kjör­inu en var ekki boðið að taka sæti á lista. Margir voru hissa á því að aðeins einn núver­andi borg­ar­full­trúa, Marta Guð­jóns­dóttir, fengi sæti á list­anum en bæði Áslaug og Kjartan Magn­ús­son væru þar hvergi sjá­an­leg.

„Ég varð fyrir von­brigðum með þau vinnu­brögð sem áttu sér stað við upp­still­ingu list­ans. Um leið og það var tekin ákvörðun um að fara ekki í almennt próf­kjör heldur odd­vita­kjör þá vissi ég að útkoman yrði tví­sýn fyrir mig. Þar sem þessi leið hafði ekki áður verið farin voru leik­reglur ekki skýrar og því mikil áhætta að gefa kost á sér í leið­toga­kjör­inu. Hins vegar held ég að við Kjartan höfum bæði metið það svo að þátt­taka í leið­toga­próf­kjör­inu myndi ekki bitna á mögu­leika okkar á því að skipa sæti á list­anum enda var ítrekað lögð áhersla á að þarna væri aðeins verið að velja þann sem myndi skipa fyrsta sætið. Einnig var ljóst að nægt rými var til að til að bæta við hóp­inn. Við vorum bara þrjú eftir borg­ar­full­trúar flokks­ins og lík­legt að hóp­ur­inn myndi stækka með fjölgun borg­ar­full­trúa. Ég get því ekki tekið undir þær skýr­ingar for­manns kjör­nefndar að nið­ur­staða leið­toga­próf­kjörs­ins þýddi að við Kjartan hefðum ekki haft stuðn­ing flokks­manna til að vera á list­anum því kallað væri eftir meiri end­ur­nýjun.“

Áslaug segir að hættan hafi alltaf verið sú að leiðin sem var farin gæti falið í sér að fámennur hópur hand­veldi þá sem þeim líkar en úti­loki aðra. Hún telur að það hafi gerst og sé alls ekki ásætt­an­legt fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn með sínar lýð­ræð­is­hefðir.

„Ég hef tekið þátt í átökum innan flokks­ins eins og alvana­legt er auð­vitað í stjórn­mála­starfi. Átökin í Reykja­vík virð­ast oft á tíðum ganga fyrst og fremst út á að ná og við­halda völdum í stofn­unum flokks­ins. Vissu­lega skiptir það máli því að það hefur síðan áhrif á hverjir skipa full­trúa­ráðið, hverjir sitja í kjör­nefnd og hverjir hafa aðgang að Lands­fundi sem síðan mótar stefn­una. Þarna er hart barist en því miður á kostnað mál­efn­anna sem falla í skugg­ann. Þetta gerir að verkum að fólk sem hefur áhuga á mál­efn­unum íleng­ist síður í flokks­starf­inu í Reykja­vík. Það hafa ótrú­lega margir sömu sögu að segja af því, fólki finnst þetta ekki spenn­andi vett­vangur vegna þess­arar hörku. Gras­rót­ar­starfið í Reykja­vík á að vera öfl­ugur vett­vangur skoð­ana­skipta og umræðu en er það því miður ekki að af þessum sökum.“

Þarna er hart barist en því miður á kostnað mál­efn­anna sem falla í skugg­ann. Þetta gerir að verkum að fólk sem hefur áhuga á mál­efn­unum íleng­ist síður í flokks­starf­inu í Reykja­vík. Það hafa ótrú­lega margir sömu sögu að segja af því, fólki finnst þetta ekki spenn­andi vett­vangur vegna þess­arar hörku.

Hún seg­ist upp­lifa það utan flokks­ins að fólk skilji þetta ekki. Þrátt fyrir að fólk nálgist starfið án þess að vilja neitt með þessi átök hafa, er það flokkað í ákveðna hóp eða arma eftir því með hverjum það kemur eða jafn­vel hjá hverjum það situr á fundum. Þegar ég byrja í starf­inu, upp­lifði ég það þannig að ég var án þess að hafa nokkuð haft með það að segja komin í ákveðin hóp. Það bara vald­ist þannig að ég kom inn, sett­ist við hlið­ina á fólki sem mér fannst skemmti­legt og allt í einu var ég bara komin í ein­hverja klíku. Þetta þarf flokk­ur­inn í Reykja­vík að yfir­stíga vegna þess að stemmn­ingin í gras­rót­inni má ekki bitna á fylgi flokks­ins.“

Áslaug segir það sjálf­sagt að skoða nýjar leiðir við að velja fram­boðs­lista, en slíkt verði að gera vel ígrundað og í góðri sátt. „Mér finnst það ekki hafa heppn­ast núna. Ég veit það fyrir víst að það eru margir sem hafa unnið ötul­lega fyrir borg­ina og í borg­ar­mál­unum innan flokks­ins og höfðu mik­inn áhuga á að fara í próf­kjör fannst það súrt að heyra að nöfnin þeirra hlutu engan hljóm­grunn hjá kjör­nefnd­inni. Svona vinnu­brögð skilja eftir sig djúp sær­indi og um leið er hætt við að það verði ekki eins mikil stemm­ing í kosn­inga­slagnum í vor. Mjög margir hefðu gefið kost á sér hefði verið farið í hefð­bundið próf­kjör að þessu sinni enda kjörað­stæður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að ná góðum árangri í kosn­ing­unum í vor og leikur einn ætti að vera að mynda meiri­hluta. Skoð­ana­kann­anir í ágúst á síð­asta ári sýndu að fylgið var að mæl­ast í kringum 34 pró­sent sem var mik­il­væg vís­bend­ing.“

Spurning um viðhorf

„Mér finnst að Sjálf­stæð­is­menn eigi að taka umræðu um ný þró­un­ar­verk­efni opnum örmum. Við eigum að hætta að vera leið­in­legi karl­inn í partý­inu. Við eigum að vilja taka þátt, hefja sam­ræður og sam­starf og taka þannig stjórn á verk­efnum í stað þess að byrja á því að tala þau niður. Þetta er spurn­ing um við­horf. Stjórn­mála­menn sem nálg­ast mál­efna­lega umræðu í trú­ar­bragða­formi og skot­gröfum lenda í vand­ræðum til lengri tíma því þeir þurfa þá á end­anum að gefa eftir eða sjá að sér. Eins og mörg dæmi hafa sýnt. Hlut­irnir eru nefni­lega ekki svona svart­hvítir. Og stefnan getur alls ekki verið sú að fylgja ein­fald­lega því sem hver vill heyra hverju sinni.“

Áslaug segir þörf á að sjálf­stæð­is­menn komi auga á tæki­færin sem fólgin eru í því að höfða til breið­ari hóps borg­ar­búa og vera umburð­ar­lynd­ari gagn­vart nýjum skipu­lags­sjón­ar­miðum í borg­ar­þróun. „Það að horfa á skipu­lags­mál með mis­mun­andi hætti skil­greinir mann ekki sem vinstri eða hægri mann. Það sem skilur á milli hug­mynda­fræði hægri og vinstri manna er frekar hvernig hlutir eru fram­kvæmdir. Við Sjálf­stæð­is­menn höfum barist fyrir fjöl­breytt­ari þjón­ustu, bæði í skóla­kerf­inu og í vel­ferð­ar­þjón­ust­unni, viljum útvista verk­efnum og nota útboð í meira mæli. Ef farið er að flokka fólk til hægri og vinstri eftir skoð­unum þess á skipu­lags­málum þá þreng­ist um og erf­ið­ara verður að ná til þess breiða hóps sem flokk­ur­inn rúmar ann­ars. Nú þegar telja of margir sig ekki eiga sam­leið með flokknum í Reykja­vík vegna þessa við­horfs.“

Hún telur að til dæmis Borg­ar­línu­verk­efnið eigi vel við þá áherslu sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur á frelsi til að velja bæði á lands­vísu og í borg­ar­málum. „Frelsi til að velja er ein aðal­á­hersla flokks­ins. Í sveit­ar­stjórnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er í for­ystu fram­bæri­legt sjálf­stæð­is­fólk sem er að vinna á mjög svip­uðum nótum og við vorum að gera í borg­inni hjá flokknum fyrir nokkrum árum. Þessar sveit­ar­stjórnir sem hafa Sjálf­stæð­is­menn í broddi fylk­ingar eru að vinna með meiri­hlut­anum í Reykja­vík þegar kemur að Borg­ar­línu”, segir Áslaug. Henni kemur hins vegar á óvart að í ljósi þessa sé ekki eitt orð að finna um Borg­ar­línu í glæ­nýrri Lands­fund­ar­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þjónustu illa sinnt

Áslaug segir að vöxt­ur­inn í borg­ar­kerf­inu hafi verið mik­ill á síð­ustu kjör­tíma­bilum. Mörg stöðu­gildi hafi bæst við og rekst­ur­inn sé ógagn­sær. „Þetta ógagn­sæi gerir að verkum að erfitt er að sjá þörf­ina fyrir þennan mikla vöxt og hvað skýrir hann. Það er erfitt að taka ákvarð­anir ef maður veit ekki í hvað tími fólks er að fara, hvernig á að meta verk­efnin sem unnin eru innan kerf­is­ins og hvernig þau skila sér. Þessu verður að breyta.“

Áherslan hafi líka verið alltof lítil á þá þjón­ustu sem borgin veitir und­an­farin ár. „Þá er ég helst að tala um skól­ana. Það hefur lítið sem ekk­ert verið gert í því. Það eina sem meiri­hlut­anum dettur í hug að gera til að mæta þessum vanda er að setja af stað hina og þessa stefnu­mót­un­ina. Mér finnst þetta alltaf lykta af því að þau séu að kaupa sér tíma. Á meðan magn­ast vand­inn upp. Vel­ferð­ar­þjón­ustan þarf að fá inn­spýt­ingu. Nauð­syn­legt er að hleypa nýsköpun að og gera þeim sem á henni þurfa að halda kleift að velja þjón­ustu á eigin for­sendum og með því móti þró­ast hún best. Miklar breyt­ingar eru framundan á sam­fé­lag­inu sem knýja á um breyt­ingar á því hvernig þjón­ustan er veitt.”

Hún segir að þrátt fyrir að hún til­heyri þeim hópi sem vildi skoða kosti þess að flug­völl­ur­inn fengi nýtt stæði, vildi þétta byggð og taldi rétt að sam­þykkja aðal­skipu­lagið, þýðir ekki að hún sé sátt við vinnu­brögð meiri­hlut­ans og það sem hún kallar ósveigj­an­leika gagn­vart breyttum for­sendum í borg­inni. „Of ein­streng­ings­lega hefur verið unnið og þess ekki gætt að hafa íbú­ana sam­ferða. Of bratt er hlaupið í fram­tíð­ar­hug­myndir á meðan grunn­þjón­ustu er ekki sinnt. Þarna verður að vera meira jafn­vægi. Mér finnst að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hlusti ekki nógu vel á borg­ar­búa og skil því vel þá óánægju sem í borg­inni kraumar. Það þarf að hlusta á fólk sem er farið að eyða auknum tíma í bíl­unum sínum í umferð­artöfum og þegar þjón­ust­unni við dag­legt líf íbúa er stór­lega ábóta­vant. Þegar ferða­manna­straum­ur­inn skall á borg­inni og hús­næð­is­skort­ur­inn varð óbæri­legur lögðum við sjálf­stæð­is­menn alla áherslu á að upp­bygg­ing­ar­á­ætl­anir yrðu end­ur­skoð­aðar. Það var ekki gert og unnið of ein­streng­ings­lega eftir útrunnum áætl­unum. Það var aug­ljóst að það þurfti að bregð­ast við þessum breyttu for­sendum með ein­hverjum hætti. Það var ekki gert.”

Mun flokkurinn minnka?

Aðspurð um afleið­ingar þess að þau sjón­ar­mið sem Áslaug stendur fyrir virð­ast ekki hafa átt upp á pall­borðið við upp­still­ingu fram­boðs­list­ans, segir hún: „Með þessu tekur flokk­ur­inn þá áhættu að höfða til þrengri hóps en hann hefði ann­ars gert nema að ein­hverjir á fram­boðs­list­anum tali til þess hóps. Ég er ekki sú eina sem er á þess­ari mál­efna­línu og veit að meðal nýrra fram­bjóð­enda er fólk sem er sam­mála mér um margt. Ég vona að þeir fram­bjóð­endur fylgi sann­fær­ingu sinni og láti ekki þagga niður í sér.“

Hún seg­ist hafa orðið meira og meira vör við þá kröfu að allir þurfi að hafa sömu skoð­anir til að vera gjald­gengir innan flokks­ins í Reykja­vík. „Ég tel að í gegnum tíð­ina hafi það verið einn helsti styrk­leiki flokks­ins að hafa umburð­ar­lyndi fyrir blæ­brigðum skoð­ana innan hans. Þetta umburð­ar­lyndi hefur verið ein for­senda þess að flokk­ur­inn hefur verið jafn stór og raun ber vitni. Skortur á þessu umburð­ar­lyndi mun ekki stækka heldur þvert á móti minnka flokk­inn í Reykja­vík.”

Ljóst er, miðað við skoð­ana­kann­anir, að til að kom­ast í meiri­hluta þarf Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að mynda stjórn með öðrum flokkum. „Því er það ennþá mik­il­væg­ara að sýna sam­starfsvilja og vera til­bú­inn til að ræða nýjar hug­myndir. Með slíku við­horfi er hægt að bryggja brýr. Nei­kvæðni og þröng­sýni skila litlu. Það er ekki veik­leiki að sýna sam­starfsvilja og vilja leita nýrra leiða heldur þvert á móti styrk­leiki. Mér hefur ekki fund­ist nægur skiln­ingur vera fyrir þessu meðal Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík.“

Því er það ennþá mik­il­væg­ara að sýna sam­starfsvilja og vera til­bú­inn til að ræða nýjar hug­myndir. Með slíku við­horfi er hægt að bryggja brýr. Nei­kvæðni og þröng­sýni skila litlu. Það er ekki veik­leiki að sýna sam­starfsvilja og vilja leita nýrra leiða heldur þvert á móti styrk­leiki. Mér hefur ekki fund­ist nægur skiln­ingur vera fyrir þessu meðal Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík.

Ætlar hún í Viðreisn?

Fjöldi fólks hefur snúið baki við Sjálf­stæð­is­flokknum af þessum og öðrum sökum á und­an­förnum miss­erum. Skemmst er að minn­ast stofn­unar Við­reisnar þar sem finna má ógrynni af fyrr­ver­andi sjálf­stæð­is­mönnum, oft með ein­hverjar skoð­anir sem þóttu ekki heppi­legar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins leiðir nú Viðreisn og þar er einnig Pawel Bartoszek sem verður í öðru sæti á lista Við­reisnar í borg­inni.

Áslaug segir Pawel vera mjög sterkan hægri mann sem bjóði sig fram nú í kosn­ing­unum og að hann eigi svo sann­ar­lega erindi í borg­ar­stjórn. „Hann er því miður far­inn úr okkar flokki. Hann er með mjög líka sýn og þá sem var að þró­ast hjá Sjálf­stæð­is­flokknum á sínum tíma og skrif hans sýna að hann hefur góðar hug­myndir í mörgum öðrum málum. Að missa mann eins og hann er auð­vitað mjög leið­in­legt. Ég á vini í Viðreisn og til tals kom að ég tæki sæti á lista flokks­ins. Eftir að hafa íhugað málið ákvað ég að gera það ekki.“

Aðspurð um hvort hún muni kjósa list­ann í kosn­ing­unum í vor seg­ist hún ekki viss. Hún hafi alltaf kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn og myndi gera það í þing­kosn­ingum. Hún sjái hins vegar ekki skýrt hvert flokk­ur­inn stefni í borg­inni. „Ég ætla bara að sjá hvernig þeim tekst að sann­færa kjós­endur og þannig mig, um hvort ég eigi að kjósa þau. Ég hef þó þá til­finn­ingu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík þurfi að skapa jákvæð­ari stemm­ingu og skoða nýja mögu­leika með opnum huga.“

En ætlar Áslaug að hætta alveg í póli­tík? „Breyt­ingar eru sjálf­sagðar og maður á ekk­ert fyr­ir­fram­gefið í stjórn­mála­starfi. Ég hef átt sæti í borg­ar­stjórn þetta kjör­tíma­bil. Mér finnst það ekk­ert langur tími þannig að mér finnst ég eiga nóg inni,“ segir Áslaug og bætir við: „Það hafa verið algjör for­rétt­indi að hafa fengið að starfa sem borg­ar­full­trúi. Starfið er frá­bært. Mínar áherslur hafa lotið að því að gefa borg­ar­búum meira val á öllum víg­stöðvum hvort sem er í vel­ferð­ar­þjón­ustu eða sam­göngum. Nóg er af verk­efnum og það þarf ekk­ert að vera að ég sé hætt í póli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár